Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 30. 2013 | 19:00
Evróputúrinn: Manassero leiðir á Nordea Masters ásamt Larrazabal eftir 1. dag

Það er Ítalinn ungi, Matteo Manassero sem leiðir eftir 1. dag Nordea Masters ásamt Spánerjanum Pablo Larrazabal. Manassero lék fyrsta hringinn á 6 undir pari, 66glæsihöggum; fékk 8 fugla og 2 skolla. Það sem var einkar glæsilegt var að 6 fuglanna komu í röð á 10. – 15. braut! Larrazabal lék líka á 6 undir pari, 66 höggum – fékk 7 fugla og 1 skolla. Til þess að sjá stöðuna á Bro Hof Slot eftir 1. dag SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 30. 2013 | 14:00
Afmæliskylfingur dagsins: Jocelyne Bourassa – 30. maí 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Jocelyne Bourassa. Jocelyne fæddist í Shawinigan í Quebec, Kanada 30. maí 1947 og er því 66 ára í dag. Hún átti frábæran áhugamannaferil vann á unglingamótum í Quebec, 1963, 1964 og 1965 og einnig sigraði hún á Canadian Women´s Amateur. Hún var kanadískur meistari 1971 og gerðist síðan atvinnumaður í golfi fyrir nákvæmlega 40 árum síðan þ.e. 1972. Jocelyne Bourassa. Bourassa nam íþróttafræði við Université de Montréal þar sem hún lagði m.a. stund á og var í blak-, körfubolta- og skíðaliði skólans og að auki í liði skólans í frjálsum. Bourassa spilaði á LPGA á árunum 1972-1979 og var m.a. valin nýliði ársins á LPGA fyrir 40 árum síðan, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 30. 2013 | 10:30
GG: Sjóarinn síkáti á laugardag
Sjóarinn Síkáti Open – Þorbjörninn hf – Vísir hf er eitt stærsta mót Grindvíkinga og hefur lengi verið mjög vinsælt meðal kylfinga. Það er hluti af „Sjóaranum Síkáta“ hátíðinni í Grindavík. Vegleg verðlaun í anda sjómannahelgarinnar, m.a. fiskafurðir, matarúttektir, út að borða ofl. gisting og Teiggjafir í boði NÓA Síríus. Veitt verða verðlaun fyrir fimm efstu sætin í punktakeppni og besta skor án forgjafar. Veitt verða nándarverðlaun á öllum par-3 brautum vallarins. sæti án forgjafar – fjölskylduárskort Blue Lagoon og 10 kg af fiskafurðum– 10.000 kr Inneignarbréf á Salthúsið Restaurant sæti með forgjöf – fjölskylduárskort Blue Lagoon og 10 kg af fiskafurðum – 10.000 kr Inneignarbréf á Salthúsið Restaurant sæti með Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 30. 2013 | 10:15
Tiger talar ekki við Garcia

Tiger Woods sagði á blaðamannafundi í gær í tengslum við Memorial mótið að hann hefði ekki talað við Sergio Garcia og hann ætlaði sér ekkert að gera svo eftir ummæli Garcia sem voru túlkuð sem kynþáttaníð. Tiger sagðist heldur ekkert búast við því að tala við Sergio um málið þegar þeir tveir keppa á Opna bandaríska eftir tvær vikur. „Þetta er búið og gert,“ sagði Tiger deginum áður en hann hefur titilvörn sína í Muirfield Village Golf Club. Í síðustu viku í Wentworth á Englandi fór Garcia yfir strikið þegar hann var að grínast með það að verja tíma með Tiger á Opna bandaríska. „Við munum þurfa að umgangast hann á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 30. 2013 | 08:30
GSS: Hlíðarendinn opnar í dag

Hlíðarendavöllur á Sauðárkróki verður opnaður inn á sumarflatir í dag fimmtudaginn 30. maí 2013 jafnt fyrir klúbbmeðlimi sem gesti. Kylfingar eru beðnir að ganga sérstaklega vel um völlinn enda er hann viðkvæmur eftir erfiðan vetur. Flatir hafa verið sandaðar og eru því ekki komnar í gott sumarstand og er mjög mikilvægt að kylfingar lagfæri boltaför. Skráning á rástíma er virk á www.golf.is
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 29. 2013 | 22:20
Golfútbúnaður: Nýjustu járnin – Myndskeið

Mike Johnson, ristjóri Golf Digest og Golf World hvað snertir golfútbúnað sýndi Matt Ginnella þátttarstjórnanda í golfþættinum Morning Drive það nýjasta í járnum 2013. Sjá má myndskeiðið með þeim Johnson og Ginnella með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 29. 2013 | 22:00
Obama heiðursformaður Presidents Cup

Barack Obama mun gegna stöðu heiðursformanns í Presidents Cup næstkomandi október í Muirfield Village. Þetta er í 10. skiptið sem Presidents Cup er haldið. Fyrir þá sem ekki vita það þá er Forseta bikarinn svipuð keppni og Ryder Cup nema kylfingar allsstaðar að úr heiminum nema Evrópu (þ.e. Alþjóðaliðið) keppir við bestu kylfinga Bandaríkjanna. Síðast þegar mótið var haldið, 2011, vann lið Bandaríkjanna 19-15. Obama var líka formaður árið 2009 þegar Bandaríkin unnu 19 1/2 to 14 1/2. Þetta er í 6. sinn sem forseti hefir gegnt stöðu heiðursformanns. Hinir eru: 1994 — Gerald Ford 1996 — George H.W. Bush 2000 — Bill Clinton 2005 — George W. Bush 2009 — Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 29. 2013 | 21:45
Afmæliskylfingur dagsins: Björg Traustadóttir – 29. maí 2013
Afmæliskylfingur dagsins er Björg Traustadóttir, í Golfklúbbi Ólafsfjarðar (GÓ). Björg á afmæli 29. maí 1965 og er því 48 ára í dag. Björg er klúbbmeistari Golfklúbbs Ólafsfjarðar 2011 og sigraði auk þess í 1. flokki þ.e. forgjafarflokki 0-14 á Opna Lancôme mótinu 2012 á Hellu. Björg Traustadóttir, klúbbmeistari GÓ 2011 Björg er gift og á 3 börn. Sjá má nýlegt viðtal Gofl 1 við klúbbmeistara Ólafsfjarðar (Björgu) með því að SMELLA HÉR: Komast má af facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér: Björg Trausta (48 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Patrick Joseph Skerritt, f. 29. maí Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 29. 2013 | 21:30
Gísli Sveinbergs í 1. sæti og Fannar Ingi í 2. sæti í Skotlandi
Gísli Sveinbergsson, GK og Fannar Ingi Steingrímsson, GHG taka þátt í US Kids European Championship sem fram fer á golfvelli Luffness New Golf Club í Skotlandi. Gísli er búinn að leika á samtals 3 undir pari, 147 höggum (74 73) og deilir 1. sætinu með Jim de Heij frá Hollandi, sem er einstaklega glæsilegur árangur. Gísli spilar í flokki 18 ára pilta. Fannari Inga gengur ekki síður, en hann spilar í flokki 14 ára stráka. Hann er búinn að leika á samtals 2 undir pari, 142 höggum (75 67) og deilir 2. sætinu ásamt 2 öðrum þeim Jack Hearn frá Írlandi og Brodie Good frá Englandi. Lokahringurinn fer fram á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 29. 2013 | 13:30
Tiger tíar upp á Memorial

Tiger Woods spilar á morgun í fyrsta móti sínu frá sigri sínum á Players Championship og mun þá reyna að freista þess að verja titil sinn meðal stjörnukylfinganna á Memorial Tournament í Muirfield Village. Sjö af 10 bestu kylfingum heims eru saman komnir í Dublin, Ohio til þess að reyna að sigra á móti Jack Nicklaus og taka síðan í höndina á goðsögninni á 18. flöt. Nr. 1 á heimslistanum (Tiger) vann 5. titil sinn á Memorial fyrir 12 mánuðum síðan þökk sé frábæru vippi á par-3 16. flötinni á lokahringnum – og með þessum sigri jafnaði hann 73 titla met Nicklaus. Síðan þá hefir Tiger náð allt að því Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

