Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 1. 2013 | 09:00

Fræg golftilvitnun: Bill Murray

Golftilvitnanir eru margar til og margar orðnar frægar.  Hér á Golf 1 er ætlunin að rifja upp nokkrar þessara tilvitnana af og til í sumar.  Ef þið lumið á góðum golfmálshætti eða golftilvitnun, sem þið viljið koma á framfæri, endilega sendið þær á golf1@golf1.is. Hér er ein með þeim þekktari: „Correct me if I’m wrong Sandy, but if I kill all the golfers, they’re going to lock me up and throw away the key.“ –Bill Murray, Caddyshack Á íslensku í lauslegri þýðingu: „Leiðréttu mig ef ég hef rangt fyrir mér Sandy, en ef ég drep alla kylfingana, læsa þeir mig inni og henda burt lyklunum.“ Leikarinn Bill Murray í kvikmyndini Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 1. 2013 | 08:00

Golfbrellur Romain Bechu – Myndskeið

Það er með ólíkindum hvað sumir eru góðir í allskyns golfbrellum og þar er Romain Bechu engin undantekning. Þegar það gengur út á að halda bolta á lofti á ólíka vegu þá er hann alger snilingur. Hér má sjá myndskeið með golfbrellumeistaranum Romain Bechu SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 1. 2013 | 06:00

Örvar Samúelsson fór holu í höggi

Örvar Samúelsson, GA, einn högglengsti kylfingur landsins fór holu í höggi á Kopúlfsstaðavelli s.l. fimmtudag, 30. maí 2013, þegar hann var að spila hring með þeim Andra Þór Björnssyni, GR  og Guðmundi Ágúst Kristjánssyni, GR. Draumahögginu náði Örvar á par-3 9. holunni og notaði til þess 5-járn. Á facebook síðu Örvars skrifar hann eftirfarandi um afrek sitt: „Spilaði fyrsta hring sumarsins núna í kvöld og ekki margt fallegt við það enda aukaatriði þegar maður er i góðum félagskap en náði þó að einu frábæru höggi. Hola í höggi á 9 í korpunni  vonandi að þetta setji tóninn fyrir sumarið. „ Golf 1 óskar Örvari til hamingju með ásinn!!!


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 1. 2013 | 01:30

LPGA: Blumenherst og Jutanugarn leiða eftir 1. dag Shoprite Classic – Wie á besta skori í lengri tíma

Mót vikunnar á LPGA mótaröðinni er Shoprite Classic sem hófst í gær á Bay golfvellinum í Stockton Seaview Hotel and Golf Club í Galloway, New Jersey. Forystukonur eftir 1. hring eru bandaríska stúlkan Amanda Blumenherst og nýliðinn thaílenski Moriya Jutanugarn en báðar voru á 5 undir pari, 66 höggum, 1 höggi á undan þeirri sem á titil að verja, fyrrum nr. 1 á heimslistanum Stacy Lewis. Michelle Wie, er í 4. sæti og á besta skori sínu í lengri tíma en henni hefir ekki gengið vel það sem af er árs og í fyrra. Wie spilaði á 3 undir pari, 68 höggum; fékk 5 fugla og 2 skolla. Kannski að Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 1. 2013 | 01:00

PGA: Haas í forystu þegar Memorial frestað vegna myrkurs

Fyrrum Wake Forest neminn Bill Haas leiðir á Memorial móti Jack Nicklaus eftir 2. dag, eftir að leik var hætt vegna myrkurs. Haas er búinn að spila á samtals 9 undir pari, 135 höggum (68 67).  Haas sagði m.a. í nýlegu viðtali að það að hafa orðið faðir í fyrsta sinn fyrir skemmstu hefði breytt hugsanagangi sínum í golfi til hins betra og hefði fæðing 1. barns hans haft góð áhrif á golfleikinn. „Ég tók mér frábærar 2 vikur í frí. Ég eignaðist strák oghef skemmt mér vel heima með eiginkonunni. Ég hugsa að ég sé bara í betri ástandi andlega en ég var fyrir 3 vikum þegar ég komst Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 31. 2013 | 23:30

Evróputúrinn: Manassero leiðir enn

Mattero Manassero leiðir þegar Nordea Masters er hálfnað. Manassero er búinn að spila á samtals 13 undir pari, 131 höggum (66 65).  Hann á 2 högg á þann sem næstur kemur, Finnann Mikko Ilonen, sem er á 11 undir pari, 133 höggum (70 63) en hann geystist upp listann eftir að hafa verið með besta skor dagsins 63 högg. Í 3. sæti er Peter Whiteford á samtals 10 undir pari, 134 höggum (71 63) og Hollendingurinn Joost Luiten er í 4. sæti á 9 undir pari, 135 höggum (68 67). Sá sem á titil að verja, heimamaðurinn Alex Noren  deilir 5. sætinu ásamt landa sínum Jonas Blixt og forystumanni gærdagsins Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 31. 2013 | 14:10

Afmæliskylfingur dagsins: Helga Rún Guðmundsdóttir – 31. maí 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Helga Rún Guðmundsdóttir, GL. Helga Rún er fædd 31. maí 1970 og því 43 ára í dag. Hún er í kvennanefnd Golfklúbbsins Leynis á Akranesi. Mánudaginn 28. maí, 2012 tók afmæliskylfingurinn þátt í Hvítasunnumóti Guðmundar B Hannah á Garðavelli, á Akranesi og varð í verðlaunasæti þ.e. í 2. sæti af  96 þátttakendum með 41 glæsilegan punkt! Nýlegt viðtal við Helgu Rún hefir birtst á Golf1, sem sjá má með því að  SMELLA HÉR:  Komast má á Facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér Helga Rún Guðmundsdóttir · 43 ára – Innilega til hamingju með afmælið!   Laufey Oddsdótir (55 ára) Árni Sófusson (67 ára) Golf 1 óskar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 31. 2013 | 13:45

Schwartzel leiðir á Memorial

Það er Masters risamótssigurvegarinn Charl Schwartzel sem leiðir á Memorial móti Jack Nicklaus í Dublin, Ohio eftir 1. dag, en mótið hófst í gær og er mót helgarinnar á PGA Tour. Schwartzel lék á 7 undir pari, 65 höggum fékk 10 fugla 1 skolla og 1 skramba. Í 2. sæti er Scott Piercy á 66 höggum og í 3. sæti eru 4 kylfingar allir á 67 höggum þ.e. þeir: Russel Henley, Josh Teater, Kyle Stanley og Charlie Wi. Nr. 1 á heimslistanum, Tiger Woods, lék á sléttu pari og deilir 42. sætinu eftir 1. dag.  Nr. 2 á heimslistanum Rory McIlroy átti afar slæman hring, en hann var á 6 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 31. 2013 | 13:30

Birgir Leifur á parinu eftir fyrri 9 – dansar á niðurskurðarlínunni

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, tekur þátt í Fred Olsen Challenge de España mótinu sem fram fer á Kanarí-eyjum, daganna 30. maí – 2. júní 2013. Birgir Leifur lék fyrsta hring mótsins í gær á 71 höggi og eftir fyrri 9 á 2. hring mótsins í dag er hann á sléttu pari.  Birgir dansar á niðurskurðarlínunni sem stendur og verður spennandi að sjá hvort hann nær niðurskurði. Í gær fékk Birgir Leifur 6 fugla, 4 skolla og 1 skramba. Nú á fyrri 9 fékk Birgir Leifur 3 fugla, 1 skolla og 1 skramba. Til þess að fylgjast með stöðuna á Fred Olsen Challenge de España SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 30. 2013 | 21:00

Gísli sigraði á European Championship!

Gísli Sveinbergsson, GK, sigraði í dag á US Kids European Championship. Á lokahringnum fékk hann 1 fugl, 14 pör og 3 skolla, sem er glæsilegur árangur!!! Samtals lék Gísli á 5 yfir pari, 221 höggi (74 73 74).  Mótið fór fram á á  golfvelli Luffness New Golf Club  í Skotlandi. Fyrir lokahringinn deildi Gísli 1. sætinu með Jim de Heij frá Hollandi en hann stendur einn uppi sem sigurvegari í sínum aldursflokki 15-18 ára pilta. Frábær árangur hjá frábærum kylfingi!!! De Heij ásamt Svíanum Daniel Palmqvist deildu 2. sætinu 2 höggum á eftir Gísla. Fannar Ingi Steingrímsson, GHG, sem keppti í flokki 14 ára stráka lék líka á 74 höggum í dag en Lesa meira