Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 5. 2013 | 19:40

Vonn sett í lyfjapróf

Lindsay Vonn var alveg gullfallega klædd á verðlaunaathöfn Council of Fashion Designers of America (CFDA) s.l. mánudagskvöld í New York. Meðan athöfnin stóð sem hæst varð Lindsay að hverfa frá vegna þess að hún varð að gangast undir skyldulyfjapróf hjá alþjóðalegu ólympíunefndinni (IOC) Kæresta Tiger Woods var gestur tískuhönnuðarins Cynthiu Rowley – klædd í hvítan kjól sem Rowley hannaði sérstaklega á Lindsay. Þegar athöfnin stóð sem hæst hringdi IOC og sagði að tími væri kominn til að láta af hendi þvagsýni. „Hún sagðist skilja að þetta væri hluti af starfi hennar,“ sagði talsmaður Lindsay, Lewis Kay. Lindsay Vonn stóðst prófið að sögn og nóg var af kampavíni til þess að Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 5. 2013 | 19:15

Jessica Korda meidd

Bandarísk/tékkneski kylfingurinn, Jessica Korda, er meidd á úlnlið en það olli því að hún gat ekki tekið þátt í North Texas Shootout mótinu og dró sig úr Kingsmill mótinu.   Óvíst er hvenær hún snýr sér aftur að keppnisgolfi, en hún vonast til að keppa aftur í golfi sem fyrst. Jessica deildi meðfylgjandi mynd af sér á Instagram og til aðdáenda sinn á twitter sem „followa“ hana (@JessicaKorda).


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 5. 2013 | 19:00

Lyle virðist kominn yfir hvítblæðið

Svo virðist sem kylfingurinn Jarrod Lyle hafi sigrast á hvítblæði í 2. sinn. Lyle var fyrst greindur með hvítblæði þegar hann var 17 ára en hann náði sér nógu vel til þess að komast á PGA Tour í fyrsta sinn árið 2007. Hann komst að því að hvítblæðið hafði tekið sig upp í mars 2012, aðeins nokkrum dögum áður en eiginkona hans, Briony,  eignaðist fyrsta barn þeirra, dóttur. Briony Lyle var sett af stað til þess að Jarrod gæti verið viðstaddur fæðingu barns síns áður en hann færi í meðferð. Síðastliðinn ágúst gekkst Lyle undir beinmergsflutning, sem tókst vel. Í mars lék Lyle 18 holur á The Sands Torquay í Melbourne, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 5. 2013 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: Massimo Scarpa – 5. júní 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Massimo Scarpa. Massimo fæddist í Feneyjum,  5. júní 1970 er er því 43 ára í dag. Scarpa gerðist atvinnumaður í lok árs 1992 og því er hann búinn að vera atvinnumaður í golfi í 20 ára á þessu ári.  Árið 1992 rétt áður en hann gerðist atvinnumaður vann hann European Amateur. Massismo spilaði bæti á Evróputúrnum og á Áskorendamótaröðinni á árunum 1993-2006.  Hann vann 1 sinni á Evróputúrnum og 2 á Áskorendamótaröðinni. Hann vann líka Italian National Omnium þrisvar sinnum á árunum á milli 1998 og 2001. Hann var fulltrúi Ítalíu á Alfred Dunhill Cup  1999  þegar mótið fór fram á  St Andrews, og bar þar sigurorð af þreföldum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 5. 2013 | 10:30

Frægir kylfingar: Jack Nicholson kaupir sett fyrir 9,2 milljónir

Jack Nicholson, sem hefir ekkert farið of vel með kylfur sínar  hugsar sig kannski um tvisvar áður en hann fer að brjóta kylfur eða í kylfukast næst á golfvellinum Óskarsverðlaunahafinn greiddi$ 75.000,- (rúmlega 9,2 milljónir íslenskra króna) fyrir golfsett þ.e. poka og 14 kylfur – tré, járn o.s.frv. Kylfurnar voru sérsmíðaðar fyrir Nicholson af japanska kylfusmiðnum Honma.  Kylfurnar eru búnar til af 100 smiðum og efnið er m.a. platína og 24 karata gull.


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 5. 2013 | 10:00

LPGA: Kerr og Lewis ætla að reyna að stoppa sigurgöngu Asíu á Wegmans risamótinu

Annað risamótið hjá konunum Wegmans LPGA Championship byrjar á morgun fimmtudaginn 6. júní og eru Asíustúlkur ákveðnar að þrífa til sín risamótstitil 9 skiptið í röð. Í fyrra gerðist það í fyrsta sinn í sögunni að stúlkum frá Asíu tókst að vinna alla risatitla ársins í kvennagolfinu. Inbee Park frá Suður-Kóreu sigraði á Kraft Nabisco Championship í byrjun þessa árs þannig að kannski er verið að reyna að endurtaka fyrri árangur Asíu frá því í fyrra? Nr. 1 á Rolex-heimslistanum í kvennagolfinu er frá Asíu (en það er einmitt Inbee) og 7 stúlkur frá Asíu eru á topp-10 listanum!  Því eru líkurnar á sigurvegara frá Asíu miklar. „Það væri frábært Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 4. 2013 | 23:30

Glæsilegum Golfdögum lokið – Úrslit

Kringlan og GSÍ stóðu fyrir golfdögum í Kringlu, dagana 30.maí – 2.júní. Fjölmargar verslanir buðu glæsileg tilboð og boðið var upp á áhugaverðar golftengdar kynningar og fræðslu í göngugötu. Mikill fjöldi lagði leið sína í Kringluna þessa daga og ljóst að golfáhugi almennings er mikill. Fjöldinn og stemningin náði hámarki á laugardag þegar keppni fór fram um hver gæti slegið lengst í golfhermi, en auk þess var skemmtileg púttkeppni í gangi á sama tíma. Vel á þriðja hundrað manns tóku þátt í keppnunum enda til mikils að vinna því í boði voru glæsileg verðlaun. Keppnin um lengsta “drævið” var hörð og spennandi og keppt var bæði í karla – og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 4. 2013 | 23:00

Skjólstæðingur Trump tryggði sér sæti á Opna bandaríska

John Nieporte var kominn að niðurlotum sumarið 2001. Atvinnumaðurinn var orðinn dauðþreyttur á að ferðast á milli smá-mótaraða og banka stöðugt á dyr þess að vera e.t.v. að „meika það.“ „Ég sagði við konu mína að ég ætlaði að sjá hvernig mér gengi í New York State Open. Ég var orðinn pirraður. Þannig ef mér gengi ekki vel ætlaði ég að fara aftur að vinna við fasteignasölur í Flórída,“ sagði Nieporte eftir að hann náði í 3. og síðasta sætið í úrtökumóti fyrir Opna bandaríska á Ritz-Carlton Members Club með fugli á 3. holu bráðabana snemma í morgun. Golfguðirnir verðlaunuðu vinnu hans 12 árum áður með sigri á hinum fræga Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 4. 2013 | 22:00

Evróputúrinn: Manassero kylfingur maímánaðar

Matteo Manassero var útnefndur kylfingur maímánaðar eftir frábæran sigur sinn á BMW PGA Championship, flaggskips viðburð Evrópumótaraðarinnar í Wentworth Club, Surrey á Englandi, en með því afreki sínu hélt hann áfram að skrifa sig í metabækur. Matteo, sem hlaut ágrafinn grip/disk og risastóra flösku af Moët & Chandon kampavíni, vann fyrst Skotann Marc Warren og síðan Simon Khan á 4. holu bráðabana 37 dögum eftir 20 ára afmælisdag sinn. Eftir að verða sá yngsti árið 2009 til þess að sigra Amateur Championship og þar að auki fyrsti Ítalinn til að sigra mótið hélt Manassero áfram og varð sá yngsti til að vinna silfurmedalíuna í Opna breska (2009) og jafnframt varð hann Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 4. 2013 | 15:00

Bikinímyndir Natalie Gulbis

Natalie Gulbis hefir aðeins sigrað á 1 móti á LPGA og það var fyrir 6 árum síðan þ.e. 2007 á Evían Masters. Hún er með þekktari kylfingum á LPGA …. vegna fjölmargra mynda sem teknar hafa verið af henni fáklæddri. Birtst hafa sumarbikínís-myndirnar af Gulbis og var ein af frægari tökunum þegar bikiníið var bara málað á hana (ens. bodypaint) Sjá má þessar myndirnar með því að SMELLA HÉR:  (athugið að þið verðið að „skrolla“ aðeins niður síðuna til þess að sjá myndirnar.