Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 6. 2013 | 21:00

Birgir Leifur á 3 undir pari eftir 1. dag

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, hóf í dag leik á D + D Czech Challenge Open, en mótið er hluti af Áskorendamótaröð Evrópu.  Mótið fer fram í Golf & Spa Kunetická Hora í Drftec, í Tékklandi dagana 6.-9. júní 2013. Eftir 1. dag deilir Birgir Leifur 34. sætinu ásamt 10 öðrum. Hann lék á 3 undir pari, 69 höggum; fékk 5 fugla, 10 pör og 3 skolla. Til þess að sjá stöðun eftir 1. dag á Czech Open SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 6. 2013 | 20:00

Evróputúrinn: Lewis leiðir eftir 1. dag í Austurríki

Í dag hófst í Diamond Country Club Lyoness Open powered by Greenfinity, en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni. Leikið er í Atzenbrugg, Austurríki og fer mótið fram dagana 6.-9. júní 2013. Eftir 1. dag leiðir Englendingurinn Tom Lewis, en hann lék á 9 undir pari, 63 höggum.  Lewis fékk 9 fugla og 9 pör. Í 2. sæti er Hollendingurinn Joost Luiten á 7 undir pari, 65 höggum. Luiten fékk 8 fugla og 1 skolla. Þriðja sætinu deila 4 á 6 undir pari, 66 höggum: Graeme Storm, Alexander Levy, Richard McEvoy og Simon Dyson. Til þess að sjá frá Lyoness Open í beinni SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 6. 2013 | 16:00

Ko keppir í LPGA risamótinu

Táningsgolfstjarnan ný-sjálenska Lydia Ko hefir verið að búa sig undir að taka þátt í LPGA Championship risamótinu sem hefst í New York í dag. Hin 16 ára Lydia Ko fór æfingahring á golfvelli Locust Hill Country Club í Pittsford þar sem Wegmans LPGA Championship risamótið fer fram og lýsti yfir að þetta væri einn þrengsti völlur sem hún hefir spilað. Þetta er 4. tilraun hennar til þess að verða yngsti sigurvegari golfsögunnar á risamóti kvennagolfsins. Ko er nr. 1 á heimslista áhugamanna og nr. 22 á Rolex-heimslista atvinnumanna. „Þetta er mjög erfiður völlur“ sagði Ko. „Þetta er þrengsti völlur sem ég hef nokkru sinni spilað á. Karginn er erfiður líka. Þetta Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 6. 2013 | 14:00

Rory í Oak Hill

Nr. 2 á heimslistanum Rory McIlroy fékk fyrstu innsýn sína í  Oak Hill Country Club en þar fer PGA Championship risamótið fram á þessu ári og honum líkaði það sem hann sá. McIlroy tók þátt í blaðamannafundi í upstate New York til þess að kynna PGA Championship, sem fram fer í 95. skiptið. Áður en Rory veitti færi á viðtali, sem stóð í yfir klukkustund fékk hann tækifæri til þess að prófa hinn fræga East Course í Oak Hill. Hann fór út kl. 7:45 ásamt Craig Harmon, sem er golfkennari á staðnum (og bróðir golfgúrúsins fræga Butch Harmon) og Ted Bishop, forseta PGA of America. „Þegar ég hugsa um PGA Championship, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 6. 2013 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Veigar Margeirsson – 6. júní 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Veigar Margeirsson.  Hann á afmæli 6. júní 1972 og á því 41 árs afmæli í dag!!! Veigar spilar golf í tómstundum, stundaði nám við þann góða háskóla University of Miami, en býr í Kaliforníu þar sem hann rekur eigið fyrirtæki. Veigar er kvæntur Sirrý og eiga þau 2 börn. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Veigar Margeirsson (41 árs afmæli) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Jock Hutchison, f. 6. júní 1884 – d. 27. september 1977 ….. og …… Baldur Baldursson (45 ára) Hinrik Hinriksson (23 ára) Prentsmiðjan Rúnir (27 ára ) Sjomenn Á Spáni Costablanca (28 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 6. 2013 | 09:00

Birgir Leifur hefur leik á Czech Challenge Open í dag

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, hefur leik í dag á D + D Czech Challenge Open, en mótið er hluti af Áskorendamótaröð Evrópu. Mótið fer fram í Golf & Spa Kunetická Hora í Drftec, í Tékklandi dagana 6.-9. júní 2013. Birgir Leifur á rástíma kl. 13:10 að staðartíma þ.e. kl. 11:10 að íslenskum tíma. Til þess að fylgjast með gengi Birgis Leifs SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 6. 2013 | 08:45

Forgjöf Mickelson er + 5.2

Hafið þið nokkru sinni velt fyrir ykkur hvort atvinnumenn séu með forgjöf og þá hver hún sé? Phil Mickelson er félagi í Whisper Rock golfklúbbnum í Scottsdale, Arizona og skv. skrám þar er forgjöf hans +5,2 (sbr. USGA Golf Handicap og Information Network (ghin.com). Mickelson, sem hannaði Lower Course í Whisper Rock, er einn nokkurra leikmanna PGA Tour, sem er félagar þar og má sjá forgjöf þeirra skráða þar. Hér að neðan má sjá forgjafarskrá (ens. handicap index) um hvernig forgjöf Phil hefir tekið breytingum frá því í febrúar á þessu ári (en hringirnir sem hann spilar á PGA Tour hafa áhrif á forgjöf hans) Á forgjafarskránni hér að ofan sést Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 5. 2013 | 20:30

EPD: Þórður Rafn á 73 eftir 1. dag

Þórður Rafn Gissurarson, GR, tekur þátt í Land Fleesensee Classic mótinu, sem er hluti þýsku EPC mótaraðarinnar. Leikið er á golfvelli Golf & Country Club Fleesensee hjá Berlín. Þórður Rafn lék á 1 yfir pari, 73 höggum ; fékk 3 fugla og 4 skolla á hringnum í dag.  Þórður Rafn er sem stendur í 54. sæti en 40 komast áfram í gegnum niðurskurð. Í efsta sæti er Þjóðverjinn Anton Kirstein á 8 undir pari, 64 höggum. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á Fleesensee mótinu SMELLIÐ HÉR:   


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 5. 2013 | 20:00

GR: Helgi Birkir sigraði á Opna Eimskip – var á 66 höggum!

Fyrsta opna mót sumarsins í Grafarholti, Opna Eimskip, fór fram, sunnudaginn 2. júní s.l. Alls tóku þátt 166 keppendur og léku í fremur köldu veðri í Holtinu. Árangur dagsins var þó vægast sagt glæsilegur, en alls 35 kylfingar hlutu 35 og fleiri punkta og besta skor var 66 högg, eða 5 högg undir pari vallarins. Leikin var punktakeppni í flokki karla og kvenna og verðlaun veitt fyrir 3 bestu skorin sem og nándarverðlaun á öllum par 3 holum vallarins. Úrslitin voru eftirfarandi: Nándarverðlaun:  2.braut: Styrmir Guðmundsson GSE – 2,19 m 6.braut:  Óskar Bjarni Ingason  GR – 2,38 m 11.braut:  Pétur Andri Ólafsson GKG – 1,91 m 17.braut:  Helgi Birkir Þórisson Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 5. 2013 | 19:45

Tiger tekjuhæsti íþróttamaðurinn

Skv. Forbes Magazine var Tiger Woods best launaði íþróttamaður tekjuársins 2012. Skv. tímaritinu voru laun Tiger meira en 78 milljónir bandaríkjadala á tímabilinu 1. júní 2012 til 1. júní 2013. Í þessari tölu launa er talið verðlaunafé, styrktar- og auglýsingasamningar, laun vegna golfvallarhönnunar og tekjur fyrir að mæta í mótum. Tiger var ríkasti íþróttamaður heims 11 ár í röð en á tekjuárinu 2011-2012 dalaði hann aðeins. Því er spáð að tekjur Tiger muni aukast ef eitthvað á komandi ári, m.a. vegna nýrrar samningagerðar við Nike, eina samningsaðila Tiger sem stóð með honum meðan Tiger átti erfitt vegna framhjáhaldsmála sinna. Nike borgar Tiger meira en 20 milljónir bandaríkjadala á hverju ári. Lesa meira