Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2013 | 16:25
Eimskipsmótaröðin (2): Viðtal við Önnu Sólveigu forystukonu 2. dags

Anna Sólveig Snorradóttir, GK, leiðir fyrir lokahringinn úti í Vestmannaeyjum. Hún lék í dag á 2 yfir pari, 72 höggum. Í gær spilaði hún á 74 höggum og er því samtals á 6 yfir pari, 1 höggi á undan klúbbfélaga sínum Signýju Arnórsdóttur, GK. Golf 1 tók stutt viðtal við Önnu Sólveigu. Golf 1: Sæl Anna Sólveig – þetta var glæsilegt hjá þér í dag 2 yfir pari, hvað var að ganga upp? Anna Sólveig: Bara allt, ég var að slá mjög vel. Golf 1: Þetta var flott hjá þér að taka skrambann á 13. aftur með tveimur fuglum í röð – hvað er eiginlega svona erfitt við 13.? Anna Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2013 | 16:00
Eimskipsmótaröðin (2): Anna Sólveig leiðir fyrir lokahringinn
Veður úti í Vestmannaeyjum á 2. móti Eimskipsmótaraðarinnar mætti vera betra, það er þoka, kuldi og rigning. Þær breytingar urðu á forystunni í kvennaflokki mótsins að Anna Sólveig Snorradóttir, GK, hefir í dag tekið forystu, lék Vestmannaeyjarvöll á tveimur yfir pari, 72 höggum. Á hringnum fékk hún 3 fugla, 12 pör, 1 skolla og 2 skramba, annan á par-4 13. holunni, sem reynist mörgum svo erfið. Hún tók skrambann samt aftur strax á 14. og 15. holunum þar sem hún var með fugla, en fékk síðan annan skramba á 17. holu! Samtals er Anna Sólveig búin að spila á 6 yfir pari, 146 höggum (74 72). Í 2. sæti aðeins Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2013 | 14:55
Evróputúrinn: Luiten leiðir enn á Lyoness

Það er hollenski kylfingurinn Joost Luiten sem leiðir fyrir lokahring Lyoness Open powered by Greenfinity mótinu í Atzenberg í Austurríki. Hann er búinn að spila á samtals 16 undir pari, 200 höggum (65 68 67). Öðru sætinu deila Spánverjarnir Jorge Campilo og Eduardo de la Riva 3 höggum á eftir, á 13 undir pari, 203 höggum, hvor; Campilo (70 67 66) og De la Riva (69 70 66). Í 4. sæti eru síðan Thomas Björn frá Danmörku og franski kylfingurinn Romain Wattel, báðir á 11 undir pari og 6. sætinu deila Miguel Angel Jiménez og Englendingurinn Paul Warig. Til þess að sjá stöðuna á Lyoness Open eftir 3. hring SMELLIÐ Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2013 | 14:30
Afmæliskylfingur dagsins: Kathryn Marshall Imrie – 8. júní 2013

Afmæliskylfingur dagsins er skoski kylfingurinn Kathryn Christine Marshall, sem tók upp ættarnafnið Imrie þegar hún gifti sig. Hún er fædd 8. júní 1967 og á því 46 ára afmæli í dag. Kathryn átti mjög farsælan áhugamannsferil; árin 1981 og 1985 var hún skoskur skólameistari (ens.: Scottish Schools’ champion); árin 1983-85 var hún skoskur unglingameistari (ens.: Scottish Youth’s champion) og árið 1983 var hún skoskur unglingameistari í holukeppni og meistari í höggleik (ens.: the Scottish Junior Open Strokeplay Champio) árin 1985, 1986 og 1987. Kathryn var hluti af Curtis Cup liðinu 1990. Hún spilaði í bandaríska háskólagolfinu með the University of Arizona, þar sem hún var All-American, 1989. Kathryn gerðist atvinnumaður í golfi Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2013 | 12:00
Frægir kylfingar: Oliver Hardy

Litli og Stóri. Gög og Gokke. Stan Laurel og Oliver Hardy. Vissi einhver að „Stóri“ þ.e. gamanleikarinn Oliver Hardy í gamanmyndunum vinsælu um Litla og Stóra hefði verið forfallinn kylfingur? Oliver Hardy fæddist 18. janúar 1892 og hefði því orðið 121 árs í ár en hann dó fremur ungur eða 65 ára, þann 7. ágúst 1957. Hann var ýmist kallaður Babe eða Ollie og kynntist golfinu fyrst 21 árs (árið 1913) og það hjá samgamanleikara sínum Larry Semon. „Ég elskaði það (golfið) strax á fyrsta deginum mínum á linksaranum“ er haft eftir Ollie. „Ég elskaði allt við leikinn …. golf var svo sannarlega leikur minn. Ollie , sem fæddist rétt Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2013 | 11:00
Kaymer vill að eitthvað verði gert í of hægum leik

Þýski kylfingurinn Martin Kaymer vill að umræðunni í golfinu verði loksins snúið frá löngum pútterum og að of hægum leik í golfinu. Kaymer hefir áður látið frá sér fara að hann sé ánægður með bannið á löngu pútterunum en R&A og USGA ákváðu í síðasta mánuði að langir pútterar verði með öllu bannaðir frá og með janúar 2016. Kaymer vill að reglusetningarvaldið innan golfíþróttarinnar snúi sér nú loks að of hægum leik. „Ég er ánægður með að málið með löngu pútterana sé nú afgreitt, við erum búin að tala í yfir ár um þá og ég er bara ánægður með að þurfa ekki að tjá mig lengur um þá,“ sagði Kaymer Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2013 | 10:45
Topp-20 kylfingarnir á US Open

CBS Sports hefir tekið saman yfirlit yfir 20 topp kylfinganna sem taka þátt í 113. Opna bandaríska risamótinu, sem hefst n.k. fimmtudag og stendur dagana 13.-16. júní í Merion Golf Club í Ardmore, Pennsylvaníu. CBS listar kylfingana upp í skv. spá þeirra um hverjum muni vegna best. Golf 1 er ekki sammála þeirri listun þ.e. að Hunter Mahan standi uppi sem sigurvegari og Tiger verði í 2. sæti, en það er annað mál. Gaman er að sjá hverjir toppkylfingarnir að mati CBS eru og Golf 1 sannfært um að sigurvegari Opna bandaríska verði í þessum hópi: HUNTER MAHAN Aldur: 31. Ríkisfang: bandarískur. Staða á heimslista: 22. sæti Alþjóðlegir sigrar: 5. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 7. 2013 | 23:25
LPGA: Chella Choi efst á Wegmans

Það er Chella Choi frá Suður-Kóreu sem leiðir eftir 1. dag Wegmans LPGA Championship. Í dag var 1. hringur leikinn en mótið var frestað í gær vegna óveðurs í NY. Choi lék Locust Hill golfvöllinn í NY á 5 undir pari, 67 höggum; fékk 6 fugla, 11 pör og 1 skolla. Í 2. sæti er landa hennar, fyrrum nr. 1 á Rolex-heimslistanum; Jiyai Shin, á 4 undir pari, 68 höggum, en hún deilir 2. sætinu með bandaríska stúlkunni Morgan Pressel. Í 4. sæti er Brittany Lincicome og 5. sætinu deila Jessica Korda og golfdrottningin suður-kóreanska Se Ri Pak. Cristie Kerr og Stacy Lewis sem voru búnar að heita að stöðva Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 7. 2013 | 23:00
PGA: English leiðir þegar St. Jude er hálfnað

Þegar FedEx St. Jude Classic mótið er hálfnað á TPC Southwind í Tennessee þá er það Harris English sem kominn er í forystu. Í kvöld átti hann besta skorið 64 glæsihögg þar sem hann fékk örn, 5 fugla, 11 pör og 1 skolla. Samtals er English búinn að spila á 10 undir pari, 130 högg (66 64). English á 2 högg á þann sem næstur kemur, Shawn Stefani, sem búinn er að leika á 8 undir pari, 132 höggum (67 65). Þriðja sætinu deila síðan Paul Haley II og Scott Stallings á 5 undir pari, hvor. Meðal þeirra sem ekki komust í gegnum niðurskurð voru: Ross Fisher, Guan Tianlang (14 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 7. 2013 | 19:30
Axel í 20. sæti á St. Andrews Links!!!

Axel Bóasson, GK, var nú rétt í þessu að ljúka leik á 1. degi St. Andrews Links Trophy 2013, en leikið var á Jubilee vellinum í dag. Axel var á sléttu pari, 72 höggum fékk 2 fugla og 2 skolla. Hann deilir 20. sætinu með 13 öðrum kylfingum eftir 1. dag. Þátttakendur eru 144 og mótið eitt sterkasta áhugamannamót heims. Í ljósi þessa er árangur Axels stórglæsilegur!!!! Í efsta sæti er „heimamaðurinn“ Ryan Evans á 4 undir pari, 66 höggum þ.e. aðeins 4 höggum á undan Axel. Sjá má stöðuna á St. Andres Links Trophy 2013 eftir 1. dag með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

