Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 9. 2013 | 10:00
Lyoness Open í beinni

Í dag fer fram lokahringurinn Lyoness Open powered by Greenfinity, en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni. Leikið er í Atzenbrugg, Austurríki og fer mótið fram dagana 6.-9. júní 2013. Leikið er á golfvelli Diamond Country Club. Meaðal þekktra kylfinga sem þátt taka í mótinu eru Spánverjinn Miguel Angel Jimenez en auk þess eru fjöldamargir aðrir m.a. áhugamaðurinn lítt þekkti Matthías Schwab frá Austurríki, sem þykir mikið efni og eins landi hans „heimamaðurinn“ Bernd Wiesberger, sem er eilítið þekktari. Jafnframt keppa kempur á borð við: Thomas Björn og James Kingston. Pablo Larrazabal og Robert Rock sem líka tóku þátt komust ekki í gegnum niðurskurð. Til þess að sjá frá Lyoness Open í beinni SMELLIÐ Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 9. 2013 | 09:30
LPGA: Pressel efst á Wegmans

Það er bandaríski kylfingurinn Morgan Pressel sem leiðir eftir 2. dag Wegmans LPGA Championship risamótinu á golfvelli Locust Hills í Pittsford, New York. Samtals er Pressel búin að spila á 6 undir pari, 138 höggum (68 70). Í 2. sæti 2 höggum á eftir eru nr. 1 á heimslista kvenna, Inbee Park og forystukona gærdagsins Chella Choi, báðar frá Suðu kvöld r-Kóreu á 4 undir pari, 140 höggum; Park (72 68) og Chella Choi (67 73). Í 6 af 8 efstu sætunum eru kvenkylfingar frá Asíu, að þessu sinni allar frá Suður-Kóreu. Spurningin er hvort Pressel takist að halda sínu eða einhver af þeim hreppi sigurinn í en í dag fara lokahringirnir tveir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 9. 2013 | 05:30
PGA: Shawn Stefani leiðir fyrir lokahring St. Jude Classic

Það er nýliðinn Shawn Stefani sem tekið hefir forystuna fyrir lokahring FedEx St. Jude Classic, sem leikinn verður í dag. Stefani er samtals búinn að spila á 12 undir pari, 198 höggum (67 65 66) og hafa allir hringir hans verið langt undir 70 (pari TPC Southwind). Aðeins 1 höggi á eftir er Harris English á 11 undir pari, 199 höggum (66 64 69). Þriðja sætinu deila síðan Patrick Reed, Scott Stallings og Nicholas Thompson (bróðir Lexi Thompson). Allir eru þeir búnir að spila á 8 undir pari, 202 höggum; Reed (69 69 64); Stallings (67 68 67) og Thompson (67 69 66). Sjötta sætinu deila síðan Phil Mickelson og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2013 | 23:59
Golfgrín á laugardegi

Tiger í Nepal Tiger Woods var kominn í þörf fyrir frí og flaug því til Nepal. En líkt og hver annar kylfingur í fríi hvíldist hann ekkert nema að fara út á golfvöll og þarna varð hann bara að spila á því sem í boði var á staðnum – fjallagolfvöll, sem var hátt uppi í Himalaya-fjöllunum. Þeir í golfklúbbnum þarna voru yfir sig ánægðir yfir að fá Tiger í heimsókn en þeim þótti mjög leitt að geta ekki boðið honum upp á kaddý, þar sem búið var að panta alla Sherpana, sem venjulega gegndu störfum kylfubera, í fjallaleiðangra á Everest. En þeir í klúbbnum fullvissuðu Tiger um að jak-uxi myndi Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2013 | 20:00
Íslandsbankamótaröðin (2): Viðtal við Ingvar Andra Magnússon

Hér kemur viðtal sem hefði í raun átt að birtast fyrir tæpri viku, en þá stóð Ingvar Andri Magnússon, GR, 12 ára, uppi sem sigurvegari á 2. móti Íslandsbankamótaraðarinnar, sem fram fór á Strandarvelli á Hellu. Þá voru hann og Kristján Benedikt Sveinsson, GHD, efstir og jafnir í flokki 14 ára og yngri drengja á samtals 8 yfir pari, 148 höggum. Eftir hefðbundnar 36 holur varð því að fara fram bráðabani milli þeirra, þar sem Ingvar Andri vann á 2. holu. Hér fer stutt viðtal við sigurvegarann Ingvar Andra en ítarlegra viðtal hann birtist á morgun. Golf 1: Innilega til hamingju með sigurinn á 2. móti Íslandsbankaraðarinnar á Hellu. Er Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2013 | 19:00
Eimskipsmótaröðin (2): Viðtal við Fannar Inga Steingrímsson

Fannar Ingi Steingrímsson, GHG, er aldeilis búinn að slá í gegn úti í Eyjum leiddi eftir 1. dag 2. móts Eimskipsmótaraðarinnar, Securitas-mótinu á glæsilegu skori 5 undir pari. Það er ekki nema vika síðan að hann sigraði á 2. móti Íslandsbankamótaraðarinnar á Hellu á skori upp á 9 undir pari, 61 höggi seinni daginn. Í dag hélt Fannar Ingi sínu á Vestmannaeyjavelli lék á sléttu pari og er því samtals á 5 undir pari, 135 höggum, aðeins einu höggi á eftir forystumanni 2. dags Andra Þór Björnssyni, GR. Golf 1 tók stutt viðtal við Fannar Inga: Golf 1: Fannar Ingi innilega til hamingju með alla glæsihringina þína að undanförnu, 61 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2013 | 18:30
Eimskipsmótaröðin (2): Viðtal við Andra Þór Björnsson sem leiðir eftir 2. dag í Eyjum!

Andri Þór Björnsson, GR átti frábæran hring á 2. degi 2. móts Eimskipsmótaraðarinnar, Securitas-mótinu úti í Eyjum í dag. Hann lék í tveimur orðum ótrúlega flott golf – var á 6 undir pari, 64 höggum. Golf 1 tók stutt viðtal við Andra Þór. Golf 1: Sæll Andri Þór og til hamingju með þennan flotta hring! Hvað var að ganga upp í dag? Andri Þór: Ég var að pútta vel og chippa og stutta spilið var í lagi. Golf 1: Hvernig er að vera farinn að spila aftur á Íslandi miðað við Louisiana? Andri Þór: Það er breyting eins og allir væntanlega gera sér grein fyrir. Það er meiri vindur og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2013 | 17:30
Eimskipsmótaröðin (2): Andri Þór á 64 glæsihöggum í Eyjum!!!

Andri Þór Björnsson, GR, var að ljúka 2. hring á 2. móti Eimskipsmótaraðarinnar, Securitas-mótinu, sem fram fer úti í Eyjum. Andri Þór lék á 6 undir pari, 64 glæsihöggum!!! Andri Þór fékk hvorki fleiri né færri en 7 fugla og örn (á par-5, 16. brautinni) , 7 pör en líka 3 skolla!!! Stórglæsilegur hringur hjá Andra Þór!!! Andri Þór er því samtals búinn að spila á 6 undir pari, 134 höggum (70 64) og hefir tekið forystu í mótinu en örfáir eiga eftir að ljúka leik og spennan mikil hvort Andri Þór hafi með flottum hring sínum í dag náð forystunni í mótinu. Nú rétt í þessu voru tölur að Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2013 | 17:25
Birgir Leifur í 13. sæti eftir 3. dag!

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, tekur þátt í D + D Czech Challenge Open, en mótið er hluti af Áskorendamótaröð Evrópu. Mótið fer fram í Golf & Spa Kunetická Hora í Drftec, í Tékklandi dagana 6.-9. júní 2013. Samtals er Birgir Leifur búinn að spila á samtals 11 undir pari, 205 höggum (69 65 71) og deilir 13. sætinu með Raymond Russell frá Skotlandi!!! Glæsilegt hjá Birgi Leif! Það verður gaman að sjá í hvaða sæti Birgir Leifur lendir á morgun, lokadag mótsins. Golf 1 óskar Birgir Leif góðs gengis!!! Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag á Czech Open SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2013 | 17:00
Axel lék aftur á 72

Axel Bóasson, GK, var nú rétt í þessu að ljúka leik á 2. degi St. Andrews Links Trophy 2013, en leikið var aftur á Jubilee vellinum í dag. Axel var á sléttu pari, 72 höggum líkt og í gær en í dag fékk hann 4 fugla, 2 skolla og 1 skramba. Stendur er Axel í 12. sæti, en fjölmargir þ.á.m. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, eiga eftir að ljúka leik þannig að sætistalan getur raskast. Þátttakendur eru 144 og mótið eitt sterkasta áhugamannamót heims Sjá má stöðuna á St. Andres Links Trophy 2013 eftir 1. dag með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

