Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 9. 2013 | 18:20

St. Jude Classic í beinni

Mót vikunnar á PGA Tour er FedEx St. Jude Classic, en leikið er á  TPC Southwind golfvellinum í Memphis, Tennessee. Sá sem á titil að verja er Dustin Johnson. Sjá má St. Jude Classic í beinni með því að  SMELLA HÉR: Hér má sjá stöðuna á St. Jude Classic SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 9. 2013 | 18:15

Birgir Leifur varð í 30. sæti

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, tók  þátt í D + D Czech Challenge Open, en mótið er hluti af Áskorendamótaröð Evrópu.  Mótið fór fram í Golf & Spa Kunetická Hora í Drftec, í Tékklandi dagana 6.-9. júní 2013 og lauk því í dag. Samtals lék Birgir Leifur á samtals 8 undir pari,  280 höggum (69 65 71 75) og fór niður í 30. sætið eftir hring upp á 3 yfir pari í dag.  Á lokahringnum fékk Birgir Leifur 1 örn, 12 pör og 5 skolla.  Fyrir góða frammistöðu sína hlaut Birgir Leifur € 1.184 í verðlaun. Sigurvegari í mótinu varð Frakkinn François Calmels en hann lék á samtals 22 undir pari. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 9. 2013 | 17:55

Axel lauk keppni í 12. sæti

Axel Bóasson, GK, lauk í dag keppni á St. Andrews Links Trophy 2013, en leikið var á Old Course. Axel var á einu yfir pari lokahringinn, 73 höggum og fékk 5 fugla, 4 skolla og 1 skramba (á 17. holuna). Samtals lék Axel á 1 yfir pari (72 72 72 73).  Frábært glæsiskor hjá Axel í vöggu golfíþróttarinnar, en í mótinu var spilað bæði á Jubilee og Old Course völlunum. Þátttakendur voru 144 og mótið eitt sterkasta áhugamannamót heims.  Axel varð í 12. sæti sem er stórkostlegur árangur!!! Sjá má úrslitin á St. Andres Links Trophy 2013  með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 9. 2013 | 17:45

Evróputúrinn: Luiten sigraði á Lyoness

Það var hollenski kylfingurinn Joost Luiten, sem stóð uppi sem sigurvegari á Lyoness Open powered by Greenfinity sem fram hefir farið undanfarna daga í Diamond golfklúbbnum í Atzenberg, Austurríki. Luiten spilaði á samtals 17 undir pari 271 höggi (65 68 67 71) og hlaut að launum €166.660,- Luiten er 27 ára, fæddur 7. janúar 1986 og er frá Bleiswijk í Hollandi.  Þetta er 2. sigur hans á Evrópumótaröðinni, en sá fyrsti kom fyrir 2 árum á Iskander Johor Open mótinu í Malasíu, þ. 20. nóvember 2011. Í 2. sæti, 2 höggum á eftir Luiten varð Daninn Thomas Björn á 15 undir pari, 273 höggum (71 70 64 68) og má Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 9. 2013 | 17:30

Eimskipsmótaröðin (2): Úrslit

Nú í dag lauk 2. móti Eimskipsmótaraðarinnar, Securitas mótinu í Vestmannaeyjum, sem stóð 7.-9. júní. Sigurvegarar eru þau Haraldur Franklín Magnús, GR og Anna Sólveig Snorradóttir GK. Þátttakendur að þessu sinni, sem luku keppni voru 76; 62 í karlaflokki og 14 í kvennaflokki. Langflestir þátttakendur voru úr GR eða 18 talsins; næstflestir úr GKG eða 14 og þar á eftir þátttakendur úr GK 12 og GKJ 9 (en samtals þessir 4 klúbbar með 53 keppendur, sem luku keppni). Úrslitin í heild eru eftirfarandi: Í kvennaflokki: 1 Anna Sólveig Snorradóttir GK 4 F 39 38 77 7 74 72 77 223 13 2 Signý Arnórsdóttir GK 3 F 37 40 77 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 9. 2013 | 17:00

Afmæliskylfingur dagsins: Sævar Ómarsson – 9. júní 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Sævar Ómarsson. Sævar er fæddur 9. júní 1983 og á því 30 ára stórafmæli í dag. Afmæliskylfingurinn er í Golfklúbbnum Kili í Mosfellsbæ. Sævar er kvæntur Magdalenu Dubik. Komast má á facebooksíðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan Sævar Ómarsson (30 ára stórafmæli – Innilega til hamingju!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Robert Sowards, 9. júní 1968 (45 ára);  Keith Horne, 9. júní 1971 (42 árs). Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 9. 2013 | 15:45

Eimskipsmótaröðin (2): Haraldur Franklín sigraði í Eyjum!!!

Haraldur Franklín Magnús, GR, Íslandsmeistari í höggleik og holukeppni 2012, sigraði í dag á 2. móti Eimskipsmótaraðarinnar, Securitas-mótinu úti í Eyjum. Haraldur Franklín lék samtals á 1 undir pari, 209 höggum (67 70 72). Hann fékk 3 fugla, 10 pör og 5 skolla í dag, þegar svo virtist sem skýfall yrði í Vestmannaeyjum, en spilað var við erfiðar aðstæður, rigningu og kulda.  Þetta er stórglæsilegur árangur hjá Haraldi Franklín!!!! Í 2. sæti var Björgvin Sigurbergsson, GK, á sléttu pari aðeins 1 höggi á eftir Haraldi Franklín. Björgvin lék samtals á 210 höggum (67 72 71). Þriðja sætinu deildu síðan heimamaðurinn Örlygur Helgi Grímsson, GV og Ragnar Már Garðarsson, GKG á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 9. 2013 | 13:13

Eimskipsmótaröðin (2): Anna Sólveig sigraði á Securitas mótinu!!!

Anna Sólveig Snorradóttir, úr Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði var í þessu að sigra kvennaflokkinn á 2. móti Eimskipsmótaraðarinnar, Securitas mótinu, sem fram hefir farið á Vestmannaeyjavelli, dagana 7.-9. júní 2013. Anna Sólveig spilaði á samtals 13 yfir pari, 223 höggum (74 72 77).  Hún átti 1 högg á þá sem varð í 2. sæti klúbbfélaga sinn Signýju Arnórsdóttur, GK, sem einnig lék lokahringinn á 77 höggum en það dugði ekki til sigurs.  Samtals lék Signý á 14 yfir pari, 224 höggum (75 72 77). í 3. sæti varð Karen Guðnadóttir, GS á 16 yfir pari, 225 höggum (75 73 78). í 4. sæti varð síðan Ingunn Gunnarsdóttir, GKG á samtals Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 9. 2013 | 13:00

Matt Kuchar einn heitasti kylfingurinn á US Open

Matt Kuchar er vinsæll kylfingur.  Alltaf brosandi og jákvæður. Og svo er hann líka stórgóður kylfingur…. Hann er sá eini fyrir utan Tiger sem tekist hefir að sigra oftar en 1 sinni á PGA Tour á þessu ári. Kuchar er núverandi heimsmeistari í holukeppni og síðan sigraði hann The Memorial móti Jack Nicklaus fyrir viku síðan, þegar hann átti 2 högg á Kevin Chapell. Fyrir sigurinn hlaut hann $4,333,082,- Það varð til þess að Kuchar skaust upp í 4. sæti á heimslistanum, sem er það hæsta sem hann hefir náð á þeim lista. Með síðasta sigrinum, sem er sá 6. á ferlinum, náði Kuchar jafnframt 35. topp-10 árangri sínum frá 2010, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 9. 2013 | 10:45

Elín Nordegren æf út í samband Tiger við Lindsey

Fréttir hafa borist af því að Elín Nordegren sé ekkert alltof hamingjusöm með samband fyrrum eiginmanns síns Tiger Woods og skíðadrottningarinnar Lindsey Vonn. Heimildarmaður sagði slúðurblaðinu US Weekley: „Hún hatar Lindsey Vonn og allt í sambandi við þennan rómans.“ HÉR MÁ SJÁ MYNDIR AF TIGER WOODS AÐ DEITA LINDSEY VONN Vonn og Woods opinberuðu samband sitt í síðasta mánuði og hafa síðan sést á ýmsum high-profile viðburðum s.s. hinni árlegu Met Gala í New York. En hin 33 ára Elín Nordegren er ekkert ánægð með samband þeirra, fremur en hún var ánægð með aðrar konur í lífi Tiger. HÉR MÁ SJÁ MYNDIR AF KONUNUM Í LÍFI TIGER WOODS Reyndar er Lesa meira