Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 11. 2013 | 09:15

Sharmila flutt til London

Sharmila Nicollet, 22 ára, gullfallegi indverski atvinnukylfingurinn, sem m.a. hefir setið fyrir hjá Vogue, Marie-Claire og Elle, hefir ákveðið að London verði 2. heimili hennar utan Bangalore í Indlandi. Hún spilar nú reglulega í Buckinghamshire Golf Club, þar sem ISPS Handa Ladies European Masters fer fram og vonar að hún hljóti forskot umfram hina félaga sína á LET, en mótið fer fram 26.-28. júlí n.k. Hún hefir nú æft og verið í þjálfun á vellinum s.l. mánuði og sagði: „Ég er mjög spennt að vera að spila á Buckinghamshire velli og rétt hjá London. Ég elska völlinn, elska fólkið á honum og get ekki beðið eftir að keppa í London. Ég Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 11. 2013 | 08:00

Tiger og Garcia tókust í hendur

Deila Tiger og Sergio Garcia hefir farið fjöllunum hærra í golffjölmiðlum á undanförnum mánuðum.  Allt frá því Garcia kenndi Tiger um að taka kylfu úr poka sínum og trufla sig með því þar sem áhorfendur á the Players fóru að klappa að því að Garcia sagðist á blaðamannafundi fyrir BMW PGA mótið í Wentworth myndu bera fram „djúpsteiktan kjúkling“ fyrir Tiger, ef hann byði honum í mat á Opna bandaríska. Og nú í þessari viku hefst einmitt Opna bandaríska á Merion golfvellinum, í Ardmore, Pennsylvaníu. Flestar stórtstjörnurnar eru mættar og eru að æfa sig fyrir mótið og Tiger og Garcia þar engin undantekning. Þeir hittust á æfingasvæði Merion í gær Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 11. 2013 | 07:55

Heimslistinn: English í 84. sæti

Harris English sigraði á FedEx St. Jude Classic nú um helgina en þetta var fyrsti sigur hans á PGA Tour. Fyrir utan að hljóta tékka upp á rúma $ 1 milljón dollara fór English inn á topp-100 á heimslistanum. Fyrir síðustu helgi var English enn í 139. sætinu en hækkar sig um 55 sæti og er kominn í 84. sætið. Hollendingurinn Joost Luiten, sem var að vinna 2. mót sitt á Evrópumótaröðinni, þ.e. Lyoness Open í Austurríki er sömuleiðis kominn á topp-100, hækkaði sig um 41 sæti úr 137 í 96. sætið. Lítil breyting er meðal efstu 10 á heimslistanum. Engar breytingar eru meðal efstu 5: Tiger er enn í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 10. 2013 | 14:30

Eimskipsmótaröðin (2): Viðtal við Harald Franklin sigurvegara Securitas mótsins

Haraldur Franklín Magnús, GR, vann glæsilegan sigur á 2. móti Eimskipsmótaraðarinnar, Securitas-mótinu úti í Eyjum nú um helgina. Haraldur Franklín var samtals á 1 undir pari,  209 höggum (67 70 72). Golf 1 tók stutt viðtal við sigurvegarann: Golf 1: Haraldur, innilega til hamingju með sigurinn úti í Eyjum, er þetta fyrsti þinn sigurinn þar og ertu vel kunnugur Vestmannaeyjavelli? Haraldur Franklín:  Já, þetta er fyrsti sigurinn. Ég hef spilað mikið undanfarið þar, en spilaði helling úti í Eyjum í unglingamótum og svo í svona 5 karlamótum. Golf 1: Áttu þér einhverja uppáhaldsbraut á Vestmannaeyjavelli? Haraldur Franklín:  Mér finnst náttúrlega, 2. brautin rosalega skemmtileg. Þó hún sé stutt er hún Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 10. 2013 | 12:00

Afmæliskylfingar dagsins: Sóley Erla Ingólfsdóttir og Ludviga Thomsen – 10. júní 2013

Afmæliskylfingar  dagsins eru tveir Sóley Erla Ingólfsdóttir og Ludviga Thomsen frá Færeyjum.  Þær eiga báðar stórafmæli í dag Sóley Erla er 41 árs fædd 10. júní 1972 og Ludviga er 51 árs, fædd 10. júní 1962. Sóley Erla er móðir kylfingsins Ingólfs Orra Gústafssonar og Ludviga er mikill áhugamaður um golf. Komast má á facebook síðu afmæliskylfinganna til þess að óska þeim til hamingju með daginn hér fyrir neðan: Ludviga Thomsen (51 árs) Sóley Erla Ingólfsdóttir (41 árs) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Hee-Won Han, 10. júní 1978 (35 ára);  Anna Nordqvist, 10. júní 1987 (26 ára)  ….. og …..   Benedikt S. Lafleur (48 ára) Daníel Einarsson, GSG (54 ára) Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 10. 2013 | 09:45

GKB: Örn Rúnar og Garðar Ingi sigruðu á Stóra Texas Scramble mótinu

Stóra Texas mótið var haldið á Kiðjabergsvelli laugardaginn 8 júní Skráð lið voru 60 en 57 lið mættu og luku keppni. þeir sem unnu til verðlauna voru eftirfarandi. Nándarverðlaun: 3. Braut Sigurður Aðalsteinsson 2,70m. 7. Braut  Sigurður Sigfússson 2,30m. 12. Braut Ásdís Brá Höskuldsdóttir 1,48m. 16. Braut Eiríkur Ben 0,81m 18. Braut í tveim höggum Guðmundur Ingvi Einarsson 1,52m Úrslit í mótinu keppnisform höggleikur með forgjöf : 1 sæti Örn Rúnar Magnússon og Garðar Ingi Leifsson 65 högg netto. 2 sæti Snorri Hjaltason og Brynhildur Sigursteinsdóttir 66 högg netto. 3 Sæti Björn þór Hilmarsson og Guðmundur Ingvi Einarsson 66 högg netto. 4 sæti Daði Valgeir Jakobsson  Björg Hildur Daðadóttir 66 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 10. 2013 | 09:30

5 frægustu US Open í Pennsylvaníu (1/5)

Nú í vikunni hefst 2. risamót ársins í karlagolfinu Opna bandaríska (ens. US Open). Þetta er í 16. skipti, sem mótið er haldið í Pennsylvaníu og hefir það næstoftast verið haldið í því ríki Bandaríkjanna, á eftir New York. Það er nóg af eftirminnilegum augnablikum á Opna bandaríska í gegnum tíðina frá því þegar mótið hefir farið fram í Pennsylvaníu. Ben Hogan vann t.a.m. 2 af 4 US Open sigrum sínum í Pennsylvaníu, hetjusigur 1950 á Merion og yfirburðasigur í Oakmont 3 árum síðar.  Byron Nelson vann eina US Open mót sitt í Philadelphiu.  Jack Nicklaus og Ernie Els unnu fyrstu US Open titla sína í Pittsburgh (PA). Í fyrsta Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 10. 2013 | 00:30

LPGA: Inbee vann eftir bráðabana

Nr. 1 á Rolex-heimslistanum, Inbee Park frá Suður-Kóreu, stóð uppi sem sigurvegari á Wegmans LPGA Championship, risamótinu, sem fram fór í á golfvelli Locust Hills í Pittsford, New York. Inbee og hin skoska Catriona Matthews voru efstar og jafnar eftir 54 holur; báðar búnar að spila á samtals 5 undir pari, 283 höggum; Matthews (71 71 73 68) og Inbee á (72 68 68 75).  Það varð því að fara fram bráðabani milli þeirra sem Inbee vann á 3. holu með fugli meðan Matthews fékk skolla. Í 3. sæti urðu Suzann Pettersen og Morgan Pressel, báðar á samtals 4 undir pari. Caroline Hedwall með Eygló Myrru Óskarsdóttur á pokanum lauk keppni Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 9. 2013 | 23:00

PGA: English sigurvegari

Það var bandaríski kylfngurinn Harris English, frá Valdosta í Georgíu,  sem sigraði á FedEx St. Jude Classic, sem lauk fyrir skömmu. English átti 2 högg á þá sem næstir komu. Hann lék á samtals 12 undir pari, 268 höggum (66 64 69 69).  Golf 1 kynnti Harris English á sínum tíma þegar hann var nýliði á túrnum og má rifja þá kynningu upp með því að SMELLA HÉR:  Þetta er fyrsti sigur English á PGA Tour, en hann á þar að auki 1 sigur sem atvinnumaður á Web.com tour; Nationwide Children Hospitals Invitational, sem hann vann 24. júlí 2011. Öðru sætinu deildu Scott Stallings og Phil Mickelson á samtals 10 undir pari, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 9. 2013 | 19:00

Viðtalið: Ingvar Andri Magnússon, GR

Ingvar Andri Magnússon, GR er bara 12 ára en er þegar búinn að vinna sitt fyrsta gull á Unglingamótaröðinni – nú Íslandsbankamótaröðinni.  Það gerðist á Hellu fyrir viku, 2. júní á Strandarvelli þegar hann hafði betur í tveggja holu bráðabana við Kristján Benedikt Sveinsson, GHD, en báðir voru hnífjafnir eftir 36 holu leik, á 8 yfir pari, 148 höggum. Viðtalið í kvöld er við Ingvar Andra: Fullt nafn:  Ingvar Andri Magnússon. Klúbbur:  GR. Hvar og hvenær fæddistu?   Ég fæddist í Reykjavík, 29. september 2000. Hvar ertu alinn upp?   Í Reykjavík. Hverjar eru fjölskylduaðstæður og spilar einhver í fjölskyldunni golf?  Foreldrar mínir og tvö yngri systkini spila ekki golf, en afi Lesa meira