Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 12. 2013 | 12:30
Afmæliskylfingur dagsins: Sigurpáll Geir Sveinsson – 12. júní 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Sigurpáll Geir Sveinsson. Sigurpáll Geir fæddist 12. júní 1975 og er því 38 ára í dag. Sigurpáll er þekktastur í dag, fyrir að vera golfkennari, sem m.a. sér um allt afreksstarfhjá Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Eins er Sigurpáll Geir formaður PGA á Íslandi. Sigurpáll byrjaði í golfi árið 1989, þá 14 ára. Hann var í íslenska landsliðinu í golfi á árunum 1992-2003, en á þeim árum var hann í Golfklúbbi Akureyrar. Sigurpáll varð m.a. þrívegis Íslandsmeistari karla (1994, 1998 og 2002) og þrisvar sinnum í sveitakeppni. Árið 2003 gerðist Sigurpáll atvinnumaður. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 12. 2013 | 12:00
Ainsley með 19 högg á 1 holu

Það hefir eflaust ekki farið fram hjá neinum að Opna bandaríska risamótið hefst á morgun á Merion golfstaðnum, í Ardmore, Pennsylvaníu. Hér er rifjað upp eitt af þessum metum á mótinu í gegnum tíðina sem enginn vill brjóta en það er hæsta skor á 1 holu á Opna bandaríska. Það var sett á 2. hring árið 1938 í Cherry Hills Country Club nálægt Denver í Texas. Ray Ainsley hitti bolta sinn því miður í ánna sem rennur meðfram 16. holu á vellinum. Ainsley átti nokkra mögulega hvernig hann kæmi sér úr ánni m.a. með því að taka víti og droppa boltanum. Hann kaus samt að spila boltanum þar sem hann Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 12. 2013 | 11:30
Mickelson ekki á æfingu af fjölskylduástæðum

Phil Mickelson var ekki í Merion Golf Club í gær að undirbúa sig fyrir U.S. Open risamótið, sem hefst á morgun vegna þess að hann fór heim til San Diego, í Kaliforníu til þess að vera viðstaddur útskrift dóttur sinnar Amöndu úr 8. bekk. Mickelson, sem á 43 ára afmæli n.k. sunnudag var í Merion fyrir tveimur vikum, tveimur dögum áður en hann tók þátt í FedEx St Jude Classic í Memphis, þar sem hann var alla síðustu 3 hringina á skori upp á 60 og eitthvað og lauk keppni jafn öðrum í 2. sæti, 2 höggum á eftir sigurvegaranum Harris English. Mickelson kom til Merion á mánudag en fékk Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 12. 2013 | 11:00
5 frægustu US Open í Pennsylvaníu (2/5)

Á morgun hefst í Ardmore, Pennsylvaníu 113. US Open risamótið á Austurvelli Merion golfstaðarins. Hér á Golf 1 verða rifjuð upp 5 frægustu US Open mótin, sem haldin hafa verið í Pennsylvaníu. Talið er niður og hefir þegar verið fjallað um mótið í 5. sæti, hér verður fjallað um það mót sem er í 4. sæti yfir 5. frægustu US Open í Pennsylvaníu. 4. Margir telja að US Open mótið sem haldið var árið 1973 í Oakmont, Pennsylvaníu, eitt besta mót bandaríska kylfingsins Johnny Miller. Oakmont er talinn meðal erfiðustu golfvalla sem US Open hefir verið haldið á, þó völlurinn hafi verið mýkri en oft áður vegna þess að vökvunarkerfið Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 11. 2013 | 23:00
Sunna best á 1. hring

Það voru heldur erfiðar aðstæður, sem keppendur á Ladies’ British Open Amateur Championship, sem hófst í morgun þurftu að glíma við, mikill vindur og rigning. Sunna Víðisdóttir, GR lék best Íslensku keppendana eða á 76 höggum, 4 yfir pari hún er sem stendur í 47.-62. sæti. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR, lék á 77 höggum, 5 yfir pari og er í 63.-80. sæti. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, lék á 79 höggum, 7 yfir pari og er í 90.-103. sæti. Á morgun verða leiknar 18 holur en eftir þann hring kemur í ljós hverjar fara áfram í holukeppnina, en 64 kylfingar komast áfram. Caroline Nistrup frá Danmörku lék best allra í dag Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 11. 2013 | 16:00
Monty: Áhorfendur munu púa á Garcia

Colin Montgomerie er viss um að Sergio Garcia muni hljóti ansi fjandsamlegar viðtökur hjá bandarískum áhorfendum á Opna bandaríska, jafnvel þó nú virðist sem hann hafi beðið Tiger afsökunar á „djúpsteiktar kjúklings“ kommenti sínu. Aðspurður um hvort áhorfendur myndu púa á Garcia þá sagði Monty: „Já, ég er ansi hræddur um það, sem er sorglegt fyrir leikinn.“ „Við verðum að muna að við erum aðeins í nokkurra klukkustunda fjarlægð frá New York; þetta eru líflegir áhorfendur og ég held að það verði púað á hann (á Merion í Pennsylvaníu).“ „Við töluðum saman í Wentworth (á BMW PGA Championship) þegar ég sagði „Vel gert hjá þér að ná niðurskurði,“ og hann (Garcia) Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 11. 2013 | 13:00
Afmæliskylfingur dagsins: Rúnar Arnórsson – 11. júní 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Rúnar Arnórsson. Rúnar er fæddur 11. júní 1992 og á því 21 ára afmæli í dag!!! Rúnar er afrekskylfingur í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði og er í afrekshóp GSÍ. Hann spilar á Eimskipsmótaröðinni, líkt og systir hans Signý Arnórsdóttir, sem leiddi lengi vel nú um helgina í kvennaflokki á Securitas mótinu, 2. móti Eimskipsmótaraðarinnar úti í Vestmannaeyjum; en þau systkinin tóku bæði þátt. Rúnar (lengst t.h.) á 2. móti Eimskipsmótaraðarinnar Sjá má nýlegt viðtal Golf 1 við Rúnar með því að SMELLA HÉR: Komast má á facebooksíðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Rúnar Arnórsson (21 árs!!! – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 11. 2013 | 10:30
Eimskipsmótaröðin (2): Viðtal við Önnu Sólveigu sigurvegara Securitas mótsins

Anna Sólveig Snorradóttir, GK, vann fyrsta sigur sinn á Eimskipsmótaröðinni í gær á 2. móti mótaraðarinnar, Securitas mótinu úti í Eyjum. Anna Sólveig lék á samtals 13 yfir pari, 223 höggum (74 72 77). Golf 1 tók stutt viðtal við Önnu Sólveigu. Golf 1: Innilega til hamingju með fyrsta sigurinn á Eimskipsmótaröðinni! Hvað varð til þess að þú sigraðir? Anna Sólveig: Ætli það hafi ekki bara verið það að ég fékk ekki neinar sprengjur , ég var ekki out of bounds, hélt boltanum inni á vellinum og var að spila mjög stöðugt golf. Golf 1: Hvað er þér eftirminnilegast frá þessari helgi? Anna Sólveig: Ég veit það ekki – að Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 11. 2013 | 10:10
3 keppa í Ladies British Open Am

The Ladies’ British Open Amateur Championship hófst í morgun en þetta er 111 sinn sem það fer fram. Mótið er haldið í Suður Wales og er leikið á Machynys Peninsula vellinum sem er strandvöllur (links) hannaður af Jack Nicklaus. Þáttökurétt hafa kvenkyns áhugakylfingar sem eru í viðurkendum golfklúbbum og hafa ekki hærri forgjöf en 2,4, hámarkafjöldi keppanda takmarkaður við 144 kylfinga. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Sunna Víðisdóttir, GR keppa á mótinu en Brynjar Eldon Geirsson er liðsstjóri. Eins og áður sagði þá hófst mótið í dag með 36 holu höggleik, leiknar verða 18 holur í dag og á morgun. Eftir morgundaginn kemur svo í ljós Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 11. 2013 | 09:30
GÚ: Gunnhildur setti nýtt vallarmet!

Rúmlega 50 keppendur tóku þátt í SoHo Market vormótinu í Úthlíð s.l. laugardag, 8. júní 2013. Gunnhildur Kristjánsdóttir í GKG setti nýtt vallarmet á rauðum teigum. Lék á 73 höggum eða 3 yfir pari vallarins. Úrslit í punktakeppni urðu eftirfarandi: Karlaflokkur: 1. Björgvin J. Jónhannsson 38 punktar (16/22) 2. Þráinn Hauksson 38 punktar (18/20) 3. Hreinn Sesar Hreinsson 38 punktar (19/19) Kvennaflokkur: 1. Kristrún Runólfsdóttir 35 punktar (16/19) 2. Heiðrún Líndal Kjartansdóttir 35 punktar (17/18) 3. Hjördís Björnsdóttir 35 punktar (18/17) Til þess að sjá myndaseríu frá Soho Market mótinu í Úthlíðinni SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

