Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 16. 2013 | 17:00
Íslandsbankamótaröðin (3): Gísli Sveinbergs Íslandsmeistari í holukeppni í drengjaflokki

Í dag fóru fram 4 manna úrslitaleikir í flokki 15-16 ára drengja á 3. móti Íslandsbankamótaraðarinnar, þ.e. Íslandsmótinu í holukeppni. Leikið var á Leirdalsvelli hjá GKG í Kópavoginum. Leikirnir í 4 manna úrslitunum í drengjaflokki fóru á eftirfarandi máta: Gísli Sveinbergsson, GK g. Birgi Birni Magnússyni, GK 1&0 Óðinn Þór Ríkharðsson, GKG g. Vikari Jónassyni, GK 6&4 Leikurinn um 3. sætið fór því fram milli Birgis Björns og Vikars Jónassonar og vann Birgir Björn 6&5. Úrslitaleikurinn um Íslandsmeistaratitilinn fór síðan fram milli Gísla og Óðins Þórs og var það Gísli sem stóð uppi sem Íslandsmeistari í holukeppni í piltaflokki, 4&3.
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 16. 2013 | 16:00
Íslandsbankamótaröðin (3): Ólöf María Íslandsmeistari í holukeppni í stelpuflokki!

Í dag fóru fram 4 manna úrslitaleikir í flokki 14 ára og yngri stelpna á 3. móti Íslandsbankamótaraðarinnar, þ.e. Íslandsmótinu í holukeppni. Leikið var á Leirdalsvelli hjá GKG í Kópavoginum. Leikirnir í 4 manna úrslitunum í stelpuflokki fóru á eftirfarandi máta: Gerður Hrönn Ragnarsdóttir, GR g. Heklu Sóley Arnarsdóttur, GK 4&3 Ólöf María Einarsdóttir, GHD g. Kingu Korpak GS 6&5 Leikurinn um 3. sætið fór því fram milli Heklu Sóley og Kingu og vann Hekla Sóley 2&1. Úrslitaleikurinn um Íslandsmeistaratitilinn fór því fram milli Ólafar Maríu og Gerðar Hrönn og var það Ólöf María, sem stóð uppi sem Íslandsmeistari í holukeppni í stelpuflokki flokki 2013, 4&3. Glæsilegt hjá þessari ungu stelpu Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 16. 2013 | 15:30
GÖ: Arnar Þór sigraði á Opna Classic

Í gær, laugardaginn 15. júní 2013 fór fram í Öndverðarnesinu Opna Classic mótið. Skráðir voru 125 og 120 luku keppni, þar af 21 kvenkylfingur. Leikformið var punktakeppni með forgjöf og veitt verðlaun fyrir 5 efstu sætin. Arnar Þór Hallsson, GKG, sigraði en hann var með 41 punkt. Hann hlaut í verðlaun 75.000 Icelandair vildarpunkta, gjafabréf í Bjórskólann fyrir 2 og Tuborg Classic kassa. Í 2. sæti varð Jón Páll Júlíusson, óklúbbbundinn með 39 punkta. Hann hlaut í verðlaun ársáskrift að Skjá Golf , gjafabréf í Bjórskólann fyrir 2 og tvær kippur af Tuborg Classic. Í 3. sæti var síðan Jón Ólafur Bergþórsson á 38 punktum (21 punkti á seinni 9) og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 16. 2013 | 15:15
GBB: Björg Sæmundsdóttir sigraði í Kalkmótinu
Á Liltueyrarvelli á Bíldudal fór í gær, laugardaginn 15. júní 2013 fram Kalkmótið. Þátttakendur voru 13 og leikformið höggleikur með og án forgjafar. Sigurvegari varð Björg Sæmundsdóttir úr Golfklúbbi Patreksfjarðar, GP, en hún vann höggleikinn bæði með og án forgjafar. Björg lék Litlueyrarvöll á 6 yfir pari, 76 höggum og átti 2 högg á þann sem næstur kom, heimamanninn Arnar Arnarsson í höggleiknum án forgjafar. Hún var á 70 höggum nettó og átti því enn 1 högg á Arnar í höggleik með forgjöf. Aðkomukonan sigraði því heimamennina 12, hvort heldur konur eða karla!!! Glæsilegt hjá Björg!!! Sjá má heildarúrslit í hér fyrir neðan í höggleik án forgjafar: Staða Kylfingur Klúbbur Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 16. 2013 | 15:00
GKB: Stefán Þór, Einar Ingvar og Íris sigruðu á 20 ára afmælismótinu – Myndasería

Í tilefni af 20 ára afmæli Golfklúbbs Kiðjabergs var haldið glæsilegt afmælismót í frábæru veðri, 19 stiga hita og sól, á Kiðjabergsvelli í gær, 15. júní. 146 keppendur tóku þátt og var uppselt í mótið. Margir voru að skora vel og en enginn þó betur en Einar Ingvar Jóhannsson úr NK sem var með 43 punkta og lækkaði því forgjöf sína verulega. Stefán Þór Hallgrímsson úr GKJ lék best í höggleik, kom inn á 72 höggum eða einu höggi yfir pari. Meðal kvenna var Íris Jónasdóttir, GJÓ með flesta punkta eða 37 glæsipunkta. Eins og áður segir þá lék veðrið við keppendur og góður rómur var gerður af vellinum og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 16. 2013 | 14:45
Afmæliskylfingur dagsins: Harpa Ævarrsdóttir – 16. júní 2013

Það er Harpa Ævarrsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Harpa er fædd 16. júní 1967 og á því 46 ára afmæli í dag!!! Hún er móðir Ævarrs Freys, afrekskylfings í GA og er dugleg að fylgja syninum hvert á land sem er, sem kaddý. Ævarr tekur einmitt þátt í 3. móti Íslandsbankamótaraðarinnar – Íslandsmótinu í holukeppni unglinga á Leirdalsvelli nú um helgina. Harpa vinnur hjá sýslumanninum á Akureyri, er ein af ofurlögfræðingum Norðurlands og sjálf ágætis kylfingur. Komast má á facebook síðu Hörpu til þess að óska henni til hamingju með daginn hér að neðan: Harpa Ævarrsdóttir (46 ára) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Old Tom Morris, 16. júní Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 16. 2013 | 14:30
Kormákur sigraði í Golfmóti Listamanna

Föstudaginn 14. júní 2013 fór fram Golfmót Listamanna, sem haldið hefir verið óslitið frá árinu 2010. Spilað var að þessu sinni á Setbergsvelli í Hafnarfirði, en Golfmót Listamanna hefir undanfarin ár m.a. farið fram á Nesvelli og hjá GOB. Þátttakendur að þessu sinni voru 34 og var leikformið punktakeppni með forgjöf. Í þetta sinn sigraði Kormákur Geirharðsson, GR, var með 33 punkta. Reyndar var Magdalena M Kjartansdóttir, GR, einnig með 33 punkta en Kormákur var betri á seinni 9 (var með 17 punkta en Magdalena 16). Í 3. sæti varð Björn Theódór Árnason, GO með 31 punkt. Hér má sjá úrslitin í heild á Golfmóti Listamanna 2013: 1 Kormákur Geirharðsson Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 16. 2013 | 13:30
US Open í beinni

Það hefir eflaust ekki farið fram hjá neinum að 2. risamót ársins í karlagolfinu hófst á fimmtudag á Merion golfstaðnum í Ardmore, Pennsylvaníu. Kylfingar spila hinn sögufræga Austurvöll. Efstir eftir 3. dag er það Phil Mickelson sem leiðir og gaman að sjá hvort hann heldur út og klárar mótið í kvöld! Útsending frá US Open hefst í dag kl. 13:30 Til þess að sjá frá US Open í beinni SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 16. 2013 | 11:00
GR: Ólafía Þórunn á besta skorinu á Vígslumóti Korpu – 69 höggum!!!

Í gær var Korpúlfsstaðavöllur vígður formlega sem fyrsti 27 holu golfvöllurinn á Íslandi. Eru 9 holu lykkjur hans 3: Sjórinn – Áin og Landið og voru Áin og Landið spiluð í vígslumótinu. Golf 1 var á staðnum og má sjá myndaseríu með því að SMELLA HÉR: Vígslan fór fram í formi innanfélagsmóts þar sem þátt tóku 184 félagsmenn, þar af 39 kvenkylfingar. Leikformið var höggleikur án forgjafar og veitt 1 verðlaun fyrir sigur þar og kynskipt punktakeppni með forgjöf, þar sem veitt voru glæsileg verðlaun fyrir efstu 3 sæti í punktakeppni bæði í karla- og kvennaflokki. Jafnframt voru veitt verðlaun á öllum par-3 holum Árinnar og Landsins. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 16. 2013 | 09:45
US Open: Mickelson enn efstur

Það er Phil Mickelson sem er efstur á 113. US Open mótinu í Pennsylvaníu eftir 3. hring og nú er spurningin bara hvort honum takist að halda forystunni í kvöld og sigra 1. US Open mótið sitt eftir að hafa verið metfjölda eða 5 sinnum í 2. sæti á þessu erfiða risamóti. Mickelson er samtals búinn að spila á 1 undir pari, 209 höggum (67 72 70). Í 2. sæti aðeins 1 höggi á eftir eru 3 kylfingar sem allir eiga eftir að vinna US Open risamót: Hunter Mahan, Steve Stricker og Charl Schwartzel, sem allir eru á sléttu pari. Fimmta sætinu deila síðan Luke Donald, Justin Rose og Billy Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

