Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 18. 2013 | 02:30
9 ára gutti með 58 í móti!

Þó völlurinn hafi aðeins verið 9 holu, 2,680-yarda langur völlur, þá er hér heldur betur um eftirtektarvert afrek að ræða. Hinn 9 ára ungi Zach Adams var á 58 (29 29) höggum þegar hann sigraði í Mount Pleasant Junior Golf Open nálægt Charleston í Suður-Karólínu, skv. frétt í Post and Courier Ekki öllum tókst svona vel upp í 2 daga mótinu – en aldursflokkur Zach lék 9 holur hvorn dag. Zach vann með 16 högga mun á næsta mann, sem gerir afrekið þeim mun eftirtektarverðara. „Þetta var virkilega gaman vegna þess að ég hélt bara áfram að pútta og vippa virkilega vel. Völlurinn var stuttur og púttin mín voru virkilega góð,“ sagði Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 18. 2013 | 01:45
Haraldur Franklín í 13. sæti

Haraldur Franklín Magnús, GR, er í 13. sæti eftir 1. dag Opna breska áhugamannamótsins sem hófst í gær á Royal Cinque Ports og Prince’s völlunum í Englandi. Þátttakendur eru 288 frá 29 löndum. Haraldur Franklín lék fyrsta hringinn á 1 yfir pari, 72 höggum. Á hringnum fékk Haraldur Franklín 3 fugla, 11 pör og 4 skolla. Axel Bóasson, GK og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, taka einnig þátt í mótinu en áttu heldur erfiða byrjun; Guðmundur Ágúst var í 80 höggum og er hann í 224. sæti eftir 1. dag og Axel lék á 81 höggi og er einnig í 224. sæti eftir 1. dag. Það eru aðeins 64 af 288, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 17. 2013 | 18:30
Golfgrín á mánudegi

Þetta er saga kylfings sem fór í margar golfferðir til Spánar. Í hvert sinn var hann búinn að kaupa sér pakka þar sem ekki þurfti að hafa áhyggjur af mat því pakkinn var „all inclusive“ þ.e. búið á hóteli, spilað á daginn og borðað á hótelinu í öll mál. Eitt skipti ákvað hann að breyta út af reglunni. Hann keypti sér ódýran farmiða, gisti á ódýru hóteli og ætlaði að verja öllu sem hann sparaði í að spila fleiri golfvelli og gera vel við sig í mat. Einn veitingastaðurinn virtist honum sérlega vinsæll. Honum var sagt að vinsælasti rétturinn á staðnum væru hreðjar nautsins, sem féll hverju sinni í nautaati Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 17. 2013 | 10:00
Gleðilegan Þjóðhátíðardag!

Golf 1 óskar lesendum sínum, kylfingum sem öðrum gleðilegs Þjóðhátíðardags! Á þessum degi fagna Íslendingar fæðingu Jóns Sigurðssonar frelsishetju Íslands í sjálfstæðisbaráttunni, en á fæðingardegi hans 1944 var lýðveldið Ísland stofnað á Þingvöllum. Jóns Sigurðsson var fæddur 17. júní 1811 og hefði hann orðið 202 ára í dag! Í dag, 17. júní fagna Íslendingar sjálfstæði sínu. Í boði eru 8 mót fyrir kylfinga víðsvegar um landið í dag: Á Siglufirði fer fram Þjóðhátíðarmót í boði Everbuild (17 skráðir); Á Seyðisfirði fer Auðbjargarmótið fram (56 skráðir); Á Ísafirði fer fram Þjóðhátíðarmót (10 skráðir) og á Bíldudal heldur Rafkaupsmótaröðin áfram (ekkert gefið upp um þátttakendur). 4 mót eru á höfuðborgarsvæðinu: hjá NK Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 17. 2013 | 03:00
US Open: Viðtal við sigurvegarann Justin Rose – Myndskeið

Justin Rose vitnaði í Trevino og sagðist hafa verið ástfanginn af stúlku sem héti Merion alla vikuna, sem hann vissi ekki eftirnafnið á. Þannig hefst viðtal við sigurvegara Opna bandaríska, Justin Rose, sem sjá má með því að SMELLA HÉR: Rose sagði að leikplanið og æfingarnar hefðu gengið upp og þetta hefði bara verið fullkomin vika. Hann sagði Merion hefði staðið undir væntingum og völlurinn verið erfiður; hann persónulega hefði talið að sigurskorið yrði 4 til 5 undir pari. Hann væri bara glaður að hafa verið sá sem stóð uppi sem sigurvegari.
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 17. 2013 | 01:30
US Open: Justin Rose fyrsti enski sigurvegarinn í 43 ár!

Enski kylfingurinn Justin Rose er sá fyrsti frá Englandi til að sigra US Open risamótið í 43 ár. Hann lék á samtals 1 yfir pari, 281 höggi (71 69 71 70) og átti 2 högg á þá sem næstir komu. Þetta er fyrsti risamótstitill Rose. Á 18. braut lenti teighögg Rose aðeins 3 metra frá frægum platta sem reistur var til minnis um sigur Ben Hogan á Merion 1950. „Þegar ég kom yfir hæðina og sá boltann minn liggja á miðri brautinni hugsaði ég með mér „þetta er tækifærið mitt,“ Þetta var ég að slá á miðja brautina,“sagði Rose eftir að sigurinn var í höfn. Og eins og venjulega var Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 16. 2013 | 19:30
Íslandsbankamótaröðin (3): Ragnar Már Íslandsmeistari í holukeppni í piltaflokki

Í dag fóru fram 4 manna úrslitaleikir í flokki 17-18 ára pilta á 3. móti Íslandsbankamótaraðarinnar, þ.e. Íslandsmótinu í holukeppni. Leikið var á Leirdalsvelli hjá GKG í Kópavoginum. Leikirnir í 4 manna úrslitunum í piltaflokki fóru á eftirfarandi máta: Ragnari Má Garðarssyni, GKG g. Kristni Reyr Sigurðssyni, GR 2&1 Aron Snær Júlíusson, GKG g. Agli Ragnari Gunnarssyni, GKG 6 &5 Leikurinn um 3. sætið fór því fram milli Kristins Reyr og Egils Ragnars og vann Kristinn Reyr 2&0. Úrslitaleikurinn um Íslandsmeistaratitilinn fór síðan fram milli Ragnar Más og Arons Snæs og var það Ragnar Már sem stóð uppi sem Íslandsmeistari í holukeppni í piltaflokki, 1&0 Ragnar Már var svo sannarlega vel Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 16. 2013 | 19:00
Íslandsbankamótaröðin (3): Anna Sólveig Íslandsmeistari í holukeppni í stúlknaflokki

Í dag fóru fram 4 manna úrslitaleikir í flokki 17-18 ára stúlkna á 3. móti Íslandsbankamótaraðarinnar, þ.e. Íslandsmótinu í holukeppni. Leikið var á Leirdalsvelli hjá GKG í Kópavoginum. Leikirnir í 4 manna úrslitunum í stúlknaflokki fóru á eftirfarandi máta: Gunnhildur Kristjánssdóttir, GKG g. Særósu Evu Óskarsdóttur, GKG 3&2 Anna Sólveig Snorradóttir, GK g. Bryndísi Maríu Ragnarsdóttur GKG 2&1 Leikurinn um 3. sætið fór því fram milli Bryndísar Maríu og Særósar Evu og vann Bryndís María 3&1. Úrslitaleikurinn um Íslandsmeistaratitilinn fór fram milli Önnu Sólveigar og Gunnhildar og var það Anna Sólveig, sem stóð uppi sem Íslandsmeistari í holukeppni í stúlknaflokki 2013, 2&1.
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 16. 2013 | 18:00
Íslandsbankamótaröðin (3): Arnór Snær Íslandsmeistari í holukeppni í strákaflokki!

Í dag fóru fram 4 manna úrslitaleikir í flokki 14 ára og yngri stráka á 3. móti Íslandsbankamótaraðarinnar, þ.e. Íslandsmótinu í holukeppni. Leikið var á Leirdalsvelli hjá GKG í Kópavoginum. Leikirnir í 4 manna úrslitunum í piltaflokki fóru á eftirfarandi máta: Arnór Snær Guðmundsson, GHD g. Sigurði Má Þórhallssyni, GR 2&1 Ingvar Andri Magnússon, GR g. Inga Rúnari Birgissyni, GKG 6 &5 Leikurinn um 3. sætið fór því fram milli Sigurðar Más Þórhallssonar, GR og Inga Rúnars Birgissonar, GKG og vann Sigurður Már 3&1. Úrslitaleikurinn um Íslandsmeistaratitilinn fór síðan fram milli Arnórs Snæs og Ingvars Andra og var það Arnór Snær Guðmundsson úr Golfklúbbnum Hamri á Dalvík (GHD) sem stóð uppi Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 16. 2013 | 17:30
Íslandsbankamótaröðin (3): Saga Íslandsmeistari í holukeppni í telpnaflokki!

Í dag fóru fram 4 manna úrslitaleikir í flokki 15-16 ára stúlkna á 3. móti Íslandsbankamótaraðarinnar, þ.e. Íslandsmótinu í holukeppni. Leikið var á Leirdalsvelli hjá GKG í Kópavoginum. Leikirnir í 4 manna úrslitunum í stúlknaflokki fóru á eftirfarandi máta: Saga Traustadóttir, GR g. Karenu Ósk Kristjánsdóttur, GR 2&1 Þóra Kristín Ragnarsdóttir, GK g. Sigurlaugu Rún Jónsdóttur GK, 2&1 Leikurinn um 3. sætið fór því fram milli Sigurlaugu Rún Jónsdóttur og Karenu Ósk Kristjánsdóttur og vann Sigurlaug Rún 1&0. Úrslitaleikurinn um Íslandsmeistaratitilinn fór því fram milli Sögu og Þóru Kristínu og var það Saga Traustadóttir, sem stóð uppi sem Íslandsmeistari í holukeppni í telpnaflokki 2013, 2&1.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

