Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 19. 2013 | 08:00

Evróputúrinn: BMW Int. Open hefst í München á morgun!

Á morgun hefst í Golf Club Eichenried í München, Þýskalandi BMW International Open.  Þetta er mót vikunnar á Evrópumótaröðinni. Þetta er í 25. sinn sem mótið fer fram.   Martin Kaymer sem er eini Þjóðverjinn, sem tekist hefir að vinna mótið þ.e. á 20 ára afmæli mótsins, þykir sigurstranglegastur af heimamönnunum til þess að sigra ásamt Marcel Siem … og Max Kiefer. Kiefer er eflaust ekki eins þekktur og fyrri tvö nöfnin en klúbburinn sem hann tilheyrir þeim mun meira …. Golf Club Fleesensee þar sem margir Íslendingar hafa keppt á úrtökumótum fyrir Evrópumótaröðina í gegnum tíðnina. Kaymer og Siem eru meðal 10 þátttakenda í mótinu sem komust í gegnum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 19. 2013 | 07:30

GKS: Hulda sigraði á Þjóðhátíðarmótinu á Sigló!

Á Siglufirði fór 17. júní  s.l. fram  Þjóðhátíðarmót í boði Everbuild. Þátttakendur voru 19 og luku 17 keppni.  Leikformið var punktakeppni með forgjöf í einum opnum flokki. Sigurvegari mótsins var Hulda Guðveig Magnúsardóttir, GKS, en hún var með 39 glæsipunkta!!! Úrslitin að öðru leyti voru eftirfarandi:  1 Hulda Guðveig Magnúsardóttir GKS 19 F 24 15 39 39 39 2 Sigurbjörn Hafþórsson GKS 36 F 19 18 37 37 37 3 Björg Traustadóttir GÓ 14 F 18 17 35 35 35 4 Bryndís Björnsdóttir GHD 28 F 18 14 32 32 32 5 Grétar Bragi Hallgrímsson GKS 10 F 13 18 31 31 31 6 Dagný Finnsdóttir GÓ 34 F 13 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 19. 2013 | 07:00

Obama minnist á Rory í ræðu á Írlandi – Myndskeið

Obama Bandaríkjaforseti er sem stendur í opinberri heimsókn í Evrópu. Hann er nú staddur í Berlín en var þar áður í nokkra daga á Norður-Írlandi, en hann er á leið á G8 ráðstefnu.  Obama gat eins af sameiginlegum áhugamálum hans og margra Norður-Íra, golfsins í ræðu sem hann hélt í Belfast. „Ég er óánægður með að ég mun ekki fá tækifæri til að spila nokkra hringi meðan ég er hér,“ sagði Obama m.a. Obama, sem lék m.a. með Tiger fyrr á árinu minntist á nr. 2 á heimslistanum sem eins og allir vita er frá N-Írlandi. „Ég hitti Rory McIlroy á síðasta ári og hann ætlaði að hjálpa mér með Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 18. 2013 | 19:30

Haraldur Franklín komst í gegnum niðurskurð á Opna breska áhugamannamótinu!!!

Haraldur Franklín Magnús, GR, komst fyrir skemmstu í gegnum niðurskurð á Opna breska áhugamannamótinu. Hann er í 10. sæti eftir 2 hringi af höggleik og nú tekur við holukeppni. Haraldur Franklín sagði í viðtali við Golf 1 áður en hann fór utan að hann vildi sjá með þátttökunni hvernig hann stæði sig miðað við aðra kylfinga í Evrópu. Sjá má viðtalið við Harald Franklín með því að SMELLA HÉR:  Af 288 sem hófu keppni landaði Haraldur Franklín 10. sætinu og ljóst að hann er meðal þeirra allra bestu!!!


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 18. 2013 | 19:00

Grein Reuters um Golf á Íslandi

Paul Ingrassia, framkvæmdastjóri Reuters er þessa dagana staddur á Íslandi að spila golf. Og….. hann skrifar fallega um golfvellina okkar og golf á Íslandi. Lesa má grein Ingrassia með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 18. 2013 | 18:55

Heimslistinn: Rose í 3. sæti!!!

Með sigri sínum á Opna bandaríska velti Justin Rose, Adam Scott úr 3. sæti heimslistans. Þetta er það hæsta sem Justin Rose hefir komist á heimslistanum og aðeins 1,33 stig sem skilja að Rose og nr. 2 á heimslistanum Rory McIlroy. Tiger heldur toppsætinu nokkuð örugglega, en meira en 3 stig skilja hann og Rory að. Við það að Justin skaust upp í 3. sætið fór Masters sigurvegarinn Adam Scott niður í 4. sætið og Matt Kuchar niður í 5. sætið. Phil Mickelson fer hins vegar úr 10. sætinu i 6. sætið á heimslistanum fyrir að hafa landað 2. sætinu á Opna bandaríska (og Jason Day sem var líka í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 18. 2013 | 18:10

Haraldur Franklín á 71

Haraldur Franklín Magnús,  GR, Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og Axel Bóasson, GK, taka þátt í Opna breska áhugamannamótsins sem hófst í gær á Royal Cinque Ports og Prince’s völlunum í Englandi. Þátttakendur eru 288 frá 29 löndum. Haraldur Franklín er að standa sig best íslensku þátttakendanna. Í gær var hann í 13. sæti eftir að hafa spilað völlinn á 1 yfir pari, 72 höggum.  Í dag bætti hann sig enn um 1 högg, var á sléttu pari, 71 höggi.  Hann er sem stendur í 9. sæti en nokkrir eiga eftir að ljúka leik og geta því sætistölur raskast (frá því þetta er ritað kl. 18:00) Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, bætti Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 18. 2013 | 11:30

NK: Helga Kristín með 46 punkta!!!

Opna þjóðhátíðardagsmótið fór venju samkvæmt fram á Nesvellinum 17. júní.  Nokkuð stíf suðaustanátt setti svip sinn á mótið sem annars fór að mestu mjög vel fram.  Færri komust að en vildu í mótið og voru 108 kylfingar úr tíu golfklúbbum skráðir til leiks.  Helga Kristín Gunnlaugsdóttir úr Nesklúbbnum kom sá og sigraði í punktakeppninni og það með yfirburðum.  Helga sem var með 9,5 í forgjöf fyrir mótið lék hringinn á 73 höggum sem skilaði henni 46 punktum.  Litlu mátti muna að þeir yrðu 47 því Helga púttaði fyrir erni á síðustu holunni sem fór rétt framhjá og þurfti hún því að „sætta sig“ við fugl.  Sannarlega glæsilegur hringur hjá Helgu Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 18. 2013 | 10:00

Rose þakkar Foley sigur á US Open

Nýkrýndur sigurvegari US Open, Justin Rose hefir ausið lofi á  Sean Foley  og þakkar honum m.a. sigur sinn á US Open. Rose var á sléttu pari, 70 höggum, lokahringinn og var 1 yfir í heildarskori, 2 höggum betri en Phil Mickelson og Jason Day. Hinn 32 ára Rose var fljótur að þakka Foley árangurinn en nú nálgast óðum 4 ára afmæli þess að þeir hófu samstarf.  Foley vinnur líka með Tiger Woods og Hunter Mahan. „Eftir 2 vikur á AT&T National verðum við búnir að starfa saman í 4 ár,“ sagði Rose. „Og mér finnst eins og golfleikur minn hafi orðið betri og betri með hverju árinu.“ „Að ég komi Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 18. 2013 | 09:00

Síðustu 19 risamótsmeistarar

Hér hefir verið tekinn saman listi yfir 19 síðustu kylfinga til þess að sigra á risamótum, en með á þeim lista er Justin Rose sem sigraði sl. helgi á 113. Opna bandaríska í Merion Golf Club í Ardmore, Pennsylvaníu: 2013 Júní – Justin Rose (Englandi), Opna bandaríska April – Adam Scott (Ástralia), Masters 2012 Ágúst  – Rory McIlroy (Norður-Írlandi), PGA Championship Julí – Ernie Els (Suður-Afríka), Opna breska Júní- Webb Simpson (Bandaríkin), Opna bandaríska April – Bubba Watson (Bandaríkin), Masters 2011 Ágúst – Keegan Bradley (Bandaríkin), PGA Championship Júlí- Darren Clarke (Norður-Írlandi), Opna breska Júní – Rory McIlroy (Norður-Írlandi), Opna bandaríska Apríl- Charl Schwartzel (Suður-Afríka), Masters 2010 Ágúst – Martin Lesa meira