Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 21. 2013 | 17:00
Eimskipsmótaröðin (3): Úrslit 1. dags
Íslandsmótið í holukeppni fer nú fram á Hamarsvelli í Borgarnesi í yndislegu veðri. Það kom kylfingum skemmtilega á óvart þegar þeir gengu inn á 16. flöt að þar beið þeirra starfsmaður mótsins til að aðstoða þá við flaggstöngina, enda skartaði hún þjóðfána Íslands. Í karlaflokki eru 8 riðlar og efstu menn eftir 1. umferð eru eftirfarandi: Guðjón Henning Hilmarsson, GKG; Ragnar Már Garðarsson, GKG; Andri Þór Björnsson, GR; Rúnar Arnórsson, GK; Axel Bóasson, GK; Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR; Arnar Snær Hákonarson, GR og Sigmundur Einar Másson, GKG. Til þess að sjá stöðuna eftir keppni 1. dag í karlaflokki SMELLIÐ HÉR: Í kvennaflokki eru 6 riðlar og efstu konur eftir 1. umferð Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 21. 2013 | 12:00
Afmæliskylfingur dagsins: Ragnhildur Sigurðardóttir – 21. júní 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Ragnhildur Sigurðardóttir, GR. Ragnhildur er fædd 21. júní 1970. Ragnhildur er margfaldur Íslandsmeistari í golfi úr GR og hin síðari ár þekkt sem einn besti golfkennari Íslands. Hún er í sambandi með Jóni Andra Finnssyni og á þrjár dætur Hildi Kristínu, Lilju og Söru Líf (dóttir Jóns Andra). Hér má sjá viðtal sem tekið var við Ragnhildi fyrir nokkru SMELLIÐ HÉR: Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan Ragnhildur Sigurðardóttir Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Matt Kuchar 21. júní 1978 (35 ára); William McGirt 21. júní 1979 (34 ára); Bae Sang-moon, 21. júní 1986 (27 ára); Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 21. 2013 | 06:30
Vonn talar um samband sitt við Tiger

Opna bandaríska 2013 var enn eitt risamót vonbrigða fyrir Tiger. Eyðimerkurganga hans hvað snertir sigra í risamótum heldur áfram, en ofan á allt saman lauk hann keppni á einu versta skori á ferli sínum, þ.e. var á samtals 13 yfir pari eftir 4 daga keppni. Á sunnudeginum var hann 12 höggum á eftir sigurvegaranum Justin Rose. Það má vel vera að Tiger eigi enn í vandræðum með leik sinn (vegna meiðsla en hann er nú frá keppni í mánuð vegna álagsverkja í olnboga) en utan vallar hefir lífið tekið breytingum til hins betra, eftir skilnaðinn frá Elínu Nordegren. Sðgusagnir voru komnar á kreik þegar í ársbyrjun 2013 að Tiger væri Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 21. 2013 | 06:13
Eimskipsmótaröðin (3): Íslandsmótið í holukeppni hefst í dag í Borgarnesi!

Í dag hefst 3. mótið á Eimskipsmótaröðinni, Íslandsmótið í holukeppni á Hamarsvelli í Bogarnesi. Þátttakendur eru 66 þar af 26 konur. Flestir þátttakendur koma úr GR eða 19 talsins, næstflestir eða 18 úr GKG og úr GK koma 13, en samtals eru keppendur úr þessum 3 klúbbum 50 talsins. Aðeins einn „heimamaður“ tekur þátt í mótinu Bjarki Pétursson úr GB. Þau sem eiga titil að verja eru Signý Arnórsdóttir, GK og Haraldur Franklín Magnús, GR, sem gekk svo vel á British Open Amateur, frábær árangur hjá honum að lenda í topp-16 af 288 þátttakendum í því móti. Signý og Haraldur Franklín taka bæði þátt og munu reyna að verja titil Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 21. 2013 | 05:25
LET: Campell og Vedel efstar í Slóvakíu

Það eru sú sem á titil að verja Line Vedel frá Danmörku og hin ástralska Nikki Campbell sem eru efstar eftir 1. dag Allianz Slovak Ladies Open, sem hófst í gær á golfstaðnum Tale, Brenzo í Tále, Slovakíu. Báðar eru búnar að spila á 5 undir pari, 67 höggum. Í 3. sæti eru Trish Johnson og Florentyna Parker 2 höggum á eftir á 5 undir pari, 69 höggum. Á 70 höggum, er hópur 8 kylfingar þ.á.m. enska golfdrottningin Laura Davies og hin ítalska Sophie Sandolo. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag í Tále SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 21. 2013 | 05:00
PGA: Hoffman leiðir á Travelers

Það er bandaríski kylfingurinn Charley Hoffman sem leiðir eftir 1. dag Travelers mótsins sem hófst á TPC River Highlands golfstaðnum í Cromwell, Conneticut. Hofmann lék á 9 undir pari, 61 höggi. Í 2. sæti er Hunter Mahan aðeins 1 höggi á eftir. Í 3. sæti er Bubba Watson á 63 höggum og 6 deila 4. sætinu á 65 höggum þ.á.m. Webb Simpson og Camilo Villegas. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag Travelers mótsins SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 1. dags á Travelers mótinu SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá högg 1. dags sem Bubba Watson átti SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 20. 2013 | 20:00
Travelers í beinni

Mót vikunnar á PGA Tour er Travelers mótið sem fram fer á TPC River Highlands í Cromwell, Conneticut. Nokkrar stjörnur taka þátt í mótinu t.a.m. Hunter Mahan, Webb Simpson, Camilo Villegas, Pádraig Harrington, Lee Westwood, Bubba Watson og John Daly, Angel Cabrera, KJ Choi ofl. ofl. Til þess að sjá Travelers mótið í beinni SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 20. 2013 | 19:00
Afmæliskylfingar síðustu 4 daga

Afmæliskylfingadeildin á Golf1 hefir verið eitthvað slöpp að skrifa greinar frá og með 17. júní og eru hlutaðeigandi afmæliskylfingar beðnir afsökunar þar á. Hér verður bætt úr: Afmæliskylfingar 17. júní voru eftirfarandi: Dagbjört Bjarnadóttir (50 ára stórafmæli – Innilega til hamingju!!!) Hjörtur Sveinsson og Svala Vignisdóttir Aðrir frægir kylfingar sem áttu afmæli á Þjóðhátíðadegi Íslendinga eru: Judy Kimball Simon, 17. júní 1938 (75 ára); Cathy Sherk (née Graham, 17. júní 1950 (63 ára). Afmæliskylfingar 18. júní 2013 voru eftirfarandi: f. 18. júní 1998 (15 ára) Valgerður Kristín Olgeirsdóttir (58 ára) Auðun Helgason (39 ára) Aðrir frægir kylfingar sem áttu afmæli 18. júní s.l. er: Jim Albus, 18. júní 1940 (73 ára). Afmæliskylfingar 19. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 20. 2013 | 16:30
Olazabal og McGinley efstir á úrtökumóti fyrir Opna breska

Fyrirliði liðs Evrópu í Rydernum 2012, José Maria Olázabal og sá sem gegnir stöðunni á næsta ári, Paul McGinley eru í efsta sæti af 96 keppnedum sem tíuðu upp á Sunningdale, þ.e. í úrtökumóti fyrir Opna breska sem fram fer í næsta mánuði á Muirfield. Það eru 7 ár frá því að Olazabal keppti í Opna breska en þá varð hann í 56. sæti á eftir Tiger Woods, þ.e. árið 2006 í Hoylake. McGinley, sem fyrir skömmu fékk undanþágu til að spila í PGA Championship, þ.e. 4. risamótinu, sem fram fer í ágúst nú í sumar hefir heldur ekki keppt á Opna breska frá árinu 2009. Meðal þeirra sem komast ásamt Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 20. 2013 | 16:00
Evróputúrinn: Els á 63 í München

Ernie Els er aldeilis að gera það gott á BMW International Open sem hófst í Golf Club Eichenried í München, í Þýskalandi í dag. Hann lék 1. hring á 63 höggum, fékk 1 örn og 7 fugla og 10 pör. Þrír kylfingar léku á 64: Martin Kaymer, Alex Noren og Matthew Baldwin. Ljóst er að skor eru lág. Nokkrir eiga eftir að ljúka leik og að staða efstu manna getur enn breyst. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á BMW mótinu SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

