Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 22. 2013 | 23:25
PGA: 3 á toppnum á Travelers

Það eru 3 sem deila forystunni á Travelers fyrir lokahringinn, sem spilaður verður á morgun: Bubba Watson, Graham DeLaet og Charley Hoffman. Allir eru þeir búnir að spila á samtals 10 undir pari, 200 höggum; de Laet (65 70 65); Hoffman (61 73 66) og Watson (63 67 70). Fjórða sætinu deila Chris Stroud og Nick O´Hearn á 9 undir pari, hvor og einn í 6. sæti er Ken Duke á 8 undir pari samtals. Í 7. sæti eru 7 kylfingar m.a. nr. 3 á heimslistanum, Justin Rose nýkrýndur risamótsmeistari Opna bandaríska á samtals 7 undir pari. Munurinn milli efstu manna á Travelers er naumur – aðeins munar 3 höggum á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 22. 2013 | 23:00
Golfgrín á laugardegi

Hér kemur einn gamall og góður: Stevie Wonder og Jack Nicklaus ræðast við á bar. Nicklaus snýr sér að Wonder og segir, „Hvernig gengur í skemmtanabransanum?“ Stevie Wonder svarar, „Bara ágætlega, síðasti diskurinn minn fór á topp-10, þannig að allt í allt finnst mér þetta bara ganga fínt. En hvað með þig í golfinu?“ Nicklaus svarar: „Ekki illa, ég vinn ekki eins mikið og ég var vanur en ég er enn að græða mikla peninga. Ég á í nokkrum vandræðum með sveifluna en ég held að þetta sé allt að lagast.“ „Mér finnst alltaf að þegar eitthvað fer úrskeiðis í sveiflunni minni þá verði ég að hætta að spila í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 22. 2013 | 22:30
Eimskipsmótaröðin (3): 4 manna úrslit

Leikjum í 8 manna úrslitum í kvenna- og karlaflokki á Íslandsmótinu í holukeppni sem fram fer á Hamarsvelli er lokið og því ljóst hverjir hafa tryggt sér sæti í undanúrslitum sem fram fara á morgun. Úrslitin í kvennaflokki voru eftirfarandi: Ólafía Þórunn Kristinsdóttir Golfklúbbi Reykjavíkur sigraði Karen Guðnadóttur Golfklúbbi Suðurnesja 5/3 í 8 manna úrslitum á Íslandsmótinu í holukeppni sem fram fer á Hamarsvelli í Borgarnesi. Tinna Jóhannsdóttir Golfklúbbnum Keili sigraði einnig í sínum leik, en hún lagði Sunnu Víðisdóttur Golfklúbbi Reykjavíkur 3/2. Sigurinn tryggði Ólafíu Þórunni og Tinnu sæti í undanúrslitum í kvennaflokki en áður höfðu þær Signý Arnórsdóttir og Anna Sólveig Snorradóttir báðar úr Golfklúbbnum Keili tryggt sæti Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 22. 2013 | 15:00
Eimskipsmótaröðin (3): 8 manna úrslit
Riðlakeppnum á Íslandsmótinu í holukeppni í Borgarnesi er nú lokið og ljóst hverjir mætast í 8 manna úrslitum. Í karlaflokki eru það eftirfarandi viðureignir sem fram munu fara í 8 manna úrslitum: Guðjón Henning Hilmarsson, GKG g. Agli Ragnari Gunnarssyni, GKG Rúnar Arnórsson, GK g. Axel Bóassyni, GK Birgir Guðjónsson, GR g. Andra Má Óskarssyni, GHR Kjartan Dór Kjartansson, GKG g. Guðmundi Ágúst Kristjánssyni, GR. Í kvennaflokki eru það eftirfarandi viðureignir sem fram munu fara í 8 manna úrslitum: Anna Sólveig Snorradóttir, GK og Signý Arnórsdóttir, GK sitja hjá. Eftirfarandi leikir fara fram: Karen Guðnadóttir, GS g. Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur, GR. Tinna Jóhannsdóttir, GK g. Sunnu Víðisdóttur, GR. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 22. 2013 | 14:30
Jónsmessunótt – um 1100 skráðir í mót!

Jónsmessuhátið ber ár hvert upp á 24. júní þ.e. þegar 1/2 ár er liðið frá aðfangadag (stysta degi ársins). Hún er fæðingarhátíð Jóhannesar skírara. En jafnvel í heiðni var dagurinn haldinn hátíðlegur, en hann er sá bjartasti þar sem sólargangur er lengstur. Stjarnfræðilega er þetta ekki nákvæmt og munar 3 dögum, þ.e. lengsti dagur ársins var í gær og þá þegar haldið upp á það með ýmsum golfmótum s.s. Miðnæturmóti Hótel Arkar hjá GHG, í Hveragerði. Í dag er enn haldið upp á Jónsmessu með fjölmörgum golfmótum og alls eru 31 mót fyrir kylfinga að velja úr, eða nánast helmingur allra klúbba með mót! T.a.m. fer í nótt fram hið Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 22. 2013 | 13:30
LPGA: Mika efst í Arkansas

Það er japanska stúlkan Mika Miyazato, sem leiðir á Walmart NW Arkansas Championship, sem fram fer í Pinnacles Country Club í Rogers, Arkansas og hófst í gær en mótið er 54 holu mót. Mika skipti um pútter eftir að hún missti af niðurskurði á móti í Texas s.l. apríl og vonaðist þar með eftir að binda endi fljótt á það sem hafði fram að því verið keppnistímabil vonbrigða hjá henni. Í gær fékk Mika 6 fugla á 10 af mið holunum og lauk 2. hing á 6 undir pari 65 höggum og var sjóðandi heit með pútternum, en allt virtist detta hjá henni! Fjórar deila 2. sætinu á 5 undir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 22. 2013 | 13:00
Afmæliskylfingur dagsins: Axel Rudolfsson – 22. júní 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Axel Rudolfsson. Axel er fæddur 22. júní 1963 og á því 50 ára stórafmæli í dag!!! Axel er í Golfklúbbi Reykjavíkur og þar í félagsskap sem ber heitið Elítan. Sjá má viðtal Golf 1 við Axel með því að SMELLA HÉR: Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan Axel Rudolfsson, GR (50 ára) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Julio Cesar Zapata, 22. júlí 1976 (37 ára); Dustin Johnson, 22. júní 1984 (29 ára) ….. og ….. Kristinn J. Gíslason (61 árs) Hilmar Hólm Guðjónsson (17 ára) Gauti Grétarsson, NK (53 ára) Simon Sigurbjörnsson (55 ára) Notað Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 22. 2013 | 01:45
LET: Nocera og Vedel leiða eftir 2. dag í Slóvakíu

Fyrrum nr. 1 í Evrópu Gwladys Nocera var á skori upp á 4 undir pair, 68 högg í dag og við það komst hún í efsta sætið, sem hún deilir ásamt Line Vedel frá Danmörku, sem á titil vað verja. Báðar eru á samtals 6 undir pari, 138 höggum. Vedel bætti við 71 í dag eftir að hafa spilað 1. hring á 67. Stúlkurnar eru að spila í 30° hita þar sem varla bærist strá á Gray Bear fjallagolfvellinum. Hin 38 ára sagði um forystu sína í dag: „Ég var bara að spila vel. Ég hitti 17 flatir á tilskyldum höggafjölda og hitti boltann betur en í gær þannig að ég Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 22. 2013 | 01:00
PGA: Bubba leiðir á Travelers

Bubba Watson hefir tekið forystuna á Travelers mótinu nú þegar það er hálfnað. Hann er á samtals 10 undir pari, 130 höggum og átti hring upp á 3 undipr pari, 67 högg, í gær, föstudag. Bubba er með 2 högga forystu á þá Patrick Reed og Pádraig Harrington, en báðir voru á samtals 8 undir pari, hvor. „Ég elska þennan stað. Ég spila alltaf vel hér,“ sagði Watson um TPC Highlands völlinn í Cromwell, Conneticut, þar sem mótið fer fram. Fjórir kylfingar þ.á.m. Hunter Mahan eru jafnir í 4. sæti á 7 undir pari. Charley Hoffman, sem var efstur eftir fyrsta dag eftir frábæran hring upp á 61 högg, lék á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 22. 2013 | 00:30
Evróputúrinn: Els enn efstur í München

Ernie Els frá Suður-Afríku leiðir enn þegar BMW International Open er hálfnað á Golf Club Eichenried München golfvellinum, í Þýskalandi. Els hefir leikið á samtals 12 undir pari, 132 höggum (63 69). Í 2. sæti aðeins 1 höggi á eftir Els eru áhugamaðurinn Matthew Baldwin frá Englandi og Frakkinn Alexander Levy. Austurríkismaðurinn Bernd Wiesberger og Englendingurinn Danny Willett deila síðan 4. sætinu á samtals 10 undi pari, hvor. Meðal þeirra sem ekki komust í gegnum niðurskurð eru Daninn efnilegi Thorbjörn Olesen, Englendingurinn ungi Tom Lewis, heimamaðurinn Alex Cejka og Spánverjarnir Pablo Larrazabal og Ryder Cup fyrir Evrópu 2012 José Maria Olázabal. Til þess að sjá stöðuna eftir þegar BMW International er Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

