Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 23. 2013 | 16:45

Eimskipsmótaröðin (3): Ólafía Þórunn og Guðmundur Ágúst eru Íslandsmeistarar í holukeppni!

Nú er nýlokið 3. stigamóti Eimskipsmótaraðarinnar, Íslandsmótinu í holukeppni, sem fram fór á Hamarsvelli í Borgarnesi. Íslandsmeistari í kvennaflokki er Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR. Ólafía Þórunn vann sína viðureign gegn Tinnu Jóhannsdóttur, GK, 2&1. Íslandsmeistari í karlaflokki er Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Hann hafði betur gegn Rúnari Arnórssyni, GK, 3&2. Í þríðja sæti í karlaflokki varð Guðjón Henning Hilmarsson, GKG eftir sigur á Birgi Guðjónssyni, GR. Í þriðja sæti í kvennaflokki varð Signý Arnórsdóttir, GK eftir að hafa lagt klúbbfélaga sinni úr Keili, Önnu Sólveigu Snorradóttur GK, að velli. Þetta er fyrsti Íslandsmeistaratitill Guðmundar Ágústs í holukeppni á Eimskipsmótaröðinni en Ólafía Þórunn er að endurtaka leikinn frá 2011 og virðast oddatöluárin Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 23. 2013 | 14:00

GMS: Feðgar sigruðu á Jónsmessumóti!

Í gær fór fram Jónsmessumót hjá Golfklúbbnum Mostra, á Víkurvelli í Stykkishólmi.  Þátttakendur voru  32, sem skiptust í 16 lið. Það var liðið Feðgar skipað þeim Boga Þór Siguroddssyni, GR og Stefáni Þór Bogasyni, GR, sem bar sigur úr býtum, en skor þeirra með forgjöf var 34. Úrslitin voru eftirfarandi: 1 LiðFeðgar Bogi Þór Siguroddsson GR Stefán Þór Bogason GR Skor  með forgjöf 34 2     007 Hafþór Helgi Einarsson GR Guðrún Heiðarsdóttir GR 36 3     Glitský Einar Marteinn Bergþórsson GMS Helga Björg Marteinsdóttir GMS 36 4     Feðgar 2 Egill Egilsson eldri GMS Egill Egilss yngri – 38 5     Hildur Dagný Þórisdóttir GMS Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 23. 2013 | 13:30

GFH: Einar Bjarni og Viktor Páll sigruðu á Securitas-Egersund mótinu á Egilsstöðum

Í gær fór fram á Ekkjufellsvelli hjá Golfklúbbi Fljótsdalshéraðs hjá Egilsstöðum Opna Securitas-Egersund mótið. Leikformið var höggleikur án forgjafar og punktakeppni með forgjöf.  Veitt voru 3 verðlaun fyrir efstu 3 sætin í höggleiknum og efstu 5 sætin í punktakeppninni og gat sami keppandi ekki tekið verðlaun í báðum flokkum. Þátttakendur voru  38, þar af engir kvenkylfingar 🙁 Einar Bjarni Helgason, GFH vann bæði í höggleiknum og punktakeppninni  og hefir Einar Bjarni væntanlega ekki tekið verðlaun í punktakeppninni.  Í 2. sæti í punktakeppninni varð Viktor Páll Magnússon, GKF og hefir hann væntanlega tekið 1. verðlaun í punktakeppninni. Hér má sjá úrslit – þ.e. efstu 12  í höggleik án forgjafar:  1 Einar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 23. 2013 | 13:00

GA: Jason og Helgi unnu á Pengs Open

Fyrsta opna golfmót GA nú í sumar fór fram á Jaðarsvelli í gær, 22. júní 2013.   Þátttakendur voru 57, þar af 3 konur. Leikfyrirkomulag var höggleikur með og án forgjafar. Í höggleiknum án forgjafar sigraði Jason James Wright, GA, var á 72 höggum en í höggleik með forgjöf sigraði Helgi Gunnlaugsson, GA,  á 63 höggum nettó. Hér má  sjá úrslit þ.e. efstu 13 menn í höggleik án forgjafar: 1 Jason James Wright GA 4 F 34 38 72 1 72 72 1 2 Ólafur Auðunn Gylfason GÓ 1 F 38 36 74 3 74 74 3 3 Viðar Þorsteinsson GA 4 F 39 36 75 4 75 75 4 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 23. 2013 | 12:45

Garrick Porteous sigraði á Opna breska áhugamannamótinu

Það var Englendingurinn Garrick Porteous, sem sigraði á Opna breska áhugamannamótinu, mótinu sem Haraldur Franklin Magnús, GR stóð sig svo vel í og komst í 16 manna úrslit og Axel Bóasson, GK og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, tóku líka þátt í. Porteous kom m.a. hingað til lands á s.l. ári og spilaði með enska landsliðinu á Hvaleyrarvelli í European Challenge Trophy eða m.ö.o. undankeppni fyrir Evrópumót karlalandsliða.  Hann þykir eiga framtíðina fyrir sig. Eftir sigurinn sagði Porteous m.a.: „Þetta er ansi súrrealistísk tilfinning núna. Ég veit að það eru mörg fræg nöfn á bikarnum. Með því að vera við hliðina á þeim fyllist maður auðmýkt. Ég var ansi sjálfsöruggur í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 23. 2013 | 12:00

Eimskipsmótaröðin (3): Ólafía Þórunn mætir Tinnu í úrslitum og Guðmundur Ágúst – Rúnari

Leikjum í undanúrslitum á Íslandsmótinu í holukeppni sem fram fer á Hamarsvelli Borgarnesi er lokið. Guðmundur Ágúst Kristjánsson GR og Rúnar Arnórsson GK  leika um fyrsta sætið í karlaflokki en í kvennaflokki leika þær Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR og Tinna Jóhannsdóttir. Guðjón Henning Hilmarsson GKG mætir Birgi Guðjónssyni GR í leik um þriðja sætið í karlaflokki og í kvennaflokki mætast þær Anna Sólveig Snorradóttir GK og  Signý Arnórsdóttir, GK. Úrslitaleikirnir hefjast kl 12:30, hægt verður að fylgjast með á „twiter“ á golf.is . Ræst er út með átta mínútna millibili og er áætlað að Íslandsmeistarar verði krýndir milli kl 16 og 17 í dag. Undanúrslit. Rúnar Arnórsson GK sigraði Guðjón Henning Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 23. 2013 | 11:30

Afmæliskylfingur dagsins: Colin Montgomerie – 23. júní 2013

Afmæliskylfingur dagsins er skoski atvinnukylfingurinn Colin Stuart Montgomerie. Monty eins og hann er oft kallaður er fæddur 23. júní 1963  og á því 50 ára stórafmæli í dag!! Hann á metið i því að vera efstur á stigalista Evrópumótaraðarinnar 8 ár, þar af 7 ár í röð þ.e. á árunum 1993-1999. Monty hefir unnið samtals 40 sinnum á atvinnumannsferli sínum, þar af 31 sinnum á Evrópumótaröðinni, sem kemur honum í 4. sæti yfir þá sem unnið hafa flesta titla á þeirri mótaröð. Monty er einn þeirra sem aldrei hefir unnið risamótstitil og olli það nokkrum deilum þegar hann var þrátt fyrir það tekinn í frægðarhöll kylfinga á þessu ári. Á móti Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 23. 2013 | 10:15

6000. greinin á Golf1!

Í gær þegar Jónsmessumótin stóðu sem hæst var skrifuð 6000. golfgreinin hér á Golf 1 – en það var afmælisgreinin um Elítumanninn í GR,  Axel Rudolfsson,  en hann fagnaði 50 ára afmæli sínu í gær! Innilega til hamingju aftur, Axel – Golf 1 vonar að dagurinn hafi verið þér góður!!! Alls hafa 5.879 golfgreinar verið skrifaðar á íslensku, 105 á ensku og 16 á þýsku, en hafið var að skrifa vikulegar golfgreinar á þýsku nú í sumar á Golf 1. Golf 1 er  eini golffréttavefurinn í heiminum, sem skrifar golfgreinar á ensku, þýsku og íslensku. Golf 1 hóf starfsemi 25. september 2011 og var  6000 greina markinu náð fyrir 21 mánaða Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 23. 2013 | 09:45

LPGA: 4 í forystu í Arkansas

Það eru 4 sem leiða fyrir lokahringinn á Walmart NW Arkansas Championship, sem hófst á föstudag í Pinnacle Country Club í Rogers, Arkansas. Þetta eru þær Beatriz Recari, Chie Arimura, Se Yeon Ryu og Stacy Lewis.   Þær eru allar búnar að spila hringina tvo á 10 undir pari, 132 höggum. Enn annar hópur 4 kylfinga deilir 5. sætinu, 2 höggum á eftir forystukonunum en í þeim hóp eru m.a. IK Kim og Inbee Park. Níunda sætinu deila síðan forystukona 1. dags Mika Miyazato frá Japan og hinn ungi áhugamaður frá Nýja-Sjálandi Lydia Ko, báðar á samtals 7 undir pari, hvor.  Miyazato missti svolítið flugið í gær með hring upp á 70 og náði Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 23. 2013 | 09:00

Einarma kylfingur fær ás!

Ben Crocker er 63 ára, býr í St. Louis, Bandaríkjunum. Hann er einarma eftir vinnuslys fyrir 40 árum, en hann vann áður hjá járnbrautunum (US Rail). Hann er búinn að spila golf í 50 ár og ætlaði ekki að láta handleggsleysið stoppa sig frá því að spila golf.  Hann var rétthentur og ólán hans var að hann missti einmitt hægri handlegg sinn, þannig að hann varð að læra að slá með vinstri og slær í kross (ens. cross-handed). Á óskalista Crocker hefir alltaf verið að fara holu í höggi og ósk hans rættist nú um daginn. Crocker náði draumahöggi sínu á 9. holu 131 yarda (120 metra) par-3 9. holu Lesa meira