Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 25. 2013 | 06:45
Opna breska til N-Írlands?

Skv. frétt á ESPN mun Opna breska risamótið fara fram í Royal Portrush golfklúbbnum á Norður-Írlandi annaðhvort 2018 eða 2019. Ef af verður, verður þetta í fyrsta sinn sem Opna breska hefir verið haldið utan Englands eða Skotlands í 62 ár þegar það var síðast haldið á Norður Írlandi. Fyrri orðrómum um að Claret Jug (verðlaunagripur Opna breska) væri á leið til Norður-Írlands var vísað á bug af klúbbnum sjálfum og jafnframt Royal&Ancient, en mikill lobbyismi af hálfu Rory McIlroy, Graeme McDowell og Darren Clarke fyrir því að mótið fari fram á N-Írlandi virðist byrjaður að bera ávöxt. Það sem virðist hafa sannfært forsvarsmenn R&A að Opna breska risamótið gæti farið Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 24. 2013 | 21:14
LET: Nocera vann í Slóvakíu

Gwladys Nocera frá Frakklandi lauk 5 ára sigurleysisgöngu nú um helgina þegar hún sigraði á Allianz Slovak Ladies Open í Talé í Slóvakíu. Nocera, sem er 38 ára, er fyrrum nr. 1 í Evrópu og þetta er 11. titill hennar á LET: Hún spilaði á samtals 9 undir pari, 279 (70 68 71 70). Í 2. sæti varð Lee-Ann Pace frá Suður-Afríku, 4 höggum á eftir Nocera og var því um yfirburðasigur hjá Nocera að ræða. Eftir að sigurinn var í höfn sagði Nocera m.a tárum nær.: „Ég er mjög, mjög ánægð og ansi tilfinningasöm. Það er orðið svolítið síðan að ég hef lyft sigurbikar. Það var aftur erfitt þarna Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 24. 2013 | 17:00
GÞ: Ingvar og Sigríður klúbbmeistarar
Meistaramót Golfklúbbs Þorlákshafnar lauk laugardaginn 22. júní s.l. með glæsilegri veislu. Óhætt er að segja að veðrið hafi leikið við þau í GÞ þessa fjóra daga þrátt fyrir smá vind. Klúbbmeistarar 2013 urðu þau Sigríður Ingvarsdóttir og Ingvar Jónsson. Sjá má myndir úr meistaramóti GÞ með því að SMELLA HÉR: Úrslit í meistaramóti GÞ 2013 2. flokkur karla 1. sæti – Emil Þór Ásgeirsson 2. sæti – Gísli Ögmundsson 1. flokkur karla 1. sæti – Óskar Gíslason 2. sæti – Daníel Gunnarsson 3. sæti – Óskar Logi Sigurðsson Meistaraflokkur kvenna 1. sæti – Sigríður Ingvarsdóttir 2. sæti – Ásta Júlía Jónsdóttir 3. sæti – Sigurbjörg Þ. Óskarsdóttir Meistaraflokkur karla 1. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 24. 2013 | 13:00
Afmæliskylfingur dagsins: Ólöf María Jónsdóttir – 24. júní 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Ólöf María Jónsdóttir. Ólöf María er fædd 24. júní 1976 og er því 37 ára í dag. Hún er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Ólöf er fyrst íslenskra kvenna og sú eina til dagsins í dag, til þess að fá fullan keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna (LET: Ladies European Tour). Ólöf María er gift og á 2 börn. Komast má á facebook síðu Ólafar Maríu til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan: Olof Maria Jonsdottir Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Billy Casper, 24. júní 1931 (82 árs); Juli Inkster, 24. júní 1960 (53 ára); Kaname Yokoo, 24. júlí 1972 (41 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 24. 2013 | 11:30
GR: Jónar tveir og Eyþór Bragi sigruðu á Opna Flugfélag Íslands mótinu

Opna Flugfélag Íslands mótið fór fram í gær, sunnudaginn 23. júní á Grafarholtsvelli. Góð þátttaka var í mótinu, en alls tóku þátt 114 keppendur og léku í fallegu veðri í Grafarholtinu. Ræst var út af öllum teigum kl. 9:00 og leikin var punktakeppni í tveimur flokkum; flokki 0-8,4 og flokki 8,5-36. Veitt voru verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hvorum flokki, verðlaun fyrir besta skor sem og nándarverðlaun á öllum par 3 holum vallarins. CSA stuðull mótsins var +2. Úrslitin voru eftirfarandi: Nándarverðlaun: 2.braut: Arnar Unnarsson GR – 3,36 m 6.braut: Þorkell R Sigurgeirsson GKG – 4,45 m 11.braut: Ólafur Sigurjónsson GR – 2,61 m 17.braut: Héðinn Ingi Þorkelsson GKJ Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 24. 2013 | 11:00
Hver er kylfingurinn: Ken Duke?

Ken Duke sigraði fremur óvænt í gær á the Travelers mótinu í Conneticut og ekki víst að nafn hans sé kunnuglegt golfáhangendum, jafnvel þeim sem telja sig fylgjast vel með. En Duke er búinn að vera lengi að. Hér verður leitast svara við því hver kylfingurinn Ken Duke sé? Kenneth Wootson Duke fæddist 29. janúar 1969 og er því 44 ára. Duke fæddist í Hope, Arkansas. 14 ára var hann greindur með hryggskekkju (ens. scoliosis). The Arkansas Children´s Hospital þ.e. Arkansas barnaspítalinn í Little Rock, Arkansas mældi um 26% sveigju á hryggnum og leiddi það til þess að hann var að vera í spelkum 23 tíma dags. Tveimur árum síðar Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 24. 2013 | 01:00
LPGA: Inbee vann í Arkansas

Það var Inbee Park nr. 1 á Rolex-heimslistanum sem sigraði á Walmart NW Arkansas Championship og var þetta 8. sigur hennar á LPGA á ferlinum. Hún heldur væntanlega 1. sætinu á heimslistanum og verður hún þá búin að vera í 1. sæti í 11 vikur samfleytt. Hún var á samtals 12 undir pari, 201 höggi líkt og landa hennar Se Yeon Ryo og kom því til bráðabana milli þeirra, þar sem Inbee hafði betur, strax á 1. holu umspils, þ.e. par-5 18. holuna á golfvelli Pinnacle Country Club. Í 3. sæti varð hin japanska Mika Miyazato á samtals 11 undir pari og 4. sætinu deildu Lydia Ko, Stacy Lewis og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 24. 2013 | 00:30
PGA: Duke sigraði á Travelers

Það var hinn 44 ára Ken Duke sem stóð uppi sem sigurvegari á Travelers mótinu á TPC River Highlands, í Cromwell Conneticut, í gær, en þetta er fyrsti sigur hans á PGA Tour. Duke var á samtals 12 undir pari, líkt og annar fremur óþekktur kylfingur Chris Stroud og því varð að koma til bráðabana milli þeirra. Það varð að spila átjándu par-4 holuna tvívegis þar til Duke fékk fugl og Stroud tapaði á pari. Í 3. sæti var Kanadamaðurinn Graham DeLaet á samtals 11 undir pari og Bubba Watson fataðist flugið á lokametrunum. Hann lauk keppni í 4. sæti á samtals 10 undir pari. Til þess að sjá lokastöðuna Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 23. 2013 | 20:00
Travelers í beinni

Mót vikunnar á PGA Tour er Travelers mótið sem fram fer á TPC Highlands golfvellinum, í Cromwell, Conneticut. Bubba Watson er búinn að leiða mestallt mótið og nú er að sjá hvort hann heldur út lokasprettinn. Bein útsending frá Travelers mótinu hófst kl. 14:00. Til þess að sjá Travelers mótið í beinni SMELLIÐ HÉR: Til þess að fylgjast með stöðunni á skortöflunni SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 23. 2013 | 19:54
Evrópumótaröðin: Els sigraði í Þýskalandi

Ernie Els stóð uppi sem sigurvegari á BMW International Open, sem fram hefir farið í Golfclub München, Eichenried í Þýskalandi. Els lék samtals á 18 undir pari, 270 höggum (63 69 69 69) og átti 1 högg á Danann Thomas Björn, sem var í 2. sæti. Eftir sigurinn sagði Els m.a.: „Þetta hefir verið dásamlegt. Ég hef átt frábæra viku í Þýskalandi. Við verðum að þakka BMW, augljóslega, fyrir stuðning þeirra í 25 ár. Ég hef í lengi verið að reyna að vinna þetta mót!“ Í 3. sæti varð Frakkinn Alexander Levy á samtals 16 undir pari og 3 deildu 4. sætinu: „heimamaðurinn“ Martin Kaymer, Alex Noren og Bernd Wiesberger. Allir Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

