Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 27. 2013 | 18:45

Íslandsbankamótaröðin (4): Eva Karen og Björn Óskar leiða í flokki 15-16 ára eftir 1. dag

Það eru þau Eva Karen Björnsdóttir, GR og Björn Óskar Guðjónsson, GKJ, sem leiða eftir 1. dag 4. móts Íslandsbankamótaraðarinnar, sem hófst á Hlíðarvelli í Mosfellsbæ í dag.  Eva Karen var á 4 yfir pari, 76 höggum en „heimamaðurinn“ Björn Óskar lék á 1 yfir pari, 73 höggum!  Glæsileg frammistaða hjá báðum!!! Heildarúrslit eftir 1. dag í flokki 15-16 ára telpna er eftirfarandi:  1 Eva Karen Björnsdóttir GR 13 F 41 35 76 4 76 76 4 2 Sigurlaug Rún Jónsdóttir GK 12 F 43 38 81 9 81 81 9 3 Saga Traustadóttir GR 10 F 43 39 82 10 82 82 10 4 Hafdís Alda Jóhannsdóttir GK 12 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 27. 2013 | 18:15

Íslandsbankamótaröðin (4): Aron Snær á 69 – Helga Kristín efst í flokki 17-18 ára eftir 1. dag!

Aron Snær Júlíusson Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar er efstur í flokki 17-18 ára pilta eftir fyrri hringinn á Íslandsbankamótaröðinni sem leikinn er á Hlíðarvelli hjá Golfklúbbnum Kili, Mosfellsbæ. Aron Snær lék frábærlega í dag, hann lék hringinn á 3 undir pari, 69 höggum.  Annar er Ragnar Már Garðarsson einnig úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, hann lék einnig vel í dag og kom inn á 71 höggi eða 1 undir pari. Þriðji er svo Ísak Jasonarson úr Golfklúbbnum Keili. 1.sæti   Aron Snær Júlíusson,                    GKG     69 -3 2.sæti   Ragnar Már Garðarsson,              GKG      71-1 3.sæti   Ísak Jasonarson,   Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 27. 2013 | 18:00

Evróputúrinn: Floren efstur eftir 1. dag á Irish Open

Í dag hófst The Irish Open, sem fram fer í Carton House golfklúbbnum í Maynooth, Kildare, á Írlandi, en mótið er mót vikunnar á Evrópu- mótaröðinni. Eftir 1. dag er það Svíinn Oscar Floren sem leiðir, en hann lék á 6 undir pari, 66 höggum. Þetta er besti árangur Floren á þessu keppnistímabili en hann hafði fram til dagsins í dag ekki enn náð að vera að vera meðal efstu 25 það sem af er ársins í móti. Í 2. sæti er „heimamaðurinn“ Shane Lowry en hann skilaði sér í hús í dag á 5 undir pari, 65 höggum; líkt og Hollendingurinn Joost Luiten, Bandaríkjamaðurinn Peter Uihlein, Frakkinn Jean-Baptiste Gonnet Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 27. 2013 | 17:30

Wie á slæmu skori á US Women´s Open

Svo virðist sem framhald ætli að verða á slæmu keppnistímabili hjá Michelle Wie. Wie, sem enn á eftir að sigra á 1. risamóti sínu á LPGA byrjaði illa á US Women´s Open í gær. Michelle hóf leik á par-4 10. holunni í Sebonack golfklúbbnum og byrjaði á að fá snjókerlingu, þ.e. fjórfaldan skolla 8 högg. Síðan fylgdu í kjölfarið skolli á 14. holu og tvöfaldur skolli á 15. holu og var hún þá þegar komin neðarlega á skortöfluna. Það leit allt svo vel út fyrr í mánuðnum þegar hún var búin að vera jafn öðrum í 9. sæti á tveimur mótum í röð – sem eru fyrstu topp 10 niðurstöður Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 27. 2013 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: Catherine Lacoste – 27. júní 2013

Afmæliskylfingur dagsins er franski kylfingurinn Catherine Lacoste. Catherine fæddist í París 27. júní 1945 og er því 68 ára í dag. Cat, eins og hún er kölluð er dóttir frönsku tennisgoðsagnarinnar Rene Lacoste, sem stofnaði Lacoste tískuvörufyrirtækið. Móðir hennar er Simone Thione de la Chaume, sem vann breska áhugamannamót kvenna árið 1927, sama mót og Cat vann 42 árum síðar. Cat byrjaði að spila golf í Cantaco Golf Club – sem stofnaður var af foreldrum hennar -í Saint-Jean-de-Luz í Frakklandi og var fljótlega yfirburðakylfingur í unglingastarfinu þar. Cat varð aldrei atvinnumaður í golfi en sigraði 2 stærstu áhugamannamót í heiminum og þar að auki 1 risamót atvinnukylfinga, US Women´s Open Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 27. 2013 | 08:30

Íslandsbankamótaröð unglinga (4) hefst í Mosfellsbæ í dag

Fjórða mótið á Íslandsbankamótaröð unglinga er leikið á Hlíðavelli, Golfklúbbnum Kili í Mosfellsbænum. Mikill metnaður er hjá klúbbnum að gera umgjörð mótsins sem besta fyrir kylfingana þar sem þetta er í fyrsta sinn sem stigamót á vegum GSÍ er leikið á hinum nýstækkaða 18 holu velli. Í fyrsta skipti á Íslandsbankamótaröð unglinga, verður hægt að fylgjast með skori kylfinga eftir 5 og 9 holur á www.golf.is með því að velja mótaskrá-unglingamót-Íslandsbankamótaröðin-núverandi staða-velja flokk kylfings –sækja-og smella svo á nafn viðkomandi. Einnig fá kylfingar drykk og fleira á 10.teig í boði Rolf Johansen. Allir eru velkomnir á Hlíðavöll að fylgjast með þessum hæfileikaríku kylfingum.  


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 26. 2013 | 22:00

Opna bandaríska risamótið í kvennagolfinu hefst á morgun!

Verður það sigurvegari síðustu helgi á Walmart mótinu í Arkansas, nr. 1 á Rolex-heimslista kvenna, Inbee Park frá Suður-Kóreu,  sem stendur uppi sem sigurvegari á 3. risamóti ársins í kvennagolfinu, þ.e. US Women´s Open, sem hefst á morgun? Þetta er í 68. skiptið sem US Women´s Open fer fram og að þessu sinni er leikið  á einum golfvalla Sebonack golfklúbbsins í Southampton, N.Y. Þátt taka 156 bestu kvenkylfingar heims og keppt er um einn stærsta tékka í kvennagolfinu $ 585.000,- Sú sem á titil að verja er Na Yeon Choi frá Suður-Kóreu, en hún vann á US Women´s Open í fyrra þegar það fór fram á Blackwolf Run golfvellinum í Kohler, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 26. 2013 | 21:30

Rory biðst afsökunar

Er Rory orðinn þreyttur á þessum Nike kylfum sem ekkert gengur með? Á Opna bandaríska risamótinu var tekið eftir því að Rory McIlroy beyglaði 9-járnið sitt eftir að hafa fengið „snjókerlingu“ þ.e. verið á 8 höggum á 11. holu Austurvallar Merion golfstaðarins. „Ég var bara pirraður og það var alls ekki rétt af mér að gera þetta,“ sagði Rory á blaðamannafundi í dag fyrir Irish Open, sem hefst á morgun. „Það er ekki til eftirbreytni fyrir þá sem sáu þetta í sjónvarpi, börn eða hvern sem er að byrja á kylfukasti eða beygla kylfurnar sínar.“ „Það er búið laga 9-járnið mitt og það er með nýju skafti og tilbúið til Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 26. 2013 | 20:45

Gísli í 3. sæti í Finnlandi eftir 1. dag

Fyrsti hringurinn af þremur var leikinn í dag á Finnish International Junior Championship mótinu sem fram fer á Cooke vellinum í Vierumäki í Finnlandi. Tólf keppendur frá Íslandi leika á mótinu, keppt er í fjórum flokkum þ.e.a.s. í 15-16 ára og 14 ára og yngri stelpur og strákar. Gísli Sveinbergsson GK, lék best íslensku kylfingana í dag en hann lék völlinn 72 höggum eða á pari.   Flokkur strákar 15-16 ára 3.sæti                   Gísli Sveinbergsson GK, 72 högg (PAR) 6.sæti                   Kristófer Orri Þórðarson GKG, 74 högg (+2) 21.sæti                 Óðinn Þór Ríkharðsson GKG, 77 högg (+5) 31.sæti                 Fannar Ingi Steingrímsson GHG, 79 högg (+7) 35.sæti                 Birgir Björn Magnússon GK, 80 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 26. 2013 | 20:30

Afmæliskylfingur dagsins: Rakel Garðarsdóttir – 26. júní 2013

Það er Rakel Garðarsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Rakel er fædd 26. júní 1963 og á því 50 ára stórafmæli í dag! Rakel er búsett í Osló, Noregi. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með daginn hér að neðan: Rakel Gardarsdottir (50 ára stórafmæli – Innilega til hamingju!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Babe Didrikson Zaharias, 26. júní 1911-d. 27. september 1956; Pamela Wright, 26. júní 1964 (49 ára); Joanne Bannerman (áströlsk), 26. júní 1974 (39 ára); Colt Knost, 26. júní 1985 (28 ára) …… og …….   Símon Levi (17 ára) Benedikt Árni Harðarson (18 ára) Guðrún Elísabet Stefánsdóttir Áslaug Helgudóttir (55 ára) Rúnar Már Smárason (42 ára) Lesa meira