Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 28. 2013 | 15:00
Tiger vísar gagnrýni Faldo á bug

Tiger Woods hefir kurteisislega vísað gagnrýni Nick Faldo á sér á bug með því að hrista höfuðið í vantrú. Faldo, sem talaði við einn af bandarísku netfréttamiðlunum sagði m.a.: „Tiger hefir vaknað og gert sér grein fyrir að þetta er erfið íþrótt og að hann er aðeins dauðlegur.“ Þetta komment lét Faldo falla í umræðu um slælega frammistöðu Tiger á US Open risamótinu nú nýlega, en síðan þá hefir komið í ljós að Tiger átti við meiðsl í olnboga að stríða, sem m.a. hefir leitt til þess að vafi er á hvort hann geti leikið á Opna breska í næsta mánuði. Faldo bætti við:„Hann er bara ekki á góðum stað Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 28. 2013 | 13:00
Gerður Hrönn fór holu í höggi í fyrstu landsliðsferðinni
Það eru alltaf gleðistund þegar kylfingar fara holu í höggi og það er örugglega ekki verra ef það gerist í fyrstu landsliðsferðinni. Gerður Hrönn Ragnarsdóttir, Golfklúbbi Reykjavíkur, sem er meðal keppenda á Finnish International Junior Championship fór holu í höggi á 17. holu á Cooke vellinum, í Vierumäki, í Finnlandi, á öðrum keppnisdegi í gær. Það eru örugglega ekki margir Íslendingar heldur sem hafa farið holu í höggi í Finnlandi og Gerður Hrönn auk þess ein af sárafáum sem það gerir í fyrstu landsliðsferðinni. Svona er þetta flotta, unga fólk í golfinu, glæsilegir fulltrúar okkar erlendis!!! Golf 1 óskar Gerði Hrönn innilega til hamingju með ásinn!!!
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 28. 2013 | 08:45
GB: Flugmiðar meðal verðlauna á Opna Icelandair Hotels mótinu nk. laugardag!

Langar þig út í heim? Þá er tilvalið á skreppa í Borgarnes og taka þátt í Opna Icelandair Hotels mótinu, sem fram fer n.k. laugardag á Hamarsvelli í Borgarnesi, því meðal vinninga eru flugmiðar með Icelandair út í heim. Leikfyrirkomulagið er punktakeppni með forgjöf og veitt eru nánadarverðlaun á öllum par-3 holum. Reyndar eru öll verðlaun með glæsilegasta móti, sbr. eftirfarandi: Flugmiðar með Icelandair út í heim Gjafabréf fyrir tvo á Icelandair Hótel Akureyri með morgunmat. Gjafabréf fyrir tvo á Icelandair Hótel Natura með morgunmat. Gjafabréf fyrir tvo á Icelandair Hótel Hamar með morgunmat. Gjafabréf fyrir tvo á Icelandair Hótel Hamar með morgunmat. Gjafabréf fyrir tvo í brunch á Icelandair Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 28. 2013 | 07:00
PGA: Castro efstur á AT&T

Það er Roberto Castro sem leiðir eftir 1. dag AT&T mótsins, sem hófst í gær á Congressional í Maryland. Castro lék á 5 undir pari, 66 höggum. Í 2. sæti 2 höggum á eftir Castro eru 3 kylfingar: Bud Cauley, Graham DeLaet og Billy Horschel. Í 5. sæti er hópur 8 kylfinga en þeirra á meðal eru m.a. Jim Furyk, Nicolas Colsaerts og Brandt Snedeker en þeir eru allir á 2 undir pari, 69 höggum og eru því 3 höggum á eftir Castro. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á AT&T SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 1. dags á AT&T SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 28. 2013 | 06:30
Hver er kylfingurinn: Ha-Neul Kim?

Ha Neul Kim leiðir á 3. risamóti ársins, US Women´s Open eftir 1. dag, er 1 höggi á undan nr. 1 á Rolex-heimslista kvenna, Inbee Park. Ha Neul er fremur óþekkt nafn hérlendis, þannig að spurning er hver þessi fallegi kylfingur frá Suður-Kóreu sé? Ha Neul Kim er fædd 17. desember 1988 og er því 24 ára. Hún komst fyrst á kóreanska LPGA árið 2007, þá 18 ára en hefir einkum blómstrað s.l. 2 ár, með því að hún hefir verið leiðandi á peningalista KLPGA. Hún vakti fyrst athygli á sér fyrir fegurð, en hún þykir óvenjufalleg og eins fyrir klæðaburð, en einkennislitur hennar er heiðblár en Ha-Neul þýðir einmitt Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 28. 2013 | 05:00
LPGA: Ha-Neul Kim efst á US Women´s Open eftir 1. dag

Það er Ha-Neul Kim frá Suður-Kóreu, sem leiðir eftir 1. dag US Women´s Open á 6 undir pari, 66 höggum. Þó Ha-Neul sé fremur óþekkt nafn hér á landi, þá er hún það ekki í Suður-Kóreu en þar hefir Ha-Neul verið efst á peningalista KLPGA undanfarin 2 ár og hlaut verðlaun í fyrra fyrir að vera með lægsta meðaltalsskorið. Aðeins munaði minnstu að hún yrði líka valin leikmaður ársins í Suður-Kóreu, en þar varð hún í 2. sæti. Ha-Naul hefir látið hafa eftir sér að hana langi ekki í Q-school til þess að komast inn á aðrar mótaraðir, en langi til þess að öðlast keppnisrétt með því að sigra mót, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 27. 2013 | 21:25
Gísli í 2. sæti í Finnlandi – var á 1 undir pari í dag!!!

Gísli Sveinbergsson úr Golfklúbbnum Keili er heldur betur að standa sig vel í Finnlandi, Gísli sem lék á pari í gær bætti um betur í dag og spilaði á einu höggu undir pari þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Úrhellisrigning og eldingahætta olli því að fresta þurfti leik um tvær stundir í dag á Finnish International Junior Championship mótinu sem fram fer á Cooke vellinum í Vierumäki í Finnlandi. Lokahringurinn verður leikinn á morgun, hægt er að fylgjast með skori keppenda með því að SMELLA HÉR: Helstu úrslit eftir 2. dag í Vierumäki eru eftirfarandi: Flokkur telpur 15-16 ára 7.sæti Ragnhildur Kristinsdóttir GR 80/78 (+14) 13.sæti Birta Dís Jónsdóttir GHD Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 27. 2013 | 21:12
Íslandsbankamótaröðin (4): Ragnar Már og Sóley Edda efst í flokki 14 ára og yngri eftir 1. dag
Nú rétt í þessu lauk keppni í yngsta aldursflokknum á 4. móti Íslandsbankamótaraðarinnar, sem hófst á Hliðarvelli, í Mosfellsbæ í dag. Í efsta sæti í strákaflokki var heimamaðurinn Ragnar Már Ríkharðsson, GKJ, á 2 yfir pari, 74 höggum. Hjá stelpunum, en í stelpuflokki voru bara 5 þátttakendur, var það Sóley Edda Karlsdóttir, GR, sem sigraði en hún var á 11 yfir pari, 83 höggum. Sjá má heildastöðuna í stelpuflokki eftir 1. dag 4. móts Íslandsbankamótaraðarinnar hér að neðan: 1 Sóley Edda Karlsdóttir GR 18 F 41 42 83 11 83 83 11 2 Hekla Sóley Arnarsdóttir GK 23 F 42 46 88 16 88 88 16 3 Sunna Björk Karlsdóttir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 27. 2013 | 21:00
Sigurvegarinn á Opna breska fær 180 milljónir!

Verðlaunafé á Opna breska hækkar um 5% milli ára. Ernie Els fékk um 171,5 milljónir íslenskra króna fyrir sigur sinn í fyrra á Opna breska. Nú í ár hækkar verðlaunaféð um 5% eða 8,5 milljónir íslenskra króna í 180 milljónir króna. Heildarverðlaunaféð er 5,25 milljónir punda eða 1 milljarður íslenskra króna og þar af fær sigurvegarinn nú 945.000 pund. Verðlaunaféð hefir tvöfaldast á rúmum áratug en þegar Tiger Woods vann Opna breska á St. Andrews árið 2000 hlaut hann 500.000 pund í verðlaunafé. Hér má sjá verðlaunaféð á Opna breska í ár (efstu 70 sætin þ.e. fyrir þá sem komast í gegnum niðurskurð): Verðlaunafé Sæti £ Sæti £ Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 27. 2013 | 20:30
Rory á 74 á Irish Open

When Irish Eyes are Smiling söng John McCormack s.s. frægt er (það má heyra lagið í flutningi hans með því að SMELLA HÉR: ) Brosið var langt frá því að ná til augna Rory McIlroy enda var 1. hringur hans á Irish Open í dag hringur vonbrigða. Hann lék á 2 yfir pari, 74 höggum og kemst kannski í gegnum niðurskurð, en er langt frá því sigurformi sem hann var í á s.l. ári. Reyndar var hann jafnrauður í andlitinu og Nike-dræverinn hans. Svo virðist sem Rory líði vel allsstaðar annars staðar en á golfvelli þessa dagana. Rory hitti aðeins 5 af 14 brautum í dag. „Ég er að missa Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

