Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 29. 2013 | 15:30

Afmæliskylfingur dagsins: Hans Steinar Bjarnason – 29. júní 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Hans Steinar Bjarnason, íþróttafréttamaður. Hans Steinar er fæddur 29. júní 1973 og á því 40 ára stórafmæli í dag!!! Komast má á facebook síðu Hans Steinars til þess að óska honum til hamingju með daginn  hér að neðan Hans Steinar Bjarnason (40 ára) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Lonnie Dean Nielsen, 29. júní 1953 (60 ára stórafmæli!!!)  ….. og …… Hilmar Halldórsson, GKG (51 árs) Camilla Tvingmark, GKJ (44 ára) Egill Ragnar Gunnarsson, GKG (17 ára) Kolbrún Kolbeinsdóttir (49 ára) Þórir Tony Guðlaugsson (44 ára) Sigurður Pétursson (53 ára) Sigurdur Arnarson (46 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 29. 2013 | 15:00

55 ára spilar Langer besta golf ævinnar

Jessica Marksbury aðstoðarritstjóri Golf Magazine tók nýlega eftirfarandi viðtal við þýska kylfinginn Bernhard Langer, sem er orðinn 55 ára (f. 27. ágúst 1957) en er nú um stundir að spila eitthvert besta golf ævinnar. Langer gerðist atvinnumaður í golfi 1976 og hefir á löngum ferli sínum sigrað 89 sinnum (þar af 42 sinnum á Evrópumótaröðinni og 2 sinnum á risamótum, bæði skiptin Masters (1985 og 1993).  Hér fer viðtalið í lauslegri íslenskri þýðingu: Golf Magazine:  Ekki aðeins náðir þú niðurskurði á Masters í ár en þú varst líka með efstu kylfinga á lokhringnum áður en þú varðst í 25. sætinu.  Fékkstu drykk úr æskubrunninum?  Bernhard Langer:  Þetta snýst bara um Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 29. 2013 | 09:25

Rory komst ekki gegnum niðurskurð

Rory McIlroy komst ekki í gegnum niðurskurð á Irish Open.  Niðurskurður var miðaður við parið en Rory var á samtals 2 yfir. (74 72) og var því 2 höggum frá því að ná í gegn. Ekki góð frammistaða þetta hjá nr. 2 í heiminum, en fátt hefir verið um fína drætti hjá honum það sem af er keppnistímabilsins. „Þetta eru vonbrigði.  Ég varð bara fyrir vonbrigðum með hvernig ég spilaði í gær (fyrradag – þ.e. fimmtudag 1. dag mótsins), mér leið í raun aðeins betur í dag (gær),“ sagði McIlroy. „Þegar ég missti flöt náði ég ekki að bjarga því og ég setti ekki niður mörg pútt, en slátturinn var Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 29. 2013 | 09:00

LPGA: Inbee í forystu

Þegar US Women´s Open mótið er hálfnað hefir nr. 1 á Rolex-heimslista kvenna, Inbee Park frá Suður-Kóreu tekið forystu. Hún er búin að spila á samtals 9 undir pari, 135 höggum (67 68) og á 2 högg á þá konu sem næst henni er, löndu sína IK Kim, sem er á samtals 7 undir pari. Þriðja sætinu deila hin mexíkansk ættaða Bandaríkjakona Lizette Salas, sem enn hefir ekki tekist að sigra á LPGA þrátt fyrir að vera meðal efstu 5 í fjölda móta undanfarið og hin unga, enska Jodi Ewart Shadoff, báðar á 4 undir pari. Það eru því heil 5 högg sem skilja að Inbee og þær sem eru í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 29. 2013 | 08:00

PGA: Castro og Spieth efstir

Það eru Jordan Spieth og Roberto Castro sem leiða á AT&T National mótinu þegar það er hálfnað. Báðir eru búnir að spila á samtals 7 undir pari, 135 höggum; Castro (66 69) og Spieth (69 66). Jordan Spieth hóf tímabilið með engan status á PGA Tour en nú lítur út fyrir að hann fái fullan keppnisrétt eftir frábæran árangur í þeim mótum sem hann hefir fengið að spila í, í 1 ár.  Takist honum að sigra í mótinu tryggir hann sér keppnisrétt í 2 ár og fær þar að auki að spila í FedEx Playoff í haust. Frábær árangur hjá þessum 19 ára pilt frá Texas sem lék í 1. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 29. 2013 | 07:00

The Irish Open í beinni

Mót vikunnar á Evrópumótaröðinni er The Irish Open, sem fram fer í Carton House golfklúbbnum í Maynooth, Kildare, á Írlandi. Þegar mótið er hálfnað eru Robert Rock og Peter Uihlein efstir. Stórfrétt gærdagsins var að nr. 2 á heimslistanum Rory McIlory komst ekki í gegnum niðurskurð. Jafnframt komust menn á borð við Pádraig Harrington, Graeme McDowell og Darren Clarke ekki í gegnum niðurskurðinn. Bein útsending hófst kl. 7:00 Til þess að sjá The Irish Open í beinni SMELLIÐ HÉR: Til þess að fylgjast með skori keppenda á skortöflu SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 28. 2013 | 20:30

Íslandsbankamótaröðin (4): Ragnar Már og Sóley Edda sigruðu í flokki 14 ára og yngri

Nú rétt í þessu lauk keppni í flokki 14 ára og yngri á 4. móti Íslandsbankamótaraðarinnar. Sigurvegari í stelpuflokki var Sóley Edda Karlsdóttir, GR, en hún var á 32 yfir pari, samtals 176 höggum (83 93).  Í 2. sæti varð Hekla Sóley Arnardóttir, GK, á samtals 41 yfir pari og í 3. sæti varð Kinga Korpak, GS, á samtals 48 yfir pari. Sigurvegari í strákaflokki varð heimasmaðurinn Ragnar Már Ríkharðsson, GKJ á 14 yfir pari, samtals 158 höggum (74 84).  Í 2. sæti varð Ingvar Andri Magnússon, GR aðeins 1 höggi á eftir á samtals 15 yfir pari og í 3. sæti varð Bragi Aðalsteinsson, GKG, á samtals 19 yfir Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 28. 2013 | 19:45

Íslandsbankamótaröðin (4): Eva Karen og Björn Óskar sigruðu í flokki 15-16 ára

Heimadrengurinn Björn Óskar Guðjónsson úr Golfklúbbnum Kili sigraði í flokki drengja 15-16 ára á Íslandsbankamótaröðinni, sem lauk rétt í þessu á Hlíðarvelli Mosfellsbæ. Björn Óskar lék hringina tvo á 152 höggum, átta yfir pari.  Jafnir í öðru sæti hafnaði Tumi Hrafn Kúld úr Golfklúbbi Akureyrara og Einar Snær Ásbjörnsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur báðir á 154 höggum,  eða tíu yfir pari. 1.sæti   Björn Óskar Guðjónsson   GKJ     73/79 =152 +8 2.sæti   Tumi Hrafn Kúld                           GA         77/77 =154 +10 2.sæti   Einar Snær Ásbjörnsson            GR         78/76 =154 +10 Eva Karen Björnsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur sigraði í flokki telpna 15-16 ára með Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 28. 2013 | 18:15

Íslandsbankamótaröðin (4): Helga Kristín og Aron Snær sigruðu í flokki 17-18 ára

Aron Snær Júlíusson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar sigraði í piltaflokki 17-18 ára á Íslandsbankamótaröðinni, en keppni í elstu flokkum er lokið. Aron Snær spilaði einstaklega vel í mótinu, hann jafnaði vallarmetið af hvítum teigum í gær þegar hann spilaði á 69 höggum, í dag kom hann inn á 74 höggum og endaði á 143 höggum eða einum undir pari. Í öðru sæti hafnaði Ísak Jasonarson úr Golfklúbbnum Keili á 148 höggum og þriðji varð Ragnar Már Garðarsson úr Golfklúbbbi Kópavogs og Garðabæjar á 149 högum. Piltar 17-18 ára. 1.sæti   Aron Snær Júlíusson                      GKG      69/74=143 -1 2.sæti   Ísak Jasonarson                               GK          75/73=148 +4 3.sæti   Ragnar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 28. 2013 | 17:22

Gísli lauk keppni í 2. sæti í Finnlandi eftir bráðabana!!!

Gísli Sveinbergsson úr Golfklúbbnum Keili, í Hafnarfirði, endaði í öðru sæti eftir bráðabana á Finnska meistaramótinu sem var að ljúka. Spilamennska Gísla var framúrskarandi allt mótið en hann spilaði hringina þrjá á tveimur högggum undir pari líkt og Valimar frá Finnlandi. Gísli og Valimark voru jafnir eftir 15. holu á lokahringnum, þeir áttu síðan báðir mjög góðan endasprett og fengu báðir fugl á tveimur síðustu holunum. Bráðabana þurfti því til að knýja fram sigurvegara en því miður fyrir okkar mann þá endaði hann með sigri Valimar. Finnska meistaramótið er mjög sterkt mót og er útkoma okkar kylfinga enn ein sönnun þess að íslenska golfið er á réttri leið.  Heimild: golf.is