Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 30. 2013 | 19:45

PGA: Bill Haas vann á AT&T

Það var Bill Haas sem sigraði á AT&T National mótinu. Haas lék á 12 undir pari, 272 höggum (70 68 68 66) og átti 3 högg á næsta mann, landa sinn Roberto Castro, sem búinn var að leiða mestallt mótið. Þriðja sætinu deildu DH Lee frá Suður-Kóreu og Jason Kokrak á samtals 8 undir pari, 4 höggum á eftir Haas. Í 5. sæti varð Stewart Cink og því 6. Texasbúinn 19 ára, Jordan Spieth. Til þess að sjá úrslit AT&T National SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 30. 2013 | 19:30

AT&T í beinni

Mót vikunnar á PGA Tour er AT&T National. Leikið er á Congressional Country Club í Bethesda, Maryland. Það eru 4 sem eru efstir og jafnir fyrir lokahringinn: James Driscoll, Roberto Castro, Bill Haas og Andres Romero. Bein útsending hófst kl. 12:00 í dag. Til þess að sjá AT&T í beinni SMELLIÐ HÉR: Til þess að fylgjast með skori keppenda á skortöflu SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 30. 2013 | 18:15

Evróputúrinn: Paul Casey sigraði á Irish Open

Það var Englendingurinn Paul Casey, sem sigraði á Opna írska (ens. Irish Open) í Carton House golfklúbbnum í dag. Casey lék samtals á 14 undir pari, 274 höggum (68 72 67 67). Hann átti 3 högg á þá sem næstir komu en það voru Joost Luiten frá Hollandi og Englendingurinn Robert Rock, en báðir voru þeir á samtals 11 undir pari, hvor. Í 4. sæti varð síðan spænski kylfingurinn Pablo Larrazabal á samtals 9 undir pari. Til þess að sjá úrslitin á Irish Open SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 30. 2013 | 18:00

Ólafía Þórunn sigraði í Danmörku – Guðmundur Ágúst varð í 2. sæti!!!

Íslandsmeistarinn okkar í holukeppni 2013, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR  sigraði á Team Rudersdal Open mótinu, sem fram hefir farið nú um helgina 29.-30. júní í Furesö Golfklub í Danmörku. Keppendur í kvennaflokki voru 10 lokahringinn.  Ólafía vann á 7 yfir pari, 220 höggum (70 74 76). Hinn Íslandsmeistarinn okkar í holukeppni Guðmundur Ágúst Kristjánsson,  GR,  varð í 2.sæti í karlaflokki. Þátttakendur í karlaflokki lokahringinn voru 28.  Hann lék á samtals 4 yfir pari, 217 höggum (75 70 72).   Aðeins munaði 1 höggi á Guðmundi Ágúst og sigurvegara mótsins Nicolai Tinning frá Danmörku. Til þess að sjá úrslitin í mótinu SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 30. 2013 | 15:00

GL: GVG-konur sigursælar á Helenu Rubinstein!

Í  gær héldu Leyniskonur Opna Helena Rubinstein mótið  á Garðavelli á Akranesi. 96 konur úr 18 golfklúbbum tóku þátt í mótinu að þessu sinni og léku þær í fínasta veðri. Helstu úrslit mótsins voru sem hér segir: Forgjafarflokkur 0-17,9: 1. sæti: Hugrún Elísdóttir, GVG, 39 punktar 2. sæti: María Björg Sveinsdóttir, GL, 35 punktar 3. sæti: Petrún Björg Jónsdóttir, GVG, 34 punktar Forgjafarflokkur 18-27,9: 1. sæti: Ásgerður Þórey Gísladóttir, GHG, 38 punktar 2. sæti: Ella María Gunnarsdóttir, GL, 36 punktar 3. sæti: Oddný Sigursteinsdóttir, GR, 33 punktar Forgjafarflokkur 28-36: 1. sæti: Kolbrún Haraldsdóttir, GVG, 38 punktar 2. sæti: Hekla Ingunn Daðadóttir, GKJ, 35 punktar 3. sæti: Erna Margrét Gunnlaugsdóttir, GVS, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 30. 2013 | 00:40

NK: Nökkvi á 66 á Nesinu

Opna Úrval-Útsýn mótið fór fram á Nesvellinum í gær við frábærar aðstæður þar sem völlurinn skartaði sínu fegursta og stafalogn var á meðan mótinu stóð. Það voru rúmlega eitthundrað þátttakendur og komust færri að en vildu. Við aðstæður sem þessar má alltaf búast við góðum skorum og var það svo sannarlega raunin. Nökkvi Gunnarsson úr Nesklúbbnum átti hring dagsins þar sem hann lék á 66 höggum eða sex höggum undir pari og sigraði í höggleiknum.  Hringurinn var „gallalaus“ af hálfu Nökkva þar sem hann fékk engan skolla heldur sex fugla og tólf pör.  Glæsilegur hringur hjá Nökkva sem hlýtur að gefa honum byr undir báða vængi fyrir Meistaramót klúbbsins sem Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 30. 2013 | 00:30

PGA: Fjórir deila efsta sætinu fyrir lokahringinn á AT&T

Það eru þeir Roberto Castro, James Driscoll, Bill Haas og Andres Romero sem eru efstir og jafnir fyrir lokahringinn sem verður leikinn á morgun á AT&T mótinu. Allir eru þeir búnir að spila á 7 undir pari, 206 höggum. Í 5. sæti aðeins 1 höggi á eftir forystunni er Jason Kokrak. Tveir kylfingar deila síðan 6. sætinu þeir Tom Gillis og Charlie Wi og í 8. sæti eru þeir Jordan Spieth, Brandt Snedeker og Brendon Todd á samtals 4 undir pari. Til þess að sjá stöðuna eftir 3. hring AT&T SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 3. dags á AT&T mótinu SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá högg 3. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 29. 2013 | 18:20

Rory g. vélmenninu Jeff

Til þess að auglýsa Evrópumótaröðina ákváðu forsvarsmenn hennar að útbúa sniðugt myndskeið þar sem besti kylfingur Evrópu? Rory McIlroy keppti við vélmenni sem hlotið hefir nafnið Jeff. Jeff er búinn GPS og hárnákvæmur. Rory og Jeff kepptu um að hitta þvottavélar á æfingasvæði því Rory gerði það sér að leik að slá bolta í þvottavél mömmu sinnar þegar hann var lítill snáði. Til þess að sjá myndskeiðið með Rory og vélmenninu Jeff SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 29. 2013 | 18:10

Evróputúrinn: Luiten efstur á Írlandi

Það er Hollendingurinn Joost Luiten, sem tekið hefir forystu á Irish Open, en hann er á samtals 13 undir pari, 203 höggum (67 70 66).  Luiten átti hreint stórkostlegan hring í dag, sem er aðalástæðan fyrir að hann situr nú í 1. sæti – 6 undir pari, 66 högg!!! Á hringnum fékk Luiten 6 fugla og 12 pör skilaði sem sagt hreinu skorkorti og skipti fuglunum jafnt, þ.e. fékk 3 á fyrri 9 og 3 á seinni 9. Í 2. sæti aðeins 1 höggi á eftir er Spánverjinn Pablo Larrazabal á 12 undir pari, 204 höggum.  Í 3. sæti er síðan Robert Rock á samtals 10 undir pari. Til þess Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 29. 2013 | 16:30

Tiger vill að Vonn sé ekki að tjá sig um þau

Tiger Woods vill að kæresta hans Lindsey Vonn, sé ekkert að tjá sig of mikið um samband þeirra í fjölmiðlum. Tiger varð reiður nú um daginn þegar Lindsey kallaði sjálfa sig „eiginkonu hans“ í blaðaviðtali. Kommentið fór líka illa í fyrrum eiginkonu Tiger, Elinu Nordegren  og Tiger er dauðhræddur um að hún muni reyna að koma í veg fyrir að hann fái að sjá börn sín Sam og Charlie. „Elín er ævareið“ sagði heimildarmaður bandaríska kjaftablaðinu the National Enquirer. „Hún hefir sagt Tiger að hún viji fá forsjá barna sinna ein og hún sé að taka fyrstu skref til þess að halda þeim frá Lindsey.“ Lindsey lét kommentin falla í fyrsta blaðaviðtali sínu frá því Lesa meira