Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 1. 2013 | 18:15
GÖ: Vinavallarsamningi við GOS rift

Stjórn GÖ hefur samþykkt að segja upp vinavallasamningi við Golfklúbb Selfoss frá og með deginum í dag, 1. júlí 2013. Vinavellir GÖ eru núna Hveragerði og Kiðjaberg. Golf 1 hafði samband við stjórnarmenn í stjórn Golfklúbbs Öndverðarness, en menn þar vildu ekki tjá sig um ástæður riftunarinnar.
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 1. 2013 | 14:15
Afmæliskylfingur dagsins: Júlíana Kristný Sigurðardóttir – 1. júlí 2013
Afmæliskylfingur dagsins er Júlíana Kristný Sigurðardóttir. Júlíana Kristný er fædd 1. júlí 1998 og á því 15 ára afmæli í dag! Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með merkisafmælið hér að neðan: Júlíana Kristný Sigurðardóttir (15 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Julien Guerrier, 1. júlí 1985 (28 ára); Jade Schaeffer, 1. júlí 1986 (27 ára) ….. og ….. Oddný Hrafnsdóttir (51 árs) Classic Sportbar Lipurtá Snyrtistofa (26 ára) Bluessamband Reykjavíkur (28 ára) Sportstöðin Selfossi Glingur Net Hljómsveitin Allt Í Einu Veiðifélag Bjarnareyinga (103 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 1. 2013 | 14:00
Tiger „lobbýast“ í að AT&T verði áfram á Congressional

Bethesda, Maryland þar sem Congressional golfvöllurinn er, er nálægt í reyndar í miðri hringiðu þekktrar miðsstöðvar heimspólítíkur og meðfylgjandi lobbýisma. Tiger Woods var engin undantekning en hann „lobbýaðist“ á blaðamannafundi fyrir því að AT&T National mótið mætti áfram vera haldið í Congressional CC. Tiger hefir notið þess undanfarin ár að spila á AT&T og var gestgjafi mótsins hér áður fyrr, en hann tók ekki þátt í þetta sinn sökum meiðsla í olnboga en hann er að hvíla olnbogann fyrir Opna breska. „Það hefir verið frábært að spila hér,“ sagði Tiger. „Við höfum notið tímans hér. Treystið mér, okkur (PGA Tour) langar til að koma aftur.“ „Fólkið hér kom og studdi Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 1. 2013 | 13:45
Allt jafnt á golfmóti lækna og lögmanna í ár – 5-5! – Myndasería

Í gær kepptu 20 læknar við 20 lögmenn í hinu árlega lækna-lögmanna móti í blíðskaparveðri á Urriðavelli. Ráshópar voru 10, 2 lögmenn kepptu við 2 lækna í betri bolta. Leikar fóru svo að allt var jafnt, staðan 5-5 og fá læknar að halda farandbikar, en þeir unnu keppnina í fyrra og eiga lögmenn því harma að hefna að ári liðnu. Hér má sjá myndaseríu af liðum lækna og lögmanna, sem kepptu í dag SMELLIÐ HÉR: Með þessu jafnræði í úrslitum hafa læknar og lögmenn unnið nákvæmlega jafnoft í þessari árlegu keppni, frá árinu 1995, en tvisvar sinnum áður frá 1995 hefir verið jafnt með liðunum. Mótið er þó eldra en Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 1. 2013 | 13:25
Heimslistinn: Casey upp um 67 sæti

Englendingurinn Paul Casey virðist vera að jafna sig á meiðslum, en hann vann í fyrsta sinn í lengri tíma mót í gær; og það hvorki meira né minna en Irish Open. Sigurinn dugði Casey þó ekki til þess að komast á topp-100 á heimslistanum en hann var fyrir mótið í 169. sæti. Casey fer þó vegna sigursins upp um 67 sæti og situr nú í 102. sæti heimslistans. Bill Haas, sem sigraði svo glæsilega á AT&T National mótinu á PGA Tour fer upp um 5 sæti á heimslistanum vegna sigursins var í 29. sæti en er nú í 24. sæti heimslistans. Litlar breytingar eru meðal efstu 12 á heimlistanum. Efstu Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 1. 2013 | 10:45
Viðtal við landsliðsþjálfarann eftir Finnish International Junior Open
Á föstudag lauk Finnish International Junior Championship, sem fram fór í Vierumäki í Finnlandi. Þetta er í annað sinn sem mótið fer fram með alþjóðlegum keppendum og hafa Íslendingar átt þátttakendur í bæði skipin. Í fyrra fóru fimm keppendur en tólf sóttu mótið í ár. Mótið er fyrir stúlkur og drengi í flokkum 15-16 ára og 14 ára og yngri og telur Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari þetta mót henta vel fyrir okkar fremstu unglinga í þessum aldursflokkum. Gísli Sveinbergsson úr Golfklúbbnum Keili náði frábærum árangri og hafnaði í öðru sæti eftir bráðabana um sigurinn við Finnann Sami Valimaki. Að sögn Úlfars var keppnin gríðarlega spennandi allan tímann. Gísli var með forystuna Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 1. 2013 | 07:15
GHH: Anna Kristín og Gestur sigruðu á Opna Humarhátíðarmótinu á Höfn!

Opna Humarhátíðarmótið fór fram laugardaginn 29. júní á Höfn í Hornafirði. Þátttakendur í ár voru 31, 28 karlar og 3 konur. Leikfyrirkomulagið var punktakeppni með forgjöf og keppt í karla- og kvenaflokki og verðlaun veitt fyrir efstu 3 sæti. Jafnframt voru veitt verðlaun fyrir besta skor og fyrir að vera næstur holu. Verðlaunin voru humar á grillið frá Skinney Þinganes. Allir voru auk þess leystir út með glæsilegum teiggjöfum og eftir hringinn fengu allir nammilega humarsúpu, eins og aðeins fæst á Höfn! Úrslit voru eftirfarandi: Besta skor: Bjartur Logi Finnsson, NK. Hann spilaði Silfurnesvöll á 2 yfir pari, 72 höggum! Punktakeppni með forgjöf/ kvennaflokkur: 1 Arna Kristín Hilmarsdóttir GKJ 12 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 1. 2013 | 06:30
GF: Magdalena fyrsti kvenklúbbmeistari GF!

Meistaramóti GF lauk í gær, 30. júní en keppt var um helgina og spilaðir 2 hringir. Þátttakendur voru 56 talsins og keppt var í 9 flokkum. Klúbbmeistari í ár varð Magdalena S H Þórisdóttir á 161 höggi. Er það í fyrsta sinn sem kona verður klúbbmeistari hjá GF. Veður var gott báða dagana og gekk mótið vel. Þess má einnig geta að í gær fór Hrafnhildur Eysteinsdóttir holu í höggi á 9. holu vallarins í meistaramótinu. Úrslit í meistaramóti GF 2013 voru eftirfarandi: 1. flokkur kvenna 1 Magdalena S H Þórisdóttir GS 12 F 39 38 77 8 84 77 161 23 2 Sigurlaug Rún Jónsdóttir GK 11 F 35 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 30. 2013 | 22:45
Afmæliskylfingur dagsins: Ómar Bogason – 30. júní 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Ómar Bogason. Ómar er fæddur 30. júní 1960 og er því 53 ára í dag. Ómar er í Golfklúbbi Seyðisfjarðar (GSF). Hann hefir m.a. leikið golfið erlendis og var t.d. í hópi Seyðfirðinga á Costa Ballena vorið 2012. Ómar er kvæntur Margréti Urði Snorradóttur og á börnin: Arnar Boga, Helga, Urði Örnu og Dagnýju Erlu. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér til þess að óska honum til hamingju með daginn Ómar Bogason Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Veronica Felibert frá Venezuela, 30. júní 1985 (28 ára); William Park Sr., (30. júní 1833-25. júlí 1903) Lesa má um þann afmæliskylfing með því að SMELLA HÉR: Golf 1 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 30. 2013 | 22:30
LPGA: Inbee Park vann 3. risamótið í röð!!!

Inbee Park skrifaði sig í sögubækurnar í kvöld en hún er búin að vinna öll 3 risamót kvennagolfsins af 5 það sem af er ársins. Það er árangur sem aðeins 3 kvenkylfingum hefir tekist á undan henni þ.e. Babe Zaharias, Mickey Wright og Pat Bradley (frænku Keegan). Nú beinast allra augu að Opna breska kvenrisamótinu en þar á Inbee tækifæri að verða fyrsti kylfingur sögunnar til að vinna 4 risamót á einu og sama keppnistímabilinu. Inbee sigraði á US Women´s Open 2013 með skor upp á samtals 8 undir pari, 280 högg (67 66 71 74). Hún átti 4 högg á þá sem varð í 2. sæti IK Kim, sem Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

