Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 3. 2013 | 12:00

Golfútbúnaður: Titleist setur á markað Scotty Cameron Futura pútter Adam Scott

Titleist fyrirtækið hefir tilkynnt í þessari viku að pútterinn, sem Adam Scott notaði þegar hann vann Masters risamótið 2013,  Scotty Cameron Futura X, muni verða markaðssettur þannig að almenningi gefist kostur á að spila með gripnum. „Ég lýsi Futura X sem frábærum pútter fyrir þá kylfinga sem þarfnast hægrar, stöðugrar stroku þar sem boltinn hoppar ekki mikið,“ sagði aðalhönnuður Scotty Cameron.  „Þetta er hin fullkomna hönnun fyrir Adam og við erum örugg á því að allir kylfingar vilja stöðugleika í stroku sinni ásamt því að þurfa að nota hendurnar minna.“ „Nýi Futura X pútterinn er stöðugasti pútterinn sem ég hef notað,“ sagði Scott m.a. um pútterinn góða. Scott and Scotty (Cameron) Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 3. 2013 | 06:25

Higgins missir af Opna breska fyrir að vera með 15. kylfuna í úrtökumóti

David Higgins er Íri, sem spilar á Evrópumótaröðinni.  Hann komst ekki í gegnum niðurskurð á Opna Írska, (líkt og hálf-landi hans Rory) og hann varð T-29 vikuna áður á BMW International Open. Úrtökumót fóru fram á 4 stöðum fyrir Opna breska; þ.e.á Dunbar golfvellinum, East Lothian, Musselburgh og í North Berwick í Skotlandi og tók Higgins þátt í síðastnefnda úrtökumótinu og viti menn komst í 3 manna bráðabana…. sem hann tapaði fyrir að vera með 15. kylfuna í pokanum.  Úrslit – Dunbar Úrslit – East Lothian Úrslit – Musselburgh Úrslit – North Berwick Starfsmenn R&A voru með fréttina á Twitter en þar sagði: „Fréttir af bráðabananum í North Berwick: David Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 2. 2013 | 21:30

Hvað er í pokanum hjá Inbee Park?

Inbee Park, nr. 1 á Rolex-heimslista kvenkylfinga, sigraði s.s. öllum er kunnugt á 3. risamótinu í röð í ár, þ.e. US Women´s Open á Sebonack golfvellinum í Southampton, New York. Hún hefir því sigrað á öllum risamótum ársins það sem af er og verður spennandi að fylgjast með henni á Opna breska kvenmótinu. Á US Women´s Open varð Inbee Park 3. í röðinni yfir fæst pútt og það á erfiðum flötum Sebonack. Vopnið hennar var Odyssey White Ice Sabertooth pútter. Að öðru leyti var eftirfarandi í sigurpoka Inbee: Srixon XXIO 7 dræver (10.5 gráður), TaylorMade RBZ Tour 3-tré (14.5 gráður), TaylorMade RBZ Tour 5-tré (18 gráður), TaylorMade RBZ Tour blendingur Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 2. 2013 | 17:30

Hverjir eru 10 bestu kylfingar sem ekki hafa unnið risamót?

Þeir hjá Golf Digest hafa tekið saman lista í máli og myndum um 10 bestu kylfinga heims, sem ekki hafa sigrað á risamóti. Hér má sjá samantekt Golf Digest SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 2. 2013 | 10:30

Afmæliskylfingur dagsins: Gunnar Þór Sigurjónsson – 2. júlí 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Gunnar Þór Sigurjónsson. Gunnar Þór fæddist 2. júlí 1994 og er því 19 ára í dag. Hann er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Gunnar Þór hefir spilað á Eimskipsmótaröðinni með góðum árangri og hefir m.a. unnið hjá Golfspjall.is. Gunnar Þór. Mynd: Golf 1. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Gunnar Þór Sigurjónsson (19 ára – Innilega til hamingju með daginn!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Alfred Harry Padgham, f. 2. júlí 1906 – d. 4. mars 1966 ; Brianne Jade Arthur, 2. júlí 1988 (25 ára – áströlsk – á LET) … og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 2. 2013 | 07:20

GB: Bjarki vann á Opna Icelandair Hotels mótinu!

Á laugardaginn s.l. fór fram Opna Icelandair Hotels mótið á Hamarsvelli í Borgarnesi. Þátttakendur voru 104, þar af 24 konur.  Verðlaun voru af glæsilegri endanum m.a. flugmiðar út í heim með Icelandair, þ.e. fyrir besta skor .  Margir aðrir glæsilegir vinningar voru veittir. Verðlaun í mótinu hlutu eftirfarandi: Flugmiði með Icelandair til Evrópu fyrir einn = Bezta skor  höggleikur Bjarki Pétursson, GB á 71 höggi Gjafabréf fyrir tvo á Icelandair Hótel Akureyri með morgunmat+ flugmiði fyrir 2  = 1. sæti pkt:  Guðlaugur Guðjón Kristinsson, GL á 40 pkt. Gjafabréf fyrir tvo á Icelandair Hótel Natura með morgunmat.= 2. sæti pkt:  Sigurður Egill Þorvaldsson, GKJ  á 39 pkt. Gjafabréf fyrir tvo á Icelandair Hótel Hamar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 2. 2013 | 07:00

Golfútbúnaður: Nýi Callaway Optiforce dræverinn

Þremur dögum eftir að Callaway setti á markaðinn nýja  Mack Daddy 2 wedge-inn  þá var tilkynnt að settur yrði á markaðinn nýr  FT Optiforce dræver. Optiforce er léttari og meira fyrirgefandi en síðasti dræver Callaway þ.e. Callaway X Hot og eins á að vera hægt að slá auðveldar hærri bolta með  Optiforce. Nýi dræverinn hefir gengið undir nöfnunum „Falcon“ eða „Project Black Tail“ innan R&D deildar þ.e. rannsóknar og þróunardeildar Callaway, en deildin lofar m.a. bættum boltahraða og val á léttari sköftum.  PGA Tour kylfingarnir Trevor Immelman, Tommy Gainey og Andres Gonzales eru allir þegar farnir að nota nýja, létta Optiforce-inn. Nýi dræverinn er 10 grömmum léttari en Callaway Hot X, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 2. 2013 | 06:30

NK: Styrktarmót Ólafs Lofts á morgun

Styrktarmót fyrir Ólaf Björn Loftsson atvinnukylfing úr Nesklúbbnum verður haldið á morgun, miðvikudaginn, 3. júlí. Ólafur stefnir að því að taka þátt í úrtökumótum fyrir evrópsku og bandarísku mótaraðirnar í golfi í haust. Hann hefur æft stíft á síðustu mánuðum, unnið vel að sínum leik og er fullur sjálfstrausts fyrir komandi verkefni. Markmið hans er að vera í sínu allra besta formi þegar úrtökumótin hefjast og öðlast þátttökurétt meðal bestu kylfinga heims. Mótið mun hefjast klukkan 08:00 og verður ræst út til klukkan 20:00. Ekki eru bókaðir rástímar heldur er boltarennan í gildi á fyrsta teig. Leiknar verða 9 holur og verða veitt verðlaun fyrir 3 efstu sætin í punktakeppni Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 2. 2013 | 01:30

Af kylfingum og kylfusveinum

Fréttir af kylfingum að veitast að kylfusveinum sínum hafa gengið fjöllunum hærra nú á síðustu misserum. Á lokahring Travelers mótsins þegar Bubba Watson missti sigurinn úr höndum sér á síðustu holunum var kylfuberinn húðskammaður.  Aumingja maðurinn gat bara ekki gert neitt rétt, m.a. hreytir Bubba í hann hvort hann sé nú að gefa honum upp réttu fjarlægðirnar?  Ömurlegt að þurfa að verða vitni að svona framkomu kylfinga gagnvart kylfusveinum sínum.  Sjá má myndskeiðið af Bubba á Travelers með því að SMELLA HÉR:  Skrefinu lengra gekk þó bandarísk-tékkneski kylfingurinn Jessica Korda sem tók þátt í Opna bandaríska kvenmótinu (US Women´s Open) nú um helgina.   Hún hreinlega rak kylfusveininn sinn, Jason Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 2. 2013 | 01:00

PGA: Gaf DH Lee áhorfendum fingurinn á AT&T? – Myndskeið

DH Lee deildi 3. sæti á AT&T National mótinu á PGA Tour, sem lauk nú um helgina. Eins og gerist hjá öllum átti hann afar slælegt högg á 3. hring, sem fór svona líka svakalega í taugarnar á honum. Það náðist á upptöku að hann virðist gefa áhorfendum alþjóðlegt merki, miðfingur upp í loft, sem merki um að þeir ættu bara að f@**a? sér. Hann bar reyndar af sér að merkinu hefði verið beint að áhorfendum heldur einungis að sjálfum sér. Heldur dapurlegt að sjá svona hjá atvinnukylfingum og ekki til eftirbreytni! „Mér þykir þetta leitt,“ sagði hinn 25 ára Lee eftir hringinn. „Þessu var beint að mér. Að boltanum Lesa meira