Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 6. 2013 | 20:00
Golfgrín á laugardegi

Gestaspilari á golfvellinum þennan daginn ætlar að fara í sturtu eftir hringinn, en villist inn í kvenna búningsklefann. Þegar hann stendur nakinn og syngjandi undir sturtunni koma 3 konur inn og þá fyrst tekur hann eftir að hann hefir farið í vitlausan búningsklefa. Í örvæntingunni, sem grípur hann detta honum aðeins tveir möguleikar í hug, að hylja mestan part líkama síns eða aðeins höfuðið. Hann velur seinni kostinn og hleypur framhjá konunum. Þær horfa á eftir honum stjarfar af undrun. Síðan þegar sú fyrsta kemur upp orði, segir hún: „Sko, þetta var EKKI maðurinn minn.“ Önnur konan segir: „Þetta er rétt, þetta er ekki maðurinn þinn.“ Og sú þriðja er Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 6. 2013 | 18:55
GSS: Sigríður Eygló og Árný Lilja sigruðu á 10 ára afmælis kvennamóti GSS
Í dag fór fram hið geysivinsæla kvennamót GSS. Að venju var leikformið punktakeppni með forgjöf og veitt fjölmörg aukaverðlaun m.a. fyrir flest högg í vatnið (silungur) og fyrir flestar 6ur (fallegur kvennærfatnaður). Engin af þeim 52 konum sem þátt tóku hafa farið tómhentar því allar velja sér af stóru verðlaunahlaðborði sem kvennanefnd leggur mikinn metnað í og hefir verið veglegt undanfarin 10 ár. Að þessu sinni var um afmælismót kvennamóts GSS að ræða en mótið er 10 ára í ár og af því tilefni var hlaðborðið enn glæsilegra en áður hefur sést og auk slatta hefðbundinna verðlauna voru veitt óhefðbundin aukaverðlaun. Meðal nýjunga í ár var að veitt voru verðlaun fyrir flesta Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 6. 2013 | 18:30
GSF: Sigurður Hreinsson sigraði á Opna Brimbergsmótinu!

Það var Húsvíkingurinn Sigurður Hreinsson sem kom til Seyðisfjarðar, sá og sigraði þ.e. á Opna Brimbergsmótinu sem fram fór í dag. Þátttakendur voru 58, þar af 4 konur. Leikformið var hefðbundið þ.e. höggleikur án forgjafar og punktakeppni með forgjöf. Veitt voru verðlaun fyrir 3 efstu sætin í höggleiknum og 5 efstu í punktakeppninni og gat sami aðili ekki tekið verðlaun í hvorutveggja. Skemmst er frá því að segja að Sigurður vann bæði í höggleiknum, spilaði Hagavöll á 77 höggum og eins í punktakeppninni en hann var á 33 punktum. Í 2. sæti í punktakeppninni, sem væntanlega hefir tekið verðlaun fyrir 1. sætið var heimamaðurinn Gunnlaugur Bogason. Í 2. sæti í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 6. 2013 | 18:00
Evróputúrinn: GMac og Sterne efstir

Fyrir lokadaginn á Alstom Open de France deila Richard Sterne frá Suður-Afríku og GMac þ.e. Graeme McDowell frá Norður-Írlandi, efsta sætinu. Þeir eru báðir búnir að spila á samtals 5 undir pari, 208 höggum, hvor; Sterne (68 69 71) og GMac (69 69 70). Þrír deila þriðja sætinu þ.e. Bernd Wiesberger frá Austurríki, Englendingurinn David Howell og Richard Green frá Ástralíu. Þeir eru allir 1 höggi á eftir forystunni þ.e. á samtals 4 undir pari, 209 höggum, hver. Í 6. sætinu eru síðan Englendingurinn Simon Dyson og Daninn Sören Kjeldsen, á samtals 3 undir pari hvor. Stendur einhver af framangreindum uppi sem sigurvegari á Alstom Open de France á morgun? Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 6. 2013 | 12:30
Fjórir góðir golfstaðir í Evrópu (1/4)

Nú er mitt sumar og eflaust margir, sem búnir eru að skipuleggja golfferðir erlendis, síðsumars eða í haust. Ferðaskrifstofur bjóða upp á fjölmargar og fjölbreytilegar ferðir, en þó eru alltaf einhverjir sem kjósa að skipuleggja sitt eigið frí, kaupa sér flugmiða, leigja sér bíl og prófa velli sem landinn er ekki að fjölmenna á. Fyrir þá sem eru í slíkum hugleiðingum verður hér greint frá nokkrum góðum hugmyndum næstu daga, sem Golf1 getur hæglega mælt með við kylfinga að prófa: PORTÚGAL Vidago Palace Hotel & Golf Resort Heimilisfang: Vidago Palace Hotel Parque de Vidago Apartado 16 5425-307 Vidago Lýsing: Þessi golfvöllur er í fallegu umhverf Valle del Duero (þaðan sem Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 6. 2013 | 11:30
Afmæliskylfingur dagsins: Þóra Kristín Ragnarsdóttir – 6. júlí 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Þóra Kristín Ragnarsdóttir. Þóra Kristín er fædd 6. júlí 1998 og því 15 ára í dag. Þóra Kristín er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Hún spilar á Íslandsbankamótaröðinni og hefir staðið sig vel. Í fyrra, árið 2012, sigraði Þóra Kristín á 2. móti Unglingamótaraðar Arion banka að Hellishólum og spilaði um 1. sætið á 3. mótinu á Korpu. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Arnaud Massey, 6. júlí 1877; Azuma Yano, 6. júlí 1977 (36 ára) ….. og ….. Liz Baffoe Þórhalla Arnardóttir (49 ára) Healing Energy Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 6. 2013 | 07:00
Daly í uppskurð á olnboga

John Daly dró sig úr The Greenbrier Classic mótinu vegna meiðsla á olnboga. Þetta er í 2. sinn í ár að hann dregur sig úr móti. Daly tvítaði í kjölfarið: „Fer í uppskurð á olnboga í næstu viku og verð frá í 3-4 mánuði #stenstekkisársaukannlengur.“ Daly spilaði 3 holur á 2. hring á Old White TPC og fékk tvo skolla. Daly var á 5 yfir pari, 75 höggum á 1. hring. Daly er tvöfaldur risamótsmeistari, en hefir aðeins komist 4 sinnum í gegnum niðurskurð af 11 skiptum sem hann hefir tekið þátt í mótum í ár. Besti árangur Daly er T-50 niðurstaða á Puerto Rico Open.
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 6. 2013 | 01:45
PGA: Every efstur eftir 2. dag

Það er Bandaríkjamaðurinn Matt Every sem kom sér í forystu á Greenbrier Classic mótinu, sem er mót vikunnar á PGA Tour nú í kvöld, en hann átti frábæran hring upp á 62 högg!!! Samtals er Every búinn að spila á 9 undir pari, 131 höggi (69 62) þar af spilaði hann á 8 undir pari 2. daginn!!! Á hringnum góða missti Every hvergi högg og fékk 8 fugla og 10 pör. Fimm eru síðan í 2. sæti aðeins 1 höggi á eftir Every, þ.á.m. nýliðinn viðkunnanlegri Russell Henley; allir á samtals 8 undir pari, 132 höggum. Nokkrir góðir komust ekki í gegnum niðurskurð að þessu sinni þ.á.m.: Robert Karlsson, Ryo Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 6. 2013 | 01:30
GKJ: Guðmundur með ás!
Guðmundur Jónsson, GKJ, keppandi í fyrsta flokki á Meistaramóti GKJ gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á öðrum keppnisdegi Meistaramótsins. Guðmundur náði draumahögginu á fyrstu braut Hlíðavallar. Ekki amaleg byrjun á hringnum. Golf 1 óskar Guðmundi innilega til hamingju með draumahöggið!!! Heimild: Facebooksíða GKJ
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 6. 2013 | 01:00
Evróputúrinn: Zanotti leiðir í Frakklandi

Það er Fabrizio Zanotti frá Paragvæ sem leiðir þegar Alstom Open de France mótið er hálfnað í París. Hann er samtals búinn að spila á 6 undir pari, 136 höggum (68 68). Jafnir í 2. sæti eru Thomas Björn, Richard Sterne og Sören Kjeldsen, allir á samtals 5 undir pari, hver. Fimmta sætinu deila síðan 4 kylfingar þ.á.m. Graeme McDowell, allir á samtals 4 undir pari. Niðurskurður var miðaður við 3 yfir pari og meðal þekktra kylfinga sem ekki komust í gegnum niðurskurð voru José Maria Olázabal, Pablo Larrazabal , Peter Uihlein, Edoardo Molinari og Thongchai Jaidee. Til þess að sjá stöðuna þegar Alstom Open de France er hálfnað SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

