Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 10. 2013 | 21:00

Afmæliskylfingur dagsins: Margeir Ingi Rúnarsson – 10. júlí 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Margeir Ingi Rúnarsson. Margeir Ingi er fæddur 10. júlí 1994 og er því 19 ára í dag. Margeir Ingi er í Golfklúbbnum Vestarr á Grundarfiðri og er góður kylfingur. Hann varð m.a. klúbbmeistari GMS 2012 og varð í 2. sæti nú í ár! Komast má á heimasíðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan… Margeir Ingi Rúnarsson Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Murray Irwin „Moe“ Norman, f. 10. júlí 1929 –  d. 4. september 2004;   Scott Michael McCarron, 10. júlí 1965 (48 ára) ….. og ……   Bergthora Margret Johannsdottir (57 ára) Guðmundur Gísli Geirdal, GO (48 ára) Helga Þóra Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 10. 2013 | 19:30

EM: Guðrún Brá best á 2. degi!

Íslenska kvennalandsliðið golfi hafnaði í 17.sæti eftir síðari hringinn í höggleiknum á EM kvenna. Íslenska liðið leikur því í C riðli ásamt Sviss og Slóvakíu en keppni í riðlum hefst á morgun. Guðrún Brá Björgvinsdóttir Golfklúbbnum Keili lék best íslensku keppendana en hún lék hringina tvo á 152 höggum sem tryggði henni sæti 50 í einstaklingskeppninni. Oona Vartiainenn frá Finnlandi og  Madelene Sagström  frá Svíþjóð urðu efstar og jafnar í einstaklingskeppninni á 136 högum eða 8 undir pari.  50.sæti Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK            76-76 =  152 högg 54.sæti Ragnhildur Kristinsdóttir        GR          76/77 = 153 högg 85.sæti Sunna Víðisdóttir                        GR          78/79 = 157 högg 90.sæti Signý Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 10. 2013 | 14:45

GÓS: Guðrún Ásgerður og Brynjar klúbbmeistarar Golfklúbbsins Óss á Blönduósi

Meistaramót Golfklúbbsins Óss á Blönduósi fór fram dagana 5.-8. júlí.  Þátttakendur voru 8, 2 konur og 6 karlkylfingar og spilaðir voru 3 hringir.  Þetta er 20% fækkun en keppendur í Meistaramóti 2012 voru 10. Klúbbmeistarar 2013 eru Brynjar Bjarkason og Guðrún Ásgerður Jónsdóttir í kvennaflokki.  Brynjar lék hringina 3 á 29 yfir pari (76 79 84) og Guðrún Ásgerður lék á 73 yfir pari (94 94 95). Guðrún Ásgerður varði klúbbmeistaratitil sinn frá því í fyrra 2012, en það ár var hún jafnframt á besta skori keppenda. Hér að neðan má sjá heildarúrslit úr Meistaramóti Golfklúsins Ós 2013: 1 Brynjar Bjarkason GÓS 3 F 42 42 84 14 76 79 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 10. 2013 | 14:15

GKS: Þorsteinn sigraði í Tunnumótinu!

Tunnumótið fór fram á Hólsvelli á Siglufirði, sunnudaginn 7. júlí 2013. Þátttakendur voru 6, allt karlkylfingar en engin kvenkylfingur tók þátt, þar sem stór hluti af kvenkylfingum GKS voru við keppni á Volare kvennamótinu á Akureyri og daginn þar áður á Opna kvennamóti GSS, þ.e. 10 ára afmælismótinu. Sigurvegari Tunnumótsins varð Þorsteinn Jóhannsson og  sigraði hann með nokkrum yfirburðum, átti 9 punkta á næsta mann. Heildarúrslit í mótinu voru eftirfarandi:  1 Þorsteinn Jóhannsson GKS 9 F 17 18 35 35 35 2 Þröstur Ingólfsson GKS 19 F 12 14 26 26 26 3 Benedikt Þorsteinsson GKS 6 F 11 14 25 25 25 4 Kári Arnar Kárason GKS 20 F 16 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 10. 2013 | 14:00

GH: Þorvaldur Jónsson á besta skorinu á Opna Skóbúðar Open mótinu á Húsavík

Opna Skóbúðar Open mótið fór fram á Katlavelli á Húsavík, sunnudaginn 7. júlí s.l.  Þátttakendur voru 56, þar af 6 konur. Á besta skorinu var Þorvaldur Jónsson, GÓ, frá Ólafsfirði en hann var á 73 höggum og sló þar með við félögum sínum og golfkennurum, þeim Ólafi Auðunni Gylfasyni, GÓ , sem var á 75 höggum og Heiðari Davíð Bragasyni, GÓ, á 76 höggum en þeir voru í 2. og 3. sæti. Síðan voru veitt verðlaun fyrir 6 efstu sætin í punktakeppni með forgjöf. Þar urðu heildarúrslit eftirfarandi:  1 Helga Björg Pálmadóttir GH 27 F 18 20 38 38 38 2 Bergþór Atli Örvarsson GH 12 F 20 17 37 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 10. 2013 | 13:15

GA: Stefanía Kristín sigraði á Volare!

Volare Open kvennamótið fór fram á Jaðarsvelli s.l. sunnudag, 7. júlí 2013.  Þátttakendur voru 44. Sigurvegari varð klúbbmeistari GA 2012, sem spilar með golfliði Pfeiffer háskóla í Bandaríkjunum og á reyndar ættir að rekja til Siglufjarðar, líkt og margar af okkar albestu kvenkylfingum: Stefanía Kristín Valgeirsdóttir!!! Ekki algengt að lágforgjafarkylfingur eins og Stefanía Kristín sigri í punktahlutum opinna móta, þannig að árangur hennar var frábær. Á hringnum fékk Stefanía Kristín 5 fugla, 5 pör, 7 skolla og 1 skramba (á par-4 12. brautina – erfiðustu braut vallarins).  Í 2. sæti varð Arnheiður Ásgrímsdóttir, GA, með 35 punkta og í 3. sæti Guðný Óskarsdóttir, GA með 34 punkta (flesta punkta á seinni Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 10. 2013 | 12:30

Phil Mickelson bjartsýnn á gott gengi á Opna breska

Phil Mickelson vonast til þess að sigra í Opna breska á Muirfield, sem hefst síðar í mánuðnum. Nr. 8 á heimslistanum (Phil Mickelson) hefir aldrei tekist að vinna titilinn en hinn 43 ára Phil telur að hann sé í góðu formi og hann er sjálfsöruggur um að hann muni ná langt í mótinu. „Mér hefir ekki virkilega tekist að spila mitt besta golf í þessu móti,“ sagði Mickelson í viðtali við Sky Sports. „En það er kominn tími að gera það nú.  Það verður bara að ná skorinu og slá höggin, sem ég hef verið að vinna í, í 20 ár.  Ég hugsa að s.l. 8 eða 9 ár hafi Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 9. 2013 | 20:15

Kvennalandsliðið í 14. sæti á EM eftir 1. dag

Íslenska kvennalandsliðið í golfi er í 14. sæti eftir fyrsta keppnisdag á EM kvennalandsliða sem fram fer í York, Englandi. Íslenska liðið lék á 383 höggum í dag og er 23 höggum yfir pari samtals. Fimm bestu skorin af sex telja á hverjum keppnisdegi. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, Signý Arnórsdóttir, GK, og Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, léku allar á 76 höggum í dag eða fjórum höggum yfir pari, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR lék á 77 höggum, Sunna Víðisdóttir, GR á 78 höggum og Anna Sólveig Snorradóttir, GK lék á 83 höggum. Síðari hringurinn í höggleiknum er á morgun en danska kvennalandsliðið leiðir mótið á 11 höggum undir pari. Hér má sjá Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 9. 2013 | 20:15

GÚ: Úthlíð 20 ára

Golfklúbburinn Úthlið hélt upp á 20 ára afmæli sitt um síðustu helgi og af því tilefni var haldin stórglæsileg golfhátíð í Úthlíð Biskupstungum. Metþátttaka var á afmælismótið sem var 18 holu Texas Scramble. Í framhaldi af því var  mikil afmælisveisla og verðlaunaafhending í  Réttinni, öðru af tveimur glæsilegum klúbbhúsum félagsins. Þar var farið  yfir sögu klúbbsins í máli og myndum og einnig var nokkrum heiðursmönnum veittar viðurkenningar fyrir störf sín fyrir félagið. Þeir sem fengu heiðurfélagaviðurkenningu voru Björn Sigurðsson, Hjörtur Fr, Vigfússon og Rúnar Árnason en allir eru þeir stofnfélagar og hafa verið virkir í starfi klúbbsis í þessi 20 ár. Af sama tilefni fékk Björn Sigurðsson Gullmerki GSÍ fyrir Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 9. 2013 | 19:30

Kylfingarnir Carly Booth og Gary Player nakin í ESPN Body Issue

Nýjasta eintak ESPN the Body Issue er komið út og þar sitja tveir misþekktir kylfingar naktir fyrir. Nokkra athygli hefir vakið að Gary Player, 77 ára, er annar kylfinganna, en hann er lifandi golfgoðsögn sem alla tíð hefir ræktað líkama sinn vel, s.s. sjá má á meðfylgjandi myndum. Hinn kylfingurinn sem situr nakin fyrir er hin skoska 21 ára  Carly Booth, sem þrátt fyrir stuttan feril á LET hefir þegar sigrað þar tvívegis. Faðir hennar var rótari hjá Bítlunum. Carly á kæresta sem spila á Evrópumótaröðinni, þ.e. Estanislao (alltaf kallaður Tano) Goya, frá Argentínu Hér má sjá myndirnar af þeim Booth og Player: