Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 13. 2013 | 10:15
Evróputúrinn: Chris Doak efstur eftir 2. dag

Það er heimamaðurinn Chris Doak sem leiðir þegar Opna skoska er hálfnað. Doak er samtals búinn að spila á 12 undir pari 132 höggum (66 66 ). Í 2. sæti eru 4 kylfingar aðeins 1 höggi á eftir Doak: Titleist erfinginn Peter Uihlein, Daninn JB Hansen og Englendingarnir Ross Fisher og Matthew Southgate. Annar hópur 6 kylfinga deila síðan 6. sætinu á samtals 10 undir pari þ.á.m. Simon Khan. Það eru því aðeins 2 högg sem skilja að 10 efstu kylfingana og sigurvegari mótsins eflaust í þeirra hópi. Loks mætti geta að Phil Mickelson er einn af 11, sem deila 13. sæti á samtals 8 undir pari. Meðal þeirra sem ekki komust Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 13. 2013 | 10:00
LPGA: Catriona leiðir í Kanada eftir 2. dag

Það er hin skoska Catriona Matthew sem leiðir á Manulife Financial LPGA Classic, í Ontario, Kanada, þegar mótið er hálfnað. Catriona er búin að spila á samtals 15 undir pari, 127 höggum (63 64). Í 2. sæti 3 höggum á eftir Catrionu er Angela Stanford frá Bandaríkjunum á 12 undir pari, 130 höggum (67 63). Í þriðja sæti eru 5 kylfingar allir á samtals 11 undir pari þ.e. Anna Nordqvist, Ryann O´Toole, Chella Choi, Belen Mozo og Meena Lee. Meðal þeirra sem ekki komust í gegnum niðurskurð (sem miðaður var við samtals 3 undir pari) í gær voru Lexi Thompson, Shanshan Feng og Laura Davies, en þær voru allar 1 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 12. 2013 | 23:00
PGA: 3 í forystu þegar John Deere Classic er hálfnað

Það eru 3 sem deila forystunni á John Deere Classic mótinu nú þegar það er hálfnað. Það eru þeir Patrick Reed, Zach Johnson, sem á titil að verja og Lucas Glover, sem langt er síðan að sést hefir til hans í efstu sætum móta! Allir eru þeir búnir að spila á 12 undir pari, 130 höggum; Reed (67 63); Johnson (64 66) og Glover (68 62), sem átti hreint magnaðan hring í dag. Búist er við að niðurskurður verði í kringum 4 undir pari. Nokkrir eiga eftir að ljúka leik, þ.á.m. forystumaður 1. dags Camilo Villegas, sem ekki hefur náð að fylgja eftir frábærum hring í gær upp á 64 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 12. 2013 | 16:45
EM: Andri Þór á 68 höggum!!! Ísland í 2. sæti!!!
Íslenska karlalandsliðið í golfi er komið í 2.sætið eftir tvo hringi af þremur á Challenge Trophy sem undankeppni fyrir Evrópumót karlalandsliða. Strákarnir okkar spiluð á 374 höggum í dag eða næst best skorinu og færðust enn nær EM sæti á næsta ári. Belgía er í fyrsta sæti með nokkuð hraustlegt tíu högga forskot á Íslendinga, í þriðja sæti er Slóvakía sex höggum á eftir okkar mönnum. Lokahringurinn fer fram á morgun og þá kemur í ljós hvaða þrjú lið tryggja sér þátttökurétt á Evrópumótinu sjálfu. Andri Þór Björnsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur spilaði frábært golf í dag og kom inn á 68 höggum eða fjórum höggum undir pari og vann sig Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 12. 2013 | 14:00
EM: Stelpurnar okkar unnu Sviss 4/1

Íslenska kvennalandsliðið sigraði Sviss í leik í C-riðli á EM kvennalandsliða en leiknum var að ljúka rétt í þessu. Sigurinn er bæði stór og sætur eins og allir sigrar en okkar stelpur sigruðu í fjórum leikjum af fimm. Á morgun keppir Ísland við Slóvakíu og þá kemur í ljós í hvaða sæti við endum en stefnan er auðvita sett á sigur. Að sögn Ragnars Ólafssonar þá er ætla stelpurnar sér sigur í þeim leik ekket annað kæmi til greina að þeirra sögn. Lokastaðan
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 12. 2013 | 12:00
Afmæliskylfingur dagsins: Inbee Park ——— 12. júlí 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Inbee Park (kóreanska: 박인비, Hanja: 朴仁妃) Hún er fædd 12. júlí 1988 og á því 25 ára afmæli í dag. Hún er þessa dagana við keppni á Manulife Financial LPGA Classic í Ontario, Kanada og deilir 3. sæti eftir 1. dag. Inbee er búin að sigra á öllum risamótum kvennagolfsins það sem af er ársins (þ.e. 3 risamót af 5) og á möguleika á „Grand Slam“ í kvennagolfinu takist henni að sigra á Opna breska kvennamótinu sem fram fer 1.-4. ágúst n.k. í sjálfri vöggu golfsins St. Andrews, þ.e. hún verður þá fyrsti kylfingur sögunnar til að hafa unnið 4 risamót á sama árinu! Vel við hæfi að vinna það Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 12. 2013 | 07:00
GK: Birgir Björn og Þórdís með 8 högga forystu eftir 2. dag

Birgir Björn Magnússon og Þórdís Geirsdóttir halda forystu sinni á Meistaramóti Keilis, þegar keppnin er hálfnuð. Birgir Björn bætti sig enn frá 1. degi og lék 2. hringinn á 1 undir pari, 70 höggum. Samtals er Birgir Björn því búinn leika á 142 höggum (72 70) og hefir 8 högga forystu á þá sem næstir koma: Benedikt Sveinsson, sem er í 2. sæti (75 75) og Benedikt Árna Harðarson (74 76). Þórdís Geirsdóttir er líka með 8 högga forystu í Meistaraflokki kvenna. Hún er búin að spila á samtals 13 yfir pari (81 74) og bætti sig um 7 högg milli hringja í gær! Í 2. sæti í kvennaflokki er Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 12. 2013 | 06:00
GP: Björg klúbbmeistari 2013
Meistaramót Golfklúbbs Patreksfjarðar fór fram á Vesturbotnsvelli dagana 8. og 9. júlí 2013 Þátttakendur voru 8 og leiknir voru 2 hringir. Klúbbmeistari Golfklúbbs Patreksfjarðar 2013 er Björg Sæmundsdóttir. Hún lék hringina 2 á samtals 24 yfir pari, 168 höggum (87 81). Heildarúrslit á Meistaramóti GP voru eftirfarandi: 1 Björg Sæmundsdóttir GP 12 F 39 42 81 9 87 81 168 24 2 Jónas Þrastarson GP 15 F 45 44 89 17 95 89 184 40 3 Skjöldur Pálmason GP 12 F 49 49 98 26 93 98 191 47 4 Einar Þorfinnsson GP 20 F 46 54 100 28 101 100 201 57 5 Brynja Haraldsdóttir GP 17 F 48 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 12. 2013 | 05:00
LPGA: Matthew og Stanford leiða eftir 1. dag í Kanada

Það eru hin skoska Catriona Matthew og Angela Stanford frá Bandaríkjunum, sem leiða eftir 1. dag Manulife Financial LPGA Classic á Grey Silo golfvellinum í Ontario, Kanada. Báðar léku á 8 undir pari, 63 höggum og hafa 2 högga forystu á 5 kylfinga sem deila 3. sætinu og léku allar á 6 undir pari, en þeirra á meðal er nr. 1 á Rolex-heimslista kvenkylfinga, Inbee Park. Annar hópur 5 kylfinga lék á 5 undir pari og deilir 8. sæti en þ.á.m. er hin bandaríska Ryann O´Toole. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á Manulife Financial LPGA Classic SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 12. 2013 | 04:00
PGA: Villegas og Johnson leiða eftir 1. dag á John Deere Classic

Það eru þeir Zach Johnson og Camilo Villegas sem leiða á John Deere Classic mótinu, sem er mót vikunnar á PGA Tour. Mótið hófst í gær á TPC Deere Run í Illinois, í Bandaríkjunum. Johnson og Villegas spiluðu báðir á 7 undir pari, 65 höggum. Þriðja sætinu deila 3 kylfingar og eru þeir allir aðeins 1 höggi á eftir en það eru: Brendon de Jonge, Matt Bettencourt og Daníel Summerhayes. Hópur 7 kylfinga deilir síðan 6. sæti á 5 undir pari, þ.á.m. Boo Weekley og annar hópur 13 kylfinga deilir 13. sæti á 4 undir pari, þ.á.m. Steve Stricker (sem átti högg 1.dags), KJ Choi, Davis Love III og Nick Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

