Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 13. 2013 | 23:15
PGA: Daniel Summerhays leiðir fyrir lokahring John Deere Classic

Það er Daníel Summerhayes, sem leiðir fyri lokahring John Deere Classic mótsins, sem fram fer á TPC Deere Run í Illinois. Það var frábær 3. hringur Summerhayes, sem kom honum upp í 1. sætið en á 3. hring spilaði hann á 62 höggum. Á hringnum fékk Summerhayes 10 fugla og 1 skolla! Samtals er Summerhayes búinn að spila á 19 undir pari, 194 höggum (65 67 62) og á 2 högg á þann sem er í 2. sæti, Kanadamanninn David Hearn. Sjá má kynningu Golf 1 á Daníel Summerhayes með því að SMELLA HÉR: Í 3. sæti er sá sem á titil að verja Zach Johnson á samtals 16 undir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 13. 2013 | 23:00
GK: Þórdís og Birgir Björn klúbbmeistarar 2013
Það voru þau Þórdís Geirsdóttir og Birgir Björn Magnússon, sem urðu klúbbmeistarar Golfklúbbsins Keilis 2013 í kvöld. Þetta er fyrsti klúbbmeistaratitill Birgis Björns en Þórdís hefir unnið þann titil áður, eða alls 16 sinnum. Þórdís er þar með sú kona í Keili, sem oftast hefir orðið klúbbmeistari!!! Æðislega flott hjá Þórdísi, en hún vann fyrsta klúbbmeistaratitil sinn árið 1980 og hefir síðan unnið hann á árunum, 1981, 1984, 1985, 1986, 1988, 1989, 1990, 1991, 1992, 1994, 1996, 2004, 2005, 2009 og nú 2013. Stórglæsilegt!!! Birgir Björn varð klúbbmeistari GK 2013 á samtals 7 yfir pari 291 höggi (72 70 71 78) og átti hann 7 högg á þann sem næstur Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 13. 2013 | 18:41
Evrópumótaröðin: Stenson í 1. sæti – Mickelson í 2. sæti fyrir lokahringinn

Það er sænski kylfingurinn Henrik Stenson sem leiðir á Opna skoska fyrir lokahring mótsins sem spilaður verður á morgun. Stenson er samtals búinn að leika á 16 undir pari, 200 höggum (70 64 66) og á 2 högg á þá sem næstir koma. Þeir sem næstir koma og deila 2. sætinu eru Phil Mickelson, John Parry, Brendan Grace og JB Hansen, sem er að standa sig ótrúlega vel. Þrír kylfingar deila síðan 6. sæti á samtals 13 undir pari hver en þ.á.m. er bandaríski kylfingurinn Peter Uihlein. Til þess að sjá stöðuna á Aberdeen Asset Mangement Scotish Open eins og Opna skoska heitir upp á ensku SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 13. 2013 | 18:30
GVG: Hugrún og Hermann Geir klúbbmeistarar 2013

Meistaramót Golfklúbbsins Vestarr á Grundarfirði fór fram dagana 9.-12. júlí og lauk því í gær. Keppt var í 5 flokkum: 1. og 2. flokki karla og kvenna og í öldungaflokki karla 55 ára og eldri. Þátttakendur voru 21 þar af 10 konur! Hermann Geir Þórsson varð klúbbmeistari 2013 en hann lék hringina 4 á 17 yfir pari, 305 höggum (75 82 72 76). Í kvennaflokki varð Hugrún Elísdóttir klúbbmeistari en hún lék á 74 yfir pari, 362 höggum (90 99 88 85). Sjá má heildarúrslitin í öllum flokkum hér fyrir neðan: 1. flokkur karla: 1 Hugrún Elísdóttir GVG 11 F 43 42 85 13 90 99 88 85 362 74 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 13. 2013 | 17:30
EM: Ísland lauk leik í 2. sæti – Spilar á EM í Finnlandi á næsta ári!!!

Íslenska karlalandsliðið í golfi tryggði sér sæti á Evrópumóti áhugamanna sem fram fer í Finnlandi á næsta ári. Íslenska liðið spilaðið á 366 höggum í dag en fyrir daginn var ljóst að annað sæti yrði að nást ef EM draumurinn ætti að verða að veruleika. Þetta tókst og gott betur en það því helstu keppinautar okkar um þetta 2.sæti voru Tékkar sem áttu ekkert svar við stórleik okkar manna. Guðmundur Ágúst Kristjánsson GR átti hreint frábæran dag á golfvellinum en hann lék á 66 höggum sem reyndist besta skor mótsins, Guðmundur fékk sex fugla og tólf pör á hringnum góða. Það voru Belgar sem léku besta allra í undankeppninni þeir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 13. 2013 | 14:30
EM: Ísland lauk keppni efst í C-riðli

Íslenska kvennalandsliðið í golfi sigraði Slóvakíu 3,5/1,5 í leik um efsta sætið í C-riðli á Evrópumóti kvennalandsliða sem er að ljúka í Englandi. Íslenska liðið hafnaði í 17.sæti í mótinu. Anna Sólveig Snorradóttir GK og Ragnhildur Kristinsdóttir, GR léku saman í fjórmenningnum og lögðu þær andstæðinga sína 4/2. Þær Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR sigruðu í sínum leikjum 3/1. Sunna Víðisdóttir GR gerði jafntefli en Signý Arnórsdóttir, GK, tapaði sínum leik. Spánn og Austurríki eru þessa stundina keppa um Evróputitilinn, hér má fylgjast með stöðu mála. Heimasíða mótsins Staðan í A-riðli Staðan í B-riðli Staðan í C-riðli
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 13. 2013 | 14:15
Afmæliskylfingur dagsins: Ian Stanley Palmer – 13. júlí 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Ian Stanley Palmer, frá Suður-Afríku. Hann er fæddur 13. júlí 1957 og á því 56 ára afmæli í dag. Palmer gerðist atvinnumaður í golfi 1981 og hefir síðan þá bæði sigraði á Sólskinstúrnum þ.e. 3 sinnum og á Evróputúrnum, tvisvar. Í Suður-Afríku er hann í hinum fræga golfklúbbi Bloemfontein. Hann kvæntist konu sinni Louise 1987 og eiga þau tvö börn. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Sóley Elíasdóttir Sumarlína Ehf (84 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 13. 2013 | 14:00
Evróputúrinn: Manassero með ás á 3. hring Opna skoska

Ítalski kylfingurinn Matteo Manassero fékk ás á 3. hring Opna skoska í dag. Ásinn hjá honum kom á frægu par-3 8. holu Castle Stewart linksarans. Af hvítum teigum er 8. brautin 216 yarda (197, 5 metra) löng. Við höggið notað Manassero blendingskylfu. Manassero átti frábæra fyrri 9 þ.e. fékk auk ofangreinds áss, 2 fugla og var á 32 höggum eftir fyrri 9 – Á seinni 9 gekk hins vegar ekki eins vel – þó hann hafi fengið einn fugl enn á 11. tók hann hann aftur með skolla á 12. braut og síðan kom slæmur skrambi á 15. braut, þannig að hann lauk seinni 9 á 38 og samtals á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 13. 2013 | 11:09
GK: Birgir Björn og Þórdís efst á 3. degi Meistarmóts Keilis

Birgir Björn Magnússon og Þórdís Geirsdóttir eru efst í Meistaraflokki karla og kvenna á Meistaramóti Keilis og hafa þau verið í forystu alla 3 daga mótsins og líklegt að þau standi uppi sem klúbbmeistarar Keilis í kvöld!!! Birgir Björn átti enn einn glæsihringinn í gær; lék örugglega á pari vallarins og er því samtals búinn að spila á parinu, 213 höggum (72 70 71). Jafnt og flott golf það!!! Nokkrar breytingar hafa orðið á efstu mönnum í karlaflokki; í 2. sæti er Benedikt Sveinsson 7 höggum á eftir Birgi Birni þ..e á samtals 7 yfir pari, 220 höggum (75 75 70). Í 3. sæti er síðan Gísli Sigurbergssoná samtals 14 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 13. 2013 | 10:45
Spælegg

Nú er hápunktur golfvertíðarinnar, miðsumar og flestir kylfingar búnir að spila nokkra hringi á árinu í meistaramótum, opnum mótum eða bara sér til skemmtunar. Hér er ætlunin að koma með ráð hvað gera skuli þegar golfboltinn festist (ens. „plug“-ast) í sandglompu. Þetta ráð er gott þegar ætlunin er að spila golfvelli þar sem mikið er um sandglompur. Það er ekkert verra en að koma að sandglompu og finna boltann festan í einni hlið hans eða á botni djúps glompupytts. Þegar boltinn er svona festur í bönkernum, þannig að hann kíkkar ekki upp nema hálfur líkist hann mjög spæleggi og því er oft talað um slíka bolta sem „spælegg.“ Ráðið ætti Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

