Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 15. 2013 | 08:45
LPGA: Hee Young Park sigraði á Manulife Financial LPGA Classic

Það var Hee Young Park frá Suður-Kóreu, sem sigraði á Manulife Financial LPGA Classic. Hee Young lék á samtals 26 undir pari, 258 höggum (65 67 61 65) líkt og Angela Stanford (63 67 64 64) og því varð að koma til bráðabana milli þeirri, líkt og í flestum stórmótum s.l. helgi. Það þurfti að spila par-5 18. holuna á Grey Silo golfvellinum 3 sinnum þar til úrslit lágu ljós fyrir en Hee Young vann með fugli, meðan Angela varð að sætta sig við par og tap í mótinu. Í 3. sæti varð hinn frábæri, skoski kylfingur Catriona Matthew sem búin var að vera í forystu mestallt mótið. Catriona lauk Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 15. 2013 | 08:00
GKS: Björn Steinar og Hulda klúbbmeistarar 2013

Meistaramóti Golfklúbbs Siglufjarðar lauk í gær, sunnudag 14. júlí 2013. Þátttakendur voru 12 og spilaðir voru 3 hringir. Klúbbmeistarar urðu Björn Steinar Stefánsson á samtals 255 höggum (83 90 82) og í kvennaflokki sigraði Hulda Magnúsardóttir, á 282 höggum (94 98 90). Leikið var í 3 flokkum: 1. og 2. flokki karla og 1. flokki kvenna. Hér má sjá myndir frá 3 efstu í hverjum flokki: 1. flokkur karla 2. flokkur karla 1. flokkur kvenna Sjá má heildarúrslitin hér fyrir neðan: 1 Björn Steinar Stefánsson GKG 6 F 39 43 82 12 83 90 82 255 45 2 Grétar Bragi Hallgrímsson GKS 10 F 40 47 87 17 84 91 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 15. 2013 | 07:00
GR: Ólafur Már og Berglind klúbbmeistarar 2013
Það eru Berglind Björnsdóttir og Ólafur Már Sigurðsson, sem eru klúbbmeistarar GR 2013. Alls tóku 9 þátt í meistaraflokki hjá konunum og varð Berglind klúbbmeistari kvenna á 29 yfir pari, 317 höggum (81 80 81 75). Í 2. sæti varð Íris Katla Guðmundsdóttir á 36 yfir pari, 324 höggum (85 77 83 79). Í 3. sæti í kvennaflokki varð síðan Ragnhildur Sigurðardóttir á 40 yfir pari, 328 höggum (76 85 86 81). Í meistaraflokki karla í GR tóku þátt 31 kylfingur. Klúbbmeistari GR 2013 Ólafur Már lék hringina 4 á 10 yfir pari, 298 höggum (75 72 76 75). Í 2. sæti varð Þórður Rafn Gissurarson 3 höggum á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 15. 2013 | 01:00
PGA: Spieth sigraði á John Deere Classic!

Jordan Spieth, 19 ára, skrifaði sig í golfsögubækurnar fyrr í kvöld þegar hann sigraði í 3 manna bráðabana, sem fór á 5. holu. Spieth er fyrsti táningurinn í 82 ára sögu PGA til að sigra í móti á mótaröðinni, en það gerðist síðast árið 1931. Hann kom sér í bráðabana eftir ævintýralegt fuglavipp á 18. flöt sem sjá má með því að SMELLA HÉR: Þeir Jordan Spieth, Zach Johnson og David Hearn voru allir á samtals 19 undir pari, 265 höggum; Spieth (70 65 65 65); Johnson (64 66 67 68) og Hearn (66 66 64 69). Það varð því að koma til bráðabana til þess að skera úr Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 14. 2013 | 21:00
Golfgrín á sunnudegi

Á sólríkum sunnudegi ákveður prestur nokkur að sleppa messunni og fara þess í stað í golf. Meðan öll sóknarbörnin bíða róleg og þolinmóð í kirkjunni eftir presti sínum, læðupokast sá síðastnefndi út um bakdyrnar á kirkjunni. Án þess að hafa slegið einn einasta bolta á æfingasvæðinu, skellir hann sér beint út á völl. Og viti menn eftir aðeins 3 holur er hann kominn 4 undir par. Í lokinn hefir hann náð 12 fuglum, 3 örnum og 3 ásum – sem sagt alger draumahringur, þannig að næstum jaðraði við skor Kim Il Sung í Norður-Kóreu!!! Allt í allt var hann 24 undir pari, sem gerði svo mikið sem 88 punkta!!! Presturinn Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 14. 2013 | 20:30
Afmæliskylfingur dagsins: Birgir Björnsson – 14. júlí 2013
Afmæliskylfingur dagsins er Birgir Björnsson. Birgir er fæddur Bastilludaginn, 14. júlí 1978 og er því 35 ára í dag!!! Hann er menntaður kylfusmiður og starfar í Hraunkoti í Golfklúbbnum Keili, en Birgir er auk þess feykigóður kylfingur. Hann heldur úti frábærri golfsíðu, Golfkylfur.is sem komast má á með því að SMELLA HÉR: Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan: Birgir Bjornsson (35 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Erica Blasberg, f. 14. júlí 1984-d. 9. maí 2010…. og …… Guðrún Dröfn Emilsdóttir (46 ára) Anna Margrét Bjarnadóttir (72 ára) Brynjar Björnsson (52 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 14. 2013 | 20:15
Evróputúrinn: Mickelson vann Opna skoska eftir bráðabana

Phil Mickelson sigraði nú í kvöld á Opna skoska á Castle Stuart linksaranum, í Inverness, Skotlandi. Hann lék samtals á 17 undir pari, 271 höggi (66 70 66 69) líkt og Branden Grace ( frá Suður-Afríku og því varð að koma til bráðabana milli þeirra. Mickelson vann bráðabanann með fugli þegar á fyrstu holu bráðabanans. Þetta er fyrsti sigur hans á Evrópumótaröðinni. Jafnir í 2. sæti urðu Henrik Stenson, sem leiddi fyrir lokahringinn og JB Hansen, sem komið hefir nokkuð á óvart í mótinu. Báðir voru þeir Stenson og Hansen á 15 undir pari, 273 höggum. Martin Laird átti síðan lægsta skor dagsins 68 högg, en hann deildi 5. sæti með Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 14. 2013 | 19:00
GKS: Hulda Magnúsardóttir með ás!

Hulda Magnúsardóttir, GKS fór holu í höggi á 1. á fyrsta hring í meistaramóti GKS. Draumahögginu náði hún á 9. holu í seinni hring. Hér að neðan má sjá skorkort Huldu: Golf 1 óskar Huldu innilega til hamingju með draumahöggið!!!
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 14. 2013 | 18:00
GST: Jón Svavar sigraði í Minningarmóti Gíslínu

Minningarmót Gíslínu Erlendsdóttir fór fram í gær, 13. júlí 2013 hjá Golfklúbbi Staðarsveitar, á Garðavelli undir Jökli. Sigurvegari varð heimamaðurinn Jón Svavar Þórðarson, GST, en hann var á 42 glæsipunktum. Heimamaðurinn Arnór Tumi Finnsson hafði betur eftir bráðabana við Vigni Bjarnason, GB um 2. sætið. Margir spiluðu sem ekki voru í klúbbi og er skor þeirra ekki hér en enginn vann til verðlauna af þeim. Úrslit í Minningarmóti Gíslínu voru eftirfarandi: 1 Jón Svavar Þórðarson GST 24 F 21 21 42 42 2 Vignir Bjarnason GST 29 F 19 19 38 38 3 Arnór Tumi Finnsson GB 5 F 20 18 38 38 38 4 Kristján Þórðarson GST 17 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 14. 2013 | 17:40
NK: Ingvar og Ragnhildur 5 ára pútta saman

Ingvar litli Aðalsteinsson er 5 ára en hann er þó búinn að vera í golfi frá því hann var 3 ára, þegar hann fékk fyrsta golfsettið sitt. Hann hefir verið að fikta í golfinu með pabba sínum, sem reyndar er í GR, en Ingvar er að fara að byrja í Nesklúbbnum. Þar var hann einmitt í gær að æfa sig í púttunum. Og… hann var ekki seinn að finna sætustu skvísuna á púttflötinni, Ragnhildi, leikskólasystur sína. E.t.v. eru þetta klúbbmeistarar framtíðarinnar – a.m.k. eru þeir flottir krakkarnir Nesklúbbnum!!!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

