Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 16. 2013 | 13:30

Muirfield – mótsstaður Opna breska 2013 holu fyrir holu – Myndskeið

Nú á fimmtudaginn hefst 3. risamót ársins Opna breska á Muirfield golfvellinum.  Mótið stendur dagana 18.-22. júlí 2013. Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá kynningu á Muirfield holu fyrir  holu. Þessi kynning á eftir að reynast þeim vel, sem hyggjast fylgjast með Opna breska í beinni og hafa ekki spilað Muirfield. Til þess að sjá myndskeiðið SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 16. 2013 | 11:00

GK: Birgir Björn Magnússon, klúbbmeistari Keilis 2013

Birgir Björn Magnússon, varð klúbbmeistari Keilis s.l. sunnudag og er með þeim yngstu sem orðið hafa klúbbmeistarar Keils. Birgir Björn er fæddur 12. maí 1997 og átti því 16 ára afmæli í vor. Birgir Björn varð ekki klúbbmeistari drengja 15-16 ára í klúbbnum heldur með meistaraflokki karla, sem er einstaklega glæsilegur árangur, enda lagði hann marga sér eldri og reyndari menn á sunnudeginum! Þrátt fyrir ungan aldur er Birgir Björn margfaldur Íslandsmeistari. Mörgum er minnisstætt þegar Birgir Björn varð Íslandsmeistari í höggleik í flokki 14 ára og yngri stráka 2011.  Hann innsiglaði Íslandsmeistaratitilinn með stæl 8. ágúst 2011, en hann setti nýtt vallarmet af rauðum í Grafarholtinu, en við það tækifæri Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 16. 2013 | 09:00

GÓ: Rósa og Heiðar Davíð klúbbmeistarar 2013

Meistaramót Golfklúbbs Ólafsfjarðar fór fram dagana 8.-12. júlí 2013.  Þátttakendur að þessu sinni voru 24 þar af 4 konur. Klúbbmeistari Golfklúbbs Ólafsfjarðar 2013 er Heiðar Davíð Bragason. Hann lék hringina 3 á Skeggjabrekkuvelli á 1 undir pari var með glæsiskor alla 3 dagana 63 70 64.  Í 2. sæti varð Þorvaldur Jónsson, á samtals 13 yfir pari og í 3. sæti varð Sigurbjörn Þorgeirsson, á samtals 14 yfir pari. Rósa Jónsdóttir, varð klúbbmeistari kvenna í GÓ 2013. Konurnar spiluðu aðeins tvo hringi og var Rósa á samtals 169 höggum (85 84). Hér að neðan má sjá úrslitin í öllum flokkum á Meistaramóti GÓ 2013:  Meistaraflokkur karla: 1 Heiðar Davíð Bragason Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 16. 2013 | 07:00

Tiger verður að halda sig við reglur … eins og aðrir

Tiger kom til Skotlands í fyrradag s.s. Golf1 greindi frá, enda hefst Opna breska á Muirfield nú á fimmtudaginn. Vélin var varla lent þá var Tiger kominn út á völl að æfa sig. Eins er Tiger þekktur fyrir að vilja æfa sig snemma, enda þá laus við forvitna, sem fylgjast vilja með honum.  Hann var því mættur fyrir allar aldir í gær í The Honourable Company of Edinburgh Golfers og vildi hefja æfingahring sinn kl. 6:40 um morguninn. Völlurinn opnar hins vegar ekki fyrr en kl. 7:00 og Tiger var sagt af öryggisvörðum að hann yrði að bíða í 20 mínútur og gæti ekki farið á völlinn eins og hann Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 15. 2013 | 20:00

GK: Þórdís með yfirburðarsigur á Meistaramóti Keilis

Þórdís Geirsdóttir sigraði í meistaraflokki kvenna á Meistaramóti Keilis með yfirburðum – átti 24 högg á þá sem næst henni kom. Þetta var í 16. sinn sem Þórdís verður klúbbmeistari og þar með hefir hún jafnað við Ragnhildi Sigurðardóttur, GR, en nú hafa báðar sigrað 16 sinnum í meistaramótum klúbba sinna. Þær báðar eru farnar að nálgast klúbbmeistaramet kvenna, sem Jakobína Guðlaugsdóttir, GV á enn, um sigur í 21 meistaramóti.  Spurning hvor verður fyrr til að jafna við Jabobínu, Þórdís eða Ragnhildur? Reyndar er Þórdís yfirburðarkylfingur að öðru leyti, því fyrir utan að hafa orðið Íslandsmeistari í höggleik (1987) og holukeppni (1989) hefir hún sigrað oftast kvenna í Íslandsmóti 35+ Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 15. 2013 | 17:45

NK: Helga Kristín og Ólafur Björn klúbbmeistarar 2013

Það eru Helga Kristín Einarsdóttir og Ólafur Björn Loftsson sem eru klúbbmeistarar Nesklúbbsins 2013. Ólafur Björn lék samtals á glæsilegum 14 undir pari, 274 höggum (68 70 68 68).  Í 2. sæti varð Nökkvi Gunnarsson á samtals 1 undir pari, 287 höggum (73 71 71 72).  Í 3. sæti varð loks Oddur Óli Jónasson á 6 yfir pari, 294 höggum (87 64 72 71), en hann átti jafnframt lægsta hringinn í meistaramóti Nesklúbbsins að þessu sinni 64 glæsihögg á 2. degi mótsins. Klúbbmeistari NK-kvenna varð Helga Kristín Einarsdóttir eftir 3 h0lu umspil við klúbbmeistara NK 2013, Karlottu Einarsdóttur. Þær léku báðar á samtals 36 yfir pari, 324 höggum,  því varð Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 15. 2013 | 13:45

GB: Bjarki klúbbmeistari 5. árið í röð!!!

Meistaramót Golfklúbbs Borgarness fór í ár fram dagana 9.-12. júlí 2013. Það eru Bjarki Pétursson og Júlíana Jónsdóttir sem eru klúbbmeistarar Golfklúbbs Borgarness 2013.  Þátttakendur í ár voru 42 (þar af 11 konur) sem er fækkun um 13 keppendur frá því í fyrra, en ætla má að veðrið hafi ráðið einhverju þar um. Þetta er 5. árið í röð sem Bjarki verður klúbbmeistari og er þetta einstaklega glæsilegur árangur hjá honum!!!  Bjarki spilaði samtals á 11 yfir pari, 295 höggum (69 77 75 74 og átti m.a. glæsihring 69 högg fyrsta mótsdag á Hamarsvelli.  Í 2. sæti á 42 yfir pari varð Jóhannes Ármannsson, framkvæmdastjóri GB.  Júlíana spilaði á samtals 384 höggum (97 93 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 15. 2013 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: Óli Kristján Benediktsson – 15. júlí 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Óli Kristján Benediktsson.  Óli Kristján er fæddur 15. júlí 1991 og því 22 ára í dag. Hann er í Golfklúbbi Hafnar í Hornafirði (GHH) og er núverandi klúbbmeistari klúbbsins, þ.e. klúbbmeistari 2012, en meistaramót GHH fer ekki fram fyrr en 20. júlí n.k. og spennandi að sjá hvort Óla Kristjáni takist að verja titil sinn. Komast má á heimasíðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Óli Kristján Benediktsson Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Stephen Dodd, 15. júlí 1966 (47 ára);  Marcel Siem, 15. júlí 1980 (33 ára);  Carmen Alonso,  15. júlí 1984 (29 ára)  ….. og …… Andy Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 15. 2013 | 09:30

GG: Davíð Arthur Friðriksson klúbbmeistari 2013

Davíð Arthur Friðriksson varð í gær klúbbmeistari karla eftir þriggja holu bráðabana gegn Helga Dan Steinssyni. Fyrir lokadaginn hafði Helgi Dan tveggja högga forystu á Davíð en síðasta hringinn lék Davíð á 72 höggum en Helgi Dan á 74 höggum. Drengirnir léku því 10.11. og 12. holu í bráðabana.  Jafnt var eftir tvær holur en á þeirri 12. setti Davíð 6 metra pútt í og tryggði sér sigurinn. Glæsilega gert!  Davíð Arthur varð m.a. klúbbmeistari 2011 og 2009 þannig að oddatöluárin virðast happa hjá honum! Í fyrsta flokki sigraði Lárus Guðmundsson með nokkrum yfirburðum.  Í öðrum flokki sigraði Halldór Einir Smárason.  Í þriðja flokki sigraði Óli Björn Björgvinsson.  Í fjórða Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 15. 2013 | 09:00

Wilcox með 59 á Web.com

Fjórða 59-an í sögu Web.com Tour dugði ekki til þess að sigur ynnist á Utah Championship í gær. Will Wilcox náði að brjóta 60 með hring á par-71 Willow Creek Country Club í Sandy, Utah, þar sem hann fékk 1 örn og 10 fugla. Það dugði samt ekki til sigurs eins og segir en Wilcox var 1 höggi á eftir Steven Alker frá Nýja Sjálandi og Ashley Hall frá Ástralíu, sem fóru í bráðabana, þar sem Alker sigraði, þökk sé pari á 1. holu. Wilcox varð að sætta sig við að deila 2. sætinu. Wilcox sagði m.a. eftirfarandi eftir 59 högga hring sinn: „Með aðstæðunum eins og þær voru og Lesa meira