Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 17. 2013 | 13:15

Tiger tilbúinn í slaginn! Myndskeið

Tiger Woods er tilbúinn í slaginn á Opna breska, risamótsveisluna, sem hefst á morgun. Á blaðamannafundi sagði hann m.a. að olnboginn á sér væri orðinn fínn og honum ekkert að vanbúnaði að hefja keppni. Sjá má myndskeið frá blaðamannafundinum með Tiger með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 17. 2013 | 13:00

Upphitun fyrir Opna breska – Myndskeið

Nú er þetta alveg að bresta á: 3. risamótið á árinu að fara að hefjast og það 142. röðinni í sögu Opna breska. Opna breska er það elsta af risamótunum 4 og það risamót með flestu hefðirnar.  Það fer nú í ár fram á Muirfield linksaranum í Skotlandi en á þeim velli fór Opna breska fram 1872 og hefir verið haldið þar nokkru sinnum síðan. Sá sem á titil að verja er Ernie Els frá Suður-Afríku, þar sem hann vann eftirminnilegan sigur á Royal Lytham & St. Annes í fyrra, en Ernie er jafnframt sá sem síðast vann á Muirfield þegar mótið var haldið þar síðast, árið 2002. Hér má Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 17. 2013 | 09:00

GHD: Ólöf María og Heiðar Davíð klúbbmeistarar 2013

Í gær flutti Golf1.is fréttir af því að Heiðar Davíð Bragason hefði orðið klúbbmeistari Golfklúbbs Ólafsfjarðar.  En það dugar golfkennaranum Heiðari Davíð svo sannarlega ekki til því hann tók líka þátt í meistaramóti Golfklúbbsins Hamars á Dalvík, þar sem hann þjálfar alla góðu krakkana í klúbbnum, sem eru að slá í gegn á Íslandsbankamótaröðinni í ár. Og Heiðar Davíð er klúbbmeistari Golfklúbbsins Hamars á Dalvík 2013 og líklega eini kylfingurinn á landinu sem er klúbbmeistari í tveimur klúbbum á sama tíma!!! Og það er ein af duglegu nemendunum hans, Íslandsmeistarinn í holukeppni í flokki 14 ára og yngri, Ólöf María Einarsdóttir, sem varð klúbbmeistari kvenna, en Ólöf María er aðeins Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 17. 2013 | 08:00

GSE: Herdís og Helgi Birkir klúbbmeistarar 2013

Meistaramót Golfklúbbsins Setbergs í Hafnarfirði fór fram dagana 10.-14. júlí 2013.  Þátttakendur í ár voru 118 þar af 20 konur. Klúbbmeistari GSE 2013 er Helgi Birkir Þórisson.  Hann lék hringina 4 á 6 yfir pari, 294 höggum (75 73 73 73).  Í 2. sæti varð klúbbmeistari GSE 2012 Hrafn Guðlaungsson og munaði aðeins 1 höggi á honum og Helga Birki. Klúbbmeistari kvenna í GSE er Herdís Hermannsdóttir en hún lék á 100 yfir pari, 388 höggum. Sjá má öll úrslit og myndir frá verðlaunaafhendingu meistaramóts GSE 2013 með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 17. 2013 | 00:30

Fannar Ingi á 3 yfir pari á Callaway Junior World Golf Championship eftir 1. dag

Fannar Ingi Steingrímsson, GHG,  tekur þátt í Callaway Junior World Golf Championship, sem fram fer í Morgan Run Resort and Club, í Kalíforníu, dagana 15.-19. júlí 2013. Um 1250 þátttakendur eru í mótinu og fá elstu keppendurnir að spila á Torrey Pines golfvellinum. Spilað er á 11 völlum. Fannar Ingi byrjaði ágætlega í gærmorgun en hann lék á 3 yfir pari, 74 höggum og deilir 28. sæti eftir 1. dag. Þetta var ágætt skor hjá honum, en fuglarnir létu á sér standa þó færin væru mörg. Fannar Ingi á rástíma á morgun kl. 12:10 að staðartíma (þ.e. kl.  19:10 hér heima á Íslandi) Raðað upp eftir skori á 3. hring, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 16. 2013 | 20:00

GL: Friðmey og Stefán Orri klúbbmeistarar 2013

Það voru þau Stefán Orri Ólafsson og Friðmey Jónsdóttir sem urðu klúbbmeistarar á meistaramóti Golfklúbbsins Leynis á Akranesi sem fram fór dagana 8. – 13. júlí í síðustu viku. Keppendur voru 155 og keppt var í 12 flokkum. Stefán Orri, klúbbmeistari GL 2013 lék hringina fjóra á samtals 22 yfir pari, 310 höggum (82 75 75 78).  Hann átti 3 högg á Kristvin Bjarnason, sem varð í 2. sæti. Í 3. sæti varð síðan Hannes Marinó Ellertsson á samtals 33 yfir pari, 358 höggum. Friðmey fékk enga samkeppni en hún lék ein í meistaraflokki og var á samtals 70 yfir pari, 358 höggum. Næstbesta skor kvenna í meistaramótinu átti Elín Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 16. 2013 | 19:00

GHR: Hafdís Alda og Andri Már klúbbmeistarar 2013

Meistaramót Golfklúbbs Hellu á Rangárvöllum (GHR) fór fram dagana 10.-13. júlí 2013. Þátttakendur voru 38 – þar af luku nokkrir ekki keppni. Það eru þau Andri Már Óskarsson og Hafdís Alda Jóhannsdóttir, sem eru klúbbmeistarar Keilis 2013. Andri Már lék á 16 yfir pari, 296 höggum (72 76 74 74).  Í kvennaflokki varð Hafdís Alda Jóhannsdóttir klúbbmeistari en hún lék hringina 4 á 61 yfir pari, 341 höggi (87 85 87 82). Úrslit í meistaramóti GHR 2013 voru eftirfarandi:   Meistaraflokkur karla: 1 Andri Már Óskarsson GHR 0 F 38 36 74 4 72 76 74 74 296 16 2 Óskar Pálsson GHR 5 F 44 41 85 15 77 84 81 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 16. 2013 | 18:30

GSK: Ingibergur klúbbmeistari 2013

Meistaramót Golfklúbbs Skagastrandar fór fram 6. júlí 2013, s.l.  Þátttakendur voru aðeins 6 að þessu sinni og þar af luku aðeins 4 keppni og þ.á.m. engin kona.  Leiknir voru 2 hringir. Klúbbmeistari GSK 2013 er Ingibergur Guðmundsson, en hann lék á samtals 25 yfir pari, 169 höggum (79 90). Heildarúrslit í meistaramóti GSK 2013 voru eftirfarandi: 1 Ingibergur Guðmundsson GSK 11 F 49 41 90 18 79 90 169 25 2 Adolf Hjörvar Berndsen GSK 13 F 47 44 91 19 89 91 180 36 3 Hafþór Smári Gylfason GSK 21 F 50 47 97 25 109 97 206 62 4 Lárus Ægir Guðmundsson GSK 26 F 66 55 121 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 16. 2013 | 17:30

GOS: Hlynur Geir og Auður Eir klúbbmeistarar 2013

Meistaramót GOS lauk á laugardaginn 13.júlí og er ekki hægt að segja að veðrið hafi leikið við keppendur. En veðrið var gott fimmtudag og föstudag. Metþátttaka var í mótinu er 77 keppendur voru skráðir til leiks með börnum og unglingum. Hlynur Geir sigraði meistaraflokk og varð um leið klúbbmeistari karla, Alexandra Eir sigraði 1.flokk kvenna og varð klúbbmeistari kvenna. Mikil fjölgun var í kvennaflokkum í meistaramótinu og ekki hafa verið svona margar konur í mótinu í mörg ár, eða 11 samtals. Er það mikið fagnaðarefni!!! Hægt er að sjá fullt af myndum af lokahófi GOS inn á facebook síðu Golfklúbb Selfoss SMELLIÐ HÉR:  Úrslit voru eftirfarandi: Stelpur 13-14 ára Staða Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 16. 2013 | 16:30

Afmæliskylfingur dagsins: Adam Scott ——- 16. júlí 2013

Afmæliskylfingur dagsins er einn vinsælasti kylfingur a.m.k. meðal kvenþjóðarinnar – maður sem hvað eftir annað hefir verið valinn kynþokkafyllsti kylfingur allra tíma… og sem er þar að auki líka góður kylfingur: Masters risamótsmeistari ársins 2013… ástralski kylfingurinn Adam Derek Scott. Adam fæddist Adelaide í Ástralíu, 16. júlí 1980 og er því 33 ára í dag. Hann býr í Crans-Montana í Sviss. Adam gerðist atvinnumaður í golfi árið 2000 og hefir á ferli sínum sigrað 21 sinnum, þ.á.m. 9 sinnum á evrópsku mótaröðinni og 9 sinnum á PGA. Honum tókst loks í ár að rjúfa álögin sem hvílt hafa á áströlskum kylfingum á Masters risamótinu og VANN!!! Adam er eflaust líka einn Lesa meira