Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 18. 2013 | 14:30
Jimenez byrjar vel á Opna breska

Miguel Angel Jimenez byrjaði vel á Opna breska risamótinu í dag en hann var á 3 undir pari, 68 höggum. Það eru 25 ár síðan Seve Ballesteros vann síðasta af 3 Opnu bresku risamótumsigrum sínum og það er ástæða þess að flestum spænsku keppendunum langar enn meir að sigra. Jimenez sagði um það: „Það væri frábært ef Spánverji ynni mótið og það væri enn betra ef það væri ég. En maður veit aldrei hvað gerist. Það eru 3 hringir eftir. Það eina sem maður verður að gera er að skemmta sér!“ Aðspurður um skíðaslys sitt um jólin þegar hann fótbrotnaði og varð að vera frá keppni sagði Jimenez: „Ég er Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 18. 2013 | 14:00
Rory heillum horfinn – var á 79 á 1. hring Opna breska! – Svarar Faldo fullum hálsi

Rory átti erfiða byrjun á Opna breska í dag. Hann lauk 1. hring á 8 yfir pari, 79 höggum og virðist algerlega heillum horfinn. Á hringnum fékk hann 2 fugla, 8 pör, 6 skolla og 2 skramba. Þetta lítur meira út eins og gott skor hjá meðalskussa en nr. 2 á heimslistanum! Margir hafa orðið til að gagnrýna aumingja Rory á þessum erfiðistímum. Johnny Miller sagði að Caroline Wozniacki hefði skemmt leik Rory – Nick Faldo sagði að Rory ætti bara að einbeita sér meira að æfingum. Og nú í vikunni svaraði Rory, Nick Faldo fullum hálsi. „Hvað er eiginlega málið?“ spurði Rory. „Ég hef ekki átt bestu 6 mánuði Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 18. 2013 | 12:00
Afmæliskylfingar dagsins: Kolbrún Lilja, Ólafur Arnarson og Nick Faldo – 18. júlí 2013

Afmæliskylfingar dagsins eru Kolbrún Lilja og Ólafur Arnarson. Kolbrún Lilja er fædd 18. júlí 1973 og á því 40 ára merkisafmæli. Ólafur er fæddur 18.júlí 1963 og á því 50 ára stórafmæli í dag! Kolbrún Lilja og Ólafur eiga sama afmælisdag og ekki ómerkari kylfingur en Sir Nick Faldo, sem einmitt er þessa dagana að spóka sig í bresku fánalitunum á Muirfield, þar sem Opna breska risamótið hófst í morgun, en Faldo, sem einmitt sigraði eftirminnilega 1987 þar, tekur nú sem fyrr þátt í mótinu. Komast má á facebook síðu afmæliskylfinganna til þess að óska þeim til hamingju með merkisafmælin hér að neðan: Kolbrún Lilja (40 ára stórafmæli!!! – Innilega til hamingju Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 18. 2013 | 10:15
GD: Sigrún María og Elías Björgvin klúbbmeistarar 2013

Meistaramót Golfklúbbsins Dalbúa fór fram dagana 13.-14. júlí 2013 og lauk nú s.l sunnudag. Klúbbmeistarar Golfklúbbsins Dalbúa 2013 eru Elías Björgvin Sigurðsson og Sigrún María Ingimundardóttir. Sjá má ljósmyndir frá verðlaunaafhendingu á meistaramóti GD með því að SMELLA HÉR: Höggleikur með forgjöf: Karlar 1. sæti – Elías Björgvin Sigurðsson á 153 höggum brúttó, 137 höggum nettó eða 5 undir forgjöf 2. sæti – Kristófer Dagur Sigurðsson á 159 höggum brúttó eða 149 nettó 3. sæti – Sigurjón Guðmundsson á 160 höggum brúttó eða 150 nettó Konur 1. sæti – Sigrún María Ingimundardóttir á 192 höggum brúttó eða 164 höggum nettó 2. sæti – Hafdís Ingimundardóttir á 205 höggum brúttó eða 171 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 18. 2013 | 10:00
GHG: Ásgerður Þórey og Þorsteinn Ingi klúbbmeistarar 2013

Meistaramót Golfklúbbs Hveragerðis fór fram dagana 11.-14. júlí 2013 og lauk nú s.l. sunnudag. Þátttakendur voru 49, þar af 14 konur. Klúbbmeistarar GHG 2013 eru Þorsteinn Ingi Ómarsson og Ásgerður Þórey Gísladóttir. Þorsteinn Ingi lék hringina 4 á samtals 24 yfir pari, 312 höggum (81 78 76 77). Ásgerður Þórey hins vegar spilaði á samtals 105 yfir pari, 393 höggum (100 97 96 100). Helstu úrslit í meistaramóti Golfklúbbs Hveragerðis 2013 eru eftirfarandi: Sæti Högg Meistaraflokkur karla 1 Þorsteinn Ingi Ómarsson 312 2 Birgir Rúnar Steinarsson Busk 320 3 Auðunn Elvar Auðunsson 334 Meistaraflokkur kvenna 1 Ásgerður Þórey Gísladóttir 393 2 Kolbrún Bjarnadóttir 396 3 Ásta Björg Ásgeirsdóttir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 18. 2013 | 09:00
GSS: Árny Lilja og Oddur klúbbmeistarar 2013

Meistaramót GSS var haldið dagana 10.-13. júlí s.l. Alls tóku 32 keppendur þátt og var keppt í 6 flokkum. Eftir 72 holur voru Oddur Valsson og Jóhann Örn Bjarkason jafnir á 320 höggum og þurfti bráðabana til að knýja fram úrslit. Oddur vann eftir fyrstu holu með pari á meðan Jóhann Örn spilaði á skolla. Þetta er í 2. sinn sem Oddur verður klúbbmeistari GSS. Árný Lilja Árnadóttir vann öruggan sigur í meistaraflokki kvenna, spilaði hringina fjóra á 339 höggum og var Sigríður Elín Þórðardóttir í öðru sæti á 356 höggum. Þetta var í 12. skipti sem Árný Lilja verður klúbbmeistari GSS sem er stórglæsilegur árangur og skipar henni í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 18. 2013 | 00:15
Fannar Ingi á 71 höggi eftir 2. dag á Callaway Junior World Golf Championship!

Fannar Ingi Steingrímsson, GHG, tekur þátt í Callaway Junior World Golf Championship, sem fram fer í Morgan Run Resort and Club, í Kalíforníu, dagana 15.-19. júlí 2013. Í gær 2. mótsdag lék hann á 71 höggi og er því samtals búinn að spila á 145 höggum. Glæsilegur árangur þetta hjá Fannari Inga!!! Nokkrir eiga eftir að ljúka keppni og því ekki vitað þegar þetta er ritað í hvaða sæti Fannar Ingi er í eftir 2. dag. Sem stendur deilir Fannar Ingi 32. sætinu með nokkrum öðrum kylfingum, en 170 leika í hans hluta mótsins. Raðað er niður eftir skori á 3 hring. Callaway Junior World Golf Championship er eitt elsta Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 17. 2013 | 23:00
GH: Jóhanna og Unnar Þór klúbbmeistarar 2013
Meistaramót Golfklúbbs Húsavíkur fór fram dagana 10.-13. júlí s.l. Þátttakendur voru 25 þar af 5 kvenkylfingar. Veður var kylfingum Húsavíkur hagstætt og gekk mótið vel fyrir sig. Fyrsti flokkur karla lék 4 hringi, 1. flokkur kvenna og 2. flokkur karla spiluðu 3 hringi í höggleik og 2. flokkur kvenna og 3. flokkur karla léku 2 daga skv. punktaleikfyrirkomulagi. Klúbbmeistarar GH 2013 eru Unnar Þór Axelsson sem lék hringina 4 á 26 yfir pari, 306 höggum (76 82 69 79). Í 2. sæti varð Sigurður Hreinsson 3 höggum á eftir Unnari Þór og í 3. sæti varð Axel Reynisson á samtals 39 yfir pari. Klúbbmeistari kvenna í GH er Jóhanna Guðjónsdóttir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 17. 2013 | 22:30
Afmæliskylfingur dagsins: Zane Scotland ——- 17. júlí 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Zane Scotland. Scotland fæddist í Manchester á Englandi 17. júlí 1982 og á því 31 árs afmæli í dag. Hann gerðist atvinnumaður í golfi 2003 eða fyrir nákvæmlega áratug og hefir á ferlinum sigrað 1 sinni þ.e. á ABC Solution UK Championship á PGA Europro Tour. Sem áhugamaður sigraði hann Peter McEvoy Trophy árið 2000. Zane er frændi Patrica Scotland, barónessu af Skotlandi Ashtal. Það er vel við hæfi að Scotland sé afmæliskylfingur dagsins því á morgun hefst risamót allra risamóta einmitt í Skotlandi og Zane dæmigerður fyrir nafnagift þar fyrir u.þ.b. 30 árum en þá var mikið í tísku að skýra börn sín nöfnum sem byrjuðu á Z, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 17. 2013 | 13:30
„Dufnerast“ á Opna breska

Lindsey Vonn og Nadine Moze eru ágætis vinkonur. Stórkylfingurinn Jason Dufner og Nadine ákváðu að kynna Lindsey fyrir „Dufnering“ og fékk Lindsey að „dufnerast“ svolítið með „órigínalinu“ sjálfu Jason Dufner og vinkonu sinni Nadine og það á Opna breska! „Dufnering“ er æði sem hófst s.l. mars þegar Jason Dufner heimsótti J. Erik Jonsson Community skólann í Dallas fyrir mót og ljósmyndarar fundu Dufner þar sem honum hundleiddist greinilega inn í skólastofu og hann sat með uppgjafarsvip á gólfinu með krökkunum og hallaði sér upp að vegg skólastofunnar. Þessi pósa vakti kátínu meðal félaga hans á PGA og kepptu allir við að láta taka af sér myndir í sömu stellingu og Jason Dufner Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

