Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 21. 2013 | 20:00
Viðtalið: Hólmfríður Einarsdóttir, GKG.

Viðtalið í kvöld er við markaðs-og þjónustustjóra Íslandsbanka, sem er dyggur stuðningsaðili Unglingamótaraðarinnar. Hún varði í gær klúbbmeistaratitil sinn í Golfklúbbi Úthlíðar, en þau mæðginin urðu klúbbmeistarar GÚ 2013. Hér fer viðtalið: Fullt nafn: Hólmfríður Einarsdóttir. Klúbbur: GKG. Hvar og hvenær fæddistu? Bolungarvík, 3. september 1972. Hvar ertu alin upp? Í Bolungarvík, fyrir utan 3 ár á Ísafirði, á aldrinum 10-12 ára. Í hvaða starfi ertu? Ég er markaðs-og þjónustustjóri Íslandsbanka. Hverjar eru fjölskylduaðstæður og spilar einhver í fjölskyldunni golf? Já, heldur betur, við spilum öll golf. Ég er gift Ragnari Þór Ragnarssyni frá Húsavík og eigum við 3 börn: Emil Þór 18 ára, Ölmu Rún, 12 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 21. 2013 | 19:00
GÚ: Mæðgin – Hólmfríður og Emil Þór klúbbmeistarar 2013
Meistaramót Golfklúbbs Úthlíðar fór fram dagana 19.-20. júlí og lauk í gær. Það voru 53 sem luku keppni í mótinu, þar af 15 kvenkylfingar. Það eru mæðginin, Emil Þór Ragnarsson, GKG og Hólmfríður Einarsdóttir, GKG sem eru klúbbmeistarar GÚ 2013!!! Emil Þór lék á samtals 1 yfir pari, 141 höggi (67 74) og var fyrri hringurinn sérlega glæsilegur en þá spilaði Emil Þór á 3 undir pari, 67 höggum. Í 2.-3. sæti urðu Bjarki Þór Davíðsson, GÚ og faðir Emils Þórs, Ragnar Þór Ragnarsson, GKG, báðir á samtals 13 yfir pari. Hólmfríður, móðir Emils Þórs varði klúbbmeistaratitil sinn frá því í fyrra, en hún er nú klúbbmeistari GÚ, annað árið í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 21. 2013 | 16:55
Mickelson sigraði á Opna breska!!!

Nú rétt í þessu var Phil Mickelson að sigra á 142. Opna breska risamótinu á Muirfield linksaranum, í Skotlandi. Sigurskorið í ár var upp á samtals 3 undir pari, 281 högg (69 74 72 66). Óhætt er að segja að frábær lokahringur Mickelson upp á 5 undir par, 66 högg, hafi gert útslagið varðandi sigur hans. Þetta er 5. risamótstitill hins 43 ára Mickelson, en hann hefir þrívegis sigrað á Masters (2004, 2006 og 2010) og einu sinni á PGA Championship (2005). Þetta er hins vegar fyrsti sigurinn á Opna breska…. þannig að nú á Phil „bara“ eftir að sigra á Opna bandaríska til þess að hafa sigrað í öllum Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 21. 2013 | 16:45
GBO: Janusz Pawel og Eygló klúbbmeistarar 2013

Meistaramót GBO fór fram dagana 18.-20. júlí 2013. A-flokkur lék 54 holur, B-flokkur og kvennaflokkur 9 holur fimmtudag og föstudag og 18 holur í gær, laugardaginn 20. júlí eða allt í allt 36 holur hvor flokkur. Klúbbmeistarar GBO urðu Janusz Pawel Duszak og Eygló Harðardóttir. Janusz lék á samtals 15 yfir pari, 228 höggum (74 78 76) og Eygló lék á samtals 201 höggi (99 102), en konurnar léku 2 hringi. Sjá má heildarúrslit í meistaramóti GBO 2013 hér að neðan: 1 Janusz Pawel Duszak GBO 3 F 38 38 76 5 74 78 76 228 15 2 Chatchai Phothiya GBO 1 F 37 38 75 4 79 78 75 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 21. 2013 | 16:21
Stendur Mickelson uppi sem sigurvegari Opna breska 2013?

Phil Mickelson, sigraði á Opna skoska fyrir viku. Skyldi honum takast að sigra á Opna breska líka, sem fram hefir farið á Muirfiled linksaranum nú í vikunni? Hann átti besta skor dagsins lék á 5 undir pari og það kom honum upp í 1. sætið nú þegar helstu keppinautarnir eiga örfáar holur óspilaðar. Phil átti magnaðan meistarahring og verðskuldar svo sannarlega að sigra á Opna breska. Hann fékk hvorki meira né minna en 6 fugla á Muirfield og að vísu 1 skolla á par-4 10. brautinni. Já, Opna breska 2013 að verða búið en spennan í hámarki. Nær einhver Phil? Hér má sjá stöðuna á Opna breska SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 21. 2013 | 16:00
GB: Bjarki á besta skorinu í Opna Nettó mótinu

Í gær fór fram á Hamarsvelli Opna Nettó mótið og luku 71 keppni, 65 karl- og 6 kvenkylfingar. Veitt voru glæsileg verðlaun fyrir besta skor og 3 efstu sæti í punktakeppni með forgjöf. Það var Bjarki Pétursson, GB, sem var á besta skorinu en hann lék Hamarsvöll á 1 undir pari, 70 höggum. Fyrir 1. sætið hlaut Bjarki þriggja brennara grill og grilláhöld, sem á eftir að koma sér vel nú þegar veðrið á að fara að leika við kylfinga, sem aðra landsmenn síðsumars. Í 2. sæti í höggleiknum varð Haraldur Þórðarson,GKB, á sléttu pari, 70 höggum. Það var einmitt líka Haraldur Þórðarson GKB, sem varð í efsta sæti í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 21. 2013 | 15:00
GJÓ: Golfklúbburinn Jökull 40 ára

Golfklúbburinn Jökull í Ólafsvík er 40 ára í dag!!!! Golfklúbburinn Jökull var stofnaður 21. júlí 1973 . Einn af aðalhvatamönnum að stofnun Golfklúbbsins var Jafet Sigurðsson kennari og síðar kaupmaður hér í Ólafsvík. Stofnfélagar voru 44. Land undir golfvöll fékkst fyrst á Fróðárengjum vestan við Fróðá og voru það frekar frumstæðar aðstæður. Ekki voru félagar sáttir við vallarsvæðið og varð úr að golfvöllurinn var færður út á Sveinsstaði. Árið 1978 var farið að huga að nýju vallarstæði fyrir golfvöll og var samið við eigendur að landi Ytri Bugs um golfvöll til 5 ára. 1980 var samið við eigendur að Fróðá hf. um land undir golfvöll og 1986 var svo látið Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 21. 2013 | 14:00
Nick Faldo um sigurinn á Opna breska í Muirfield 1987

Nú í kvöld ræðst á Muirfield í Skotlandi, þar sem Opna breska hefir farið fram hver stendur uppi sem sigurvegari í 3. risamóti ársins. Sir Nick Faldo sem því miður var í einu neðsta sætinu nú í ár, sigraði á Opna breska í Muirfield fyrir 26 árum, þ.e. árið 1987. A.m.k. 1 íslenskur kylfingur, þá búsettur í Skotlandi, var staddur á Muirfield og fylgdist þar ásamt fjöldanum með gangi máli og miklu fleiri, já þúsundir fylgdust með í sjónvarpi, því BBC hefir frá 5. áratug síðustu aldar verið með beinar útsendingar frá Opna breska risamótinu í sjónvarpi. Í ár má ætla að milljónir fylgist með Opna breska í beinni, bæði á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 21. 2013 | 12:00
Afmæliskylfingur dagsins: Magnús Birgisson – 21. júlí 2013

Einn besti og ástsælasti golfkennari landsins, Magnús Birgisson, á afmæli í dag en hann er fæddur 21. júlí 1959. Magnús er flestum kylfingum landsins að góðu kunnur, m.a vegna golfkennarastarfa sinna á Costa Ballena á Spáni (þar sem hann kennir golf í hópi einvala liðs golfkennara, þ.e. ásamt Ragnhildi Sigurðardóttur og Herði Arnarsyni ) Það er kunnara en frá þurfi að segja að Magnús kemur úr stórri golffjölskyldu en allir í kringum hann, eiginkonan, synir, systur, móðir, frænkur og frændur eru í golfi. Magnús er kvæntur Ingibjörgu Guðmundsdóttur, eiganda golfvörufyrirtækisins hissa.is, en á boðstólum fyrirtækisins eru ýmsar frábærar vörur fyrir golfara m.a. birdiepelar, flatarmerki, flatargaflar, tí, golfkúluvarasalvar, golfhandklæði og síðast en ekki síst SeeMore pútterar Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 21. 2013 | 07:00
Opna breska í beinni

Í gær hófst Opna breska á Muirfield linksaranum í Skotlandi. Allir bestu kylfingar heims eru mættir til keppni og flestir tippa á að Tiger taki loks að sigra 15. risamótið sitt. Á undanförnum árum hafa þó ýmsir óvæntir sigurvegarar skotið upp kollinum á Opna breska. Það er spennandi að sjá hver það verður í ár. Eftir 2. dag leiðir spænski kylfingurinn Miguel Angel Jiménez. Tekst honum að halda forystunni? Bein útsending hófst kl. 5:00 í nótt. Skemmtileg golfhelgi framundan!!! Til þess að sjá Opna breska risamótið 2013 í beinni SMELLIÐ HÉR: Hér má fylgjast með gangi mála á skortöflu SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

