Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 23. 2013 | 06:00

Mini Tour kylfingur með hring upp á 56

Í Bandaríkjunum eru allskyns litlar mótaraðir sem ganga undir samheitinu Mini Tour. Jessie Massie, 25 ára,  er einn þeirra sem spilar á þannig minni mótaröðum, sem stendur á NGA Hooters Tour Carolina Series.  Hann lék 18 holur s.l. föstudag á Glenmary golfvellinum í Louisville, Kentucky., og var á 67 höggum. Síðdegis sama dag spilaði hann annan hring á Glenmary og bætti fyrra skor…. um 11 högg. Massie lék 6450 yarda par-72 völlinn á 16 undir pari, 56 höggum, en á hringnum var hann m.a. með 1 örn, 14 fugla og … 1 vítahögg. „Þegar hann kom í golfverslunina, titraði hann,“ sagði Jack Ridge, yfirgolfkennarinn á Glenmary. „Ég trúði þessu bara ekki. Enginn Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 22. 2013 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Þór Einarsson —– 22. júlí 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Þór Einarsson. Þór er fæddur 22. júlí 2000 og er því 13 ára í dag. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju hér að neðan: Þór Einarsson (13 ára) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Susie Berning, 22. júlí 1941 (72 árs);  Carl Suneson, 22. júlí 1967 (46 ára);  Brendon Todd, 22. júlí 1985 (28 ára)…… og …… Valur Valdimarsson (63 ára) Kristofer Helgason (43 ára) Rassar Í Sveit (46 ára)   Kríla-peysur Fríðudóttir (40 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 22. 2013 | 11:30

Frá blaðamannafundi með Mickelson

Eftir sigurinn á Opna breska hélt sigurvegarinn Phil Mickelson blaðamannafund, s.s. hefð er fyrir. Hann sagði m.a. að það væri ótrúleg tilfinning að vinna þetta frábæra mót  (Opna breska) og að  lokahringurinn hefði e.t.v. verið einn besti hringur ævinnar hjá sér – 66 glæsihögg og það á Muirfield linksararnum!  Phil sagðist hafa slegið einhver bestu höggin sín og púttað betur en hann hefði gert hingað til. Phil sagði að sér hefði fundist hann þurfa að spila sitt besta golf, eiginlega upp á A og sagðist hafa gert það – hann hefði spilað eitthvert besta golf sitt á ferlinum. Hann minntist m.a. á hversu frábært það væri að hafa fjölskylduna sína Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 22. 2013 | 10:30

Lokahringur Opna breska – myndskeið

Opna breska lauk í gær með sigri Phil Mickelson s.s. allir vita.  Eftir biturt tap á Opna bandaríska, sigraði Mickelson nú á Opna breska í fysta sinn á ferlinum. Sjá má hápunkta frá lokahringnum á Opna breska í gær með því að SMELLA HÉR:  Eins má með því að SMELLA HÉR: sjá stutt myndskeið frá sigri Mickelson í gær og mistökum Lee Westwood sem leiddu til þess að hann varð enn einu sinni af risamótstitli.


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 22. 2013 | 10:00

GHH: Guðmundur Kristján klúbbmeistari 2013

Þann 20. júlí lauk Meistaramóti Golfklúbbs Hafnar í Hornafirði (GHH) 2013. Þátttakendur voru 4 og þar af engin kvenkylfingur 🙁 Leiknir voru 2 hringir. Klúbbmeistari 2013 er Guðmundur Kristján Guðmundsson en hann lék hringina 2 á samtals 18 yfir pari, 158 höggum (82 76). Sjá má heildarúrslit Meistaramóts GHH 2013 hér að neðan:  1 Guðmundur Kristján Guðmundsson GHH 10 F 37 39 76 6 82 76 158 18 2 Jóhann Bergur Kiesel GHH 8 F 35 41 76 6 84 76 160 20 3 Óli Kristján Benediktsson GHH 7 F 40 43 83 13 83 83 166 26 4 Friðrik Gottlieb Ólafsson GHH 24 F 48 54 102 32 104 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 22. 2013 | 09:30

LPGA: Beatriz Recari sigraði á Marathon Classic

Það var spænski kylfingurinn Beatriz Recari, sem stóð uppi sem sigurvegari á Marathon Classic mótinu sem fram hefir farið í Highland Meadows golfklúbbnum í Sylvanía, Ohio. Recari lék á samtals 17 undir pari, 267 höggum (69 65 67 66).  Fyrir sigurinn hlaut Recari tékka upp á $ 195.000,- Aðeins 1 höggi á eftir var „bleiki pardusinn” Paula Creamer. Hún lék á 16 undir pari, 268 höggum (66 68 67 67). Lexi Thompson og Jodi Ewart-Shadoff deildu síðan 3. sætinu á samtals 13 undir pari, hvor. Af öðrum einstökum úrslitum mætti geta að áhugamaðurinn ungi frá Nýja-Sjálandi, Lydia Ko varð ásamt 4 öðrum í 7. sæti á samtals 9 undir pari; Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 22. 2013 | 09:15

GJÓ: Guðlaugur og Fjóla Rós klúbbmeistarar 2013

Golfklúbburinn Jökull í Ólafsvík átti 40 ára afmæli í gær.  Golf 1, sem er með ítarlegustu umfjöllun allra golffréttamiðla um meistaramót í golfi á Íslandi var bent á það í gær af góðum „Ólsara” að ekkert hefði verið fjallað um meistaramót GJÓ í ár;  Meistaramót Snillinganna. Biðst Golf1 hér með afsökunar á því og nú reynt að bæta úr því. Gaman að vita að Golf1.is er lesinn í Ólafsvík!!! Því er jafnframt komið á framfæri að ef einhverjar tillögur eru um úrbætur á fréttaflutningi Golf1.is þá eru þær velkomnar sem og öll uppbyggileg gagnrýni eða óskir um ákveðið efni.  Vinsamlegast komið með athugasemdir ykkar eða óskir um ákveðna golfumfjöllun á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 22. 2013 | 08:30

GÖ: Kristín og Bergþór klúbbmeistarar 2013

Dagana 18.-20. júlí fór fram Meistaramót Golfklúbbs Öndverðarness (GÖ).  Í ár tóku 90 þátt, þar af 29 kvenkylfingar (konur sem sagt 1/3 þátttakanda, sem er fremur hátt hlutfall kvenþátttakanda í meistaramótum, sem ber að fagna!!!)  Auk þess fór fram sérstakt meistaramót unglinga þar sem þátttakendur voru 4. Klúbbmeistarar eru Bergþór Jónsson, GR, en hann lék á samtals 26 yfir pari (78 83 75) og átti hann 4 högg á þann sem varð í 2. sæti: Þóri Baldvin Björgvinsson, GÖ. Í 3. sæti varð síðan Þorsteinn Þorsteinsson, GÖ á samtals 44 yfir pari. Klúbbmeistari kvenna í GÖ er Kristín Guðmundsdóttir, en hún fékk litla samkeppni; var eini keppandinn í meistarflokki kvenna. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 22. 2013 | 08:00

LET: Pace vann Opna spænska!

Það var Lee-Anne Pace frá Suður-Afríku sem sigraði á Opna spænska kvennamótinu, sem fram fór í Club de Campo Villa de Madrid, á Spáni nú um helgina. Lee-Anne lék á samtals 13 undir pari og átti 1 högg á fyrrum W-7 módelið sænska, Mikaelu Parmlid, sem varð í 2. sæti. Í 3. sæti varð síðan enn eitt W-7 módelið, Joanna Klatten frá Englandi á samtals 9 undir pari. Lee Anne er fædd 15. febrúar 1981 og er því 32 ára.  Þetta er 7. sigur hennar á Evrópumótaröð kvenna, en hún gerðist atvinnumaður árið 2005. Til þess að sjá úrslitin úr Opna spænska SMELLIÐ HÉR:     


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 21. 2013 | 23:59

Íslandsbankamótaröðin (5): Úrslit eftir síðari dag

Um helgina fóru fram tvö mót á Norðurlandi á Íslandsbankamótaröð unglinga í golfi. Leikið var á Jaðarsvelli og Arnarholtsvelli. Úrslit urðu eftirfarandi í aldursflokkum. Íslandsbankamótaröðin á Jaðarsvelli Piltar 17-18 ára 1. sæti  Aron Snær Júlíusson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar  á 153 höggum 2. sæti  Kristinn Reyr Sigurðsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur á  154 höggum 3. sæti  Egill Ragnar Gunnarsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar á 155 höggum Stúlkur 17-18 ára 1. sæti  Særós Eva Óskarsdóttir úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar á 160 höggum 2. sæti  Gunnhildur Kristjánsdóttir úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar á 163 höggum 3. sæti  Stefanía Elsa Jónsdóttir úr Golfklúbbi Akureyrar á 170 höggum. Drengir 15-16 ára 1. sæti  Henning Darri Þórðarson úr Golfklúbbnum Keil  á 149 höggum 2.-3. Lesa meira