Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 24. 2013 | 18:00

Mickelson þarf að borga 61% af verðlaunafé á Opna breska í skatta

Phil Mickelson fær bara að halda $842.000 eftir skatta af verðlaunafé sínu sem hann vann inn í 2 mótum, sem hann tók þátt í, í Skotlandi, skv. grein í Forbes. Það var nefnilega lagður á 61% skattur á verðlaunafé hans á Opna skoska og Opna breska, vegna lagaskila við bresk skattalög. Í Bretlandi er lagður 45% skattur á allar tekjur yfir £150,000. Þar að auki er lagður skattur á auglýsingasamninga og bónusa, sem Mickelson hlaut í Skotlandi. Þessu til viðbótar verður Mickelson að borga alríkisskatt og ríkisskatt í Kaliforníu af verðlaunafé sínu, en í Kaliforníu er skattprósentan 13.3%. Þegar allt er til tekið þá gerir þetta 61% í skatt. Ekki er Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 24. 2013 | 15:00

Flottur Ferrari Inbee Park

Nr. 1 á Rolex heimslista kvenna, Inbee Park, lifir hátt. Hún tvítaði nú nýlega mynd af sér brosandi með nýja bílnum sínum, rauðum Ferrari FF, en verðið á bílnum fer ekki undir 36 milljónir íslenskra króna (þ.e. $ 300.000) Eftir aðeins nokkrar vikur keppir Inbee á Women´s British Open og getur þá orðið fyrsti kylfingurinn hvort heldur karl- eða kven til þess að sigra í 4 risamótum sama árið. Hún virðist ekki hafa áhyggjur af neinu sbr. myndina af henni brosandi með bílnum. En hún hefir líka ástæðu til að brosa.  Á síðasta ári keppti hún í 15 mótum og vann 6 sinnum (þ.á.m. í 3 risamótum) og varð 8 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 24. 2013 | 11:15

Westy: „Ég er ekki eins og Monty!“

Lee Westwood (oft nefndur Westy) hefir vísað á bug samanburði milli sín og Colin Montgomerie (Monty) Westwood, sem nú hefir 16 sinnum verið meðal efstu 10 í risamóti í samanburði við 10 skipti Monty, heldur því staðfastlega fram að hann sé betri kylfingur en Monty var. „Ég veit af samanburðinum, en hann varð aldrei nr. 1 á heimslistanum, hann varð nr. 2 og ég varð nr. 1,“ sagði Westwood og vísaði ítrekað á burt samanburðinum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Westy vísar á bug þeirri tilgátu að örlög hans í risamótum verði þau sömu og Monty, þ.e. að hann muni aldrei sigra í neinu risamóti né er þetta Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 24. 2013 | 09:30

Frænka Tiger keppir um sæti í Opna breska

Frænka Tiger Woods, Cheyenne Woods, sem var liðsfélagi Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur, GR, í Wake Forest á viðburðarríka daga framundan, en hún mun reyna að öðlast sæti  í Opna breska kvennamótinu. Hún verður að standa sig vel á  Ladies European Masters sem fer fram  í Buckinghamshire golfklúbbnum nú í vikunni, þ.e. dagana 26.-28. júlí en mótið er hluti af Evrópumótaröð kvenna. Takist henni ekki þar að öðlast sæti í einu virtasta risamóti kvennagolfsins (Opna breska), sem fram fer á St. Andrews í ár,  þá verður Cheyenne að fara í úrtökumót í Kingsbarns golfklúbbnum 29. júlí n.k. Cheyenne er alveg ákveðin í að skapa sér eigið nafn í golfheiminum …. þó það sé ansi Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 23. 2013 | 19:30

Íslandsmótið í höggleik – 25.-28. júlí 2013 á Korpúlfsstaðarvelli

Íslandsmótið í höggleik 2013 fer fram dagana 25.-28. júlí og er þetta í sjötugasta og fyrsta skiptið sem keppt er um Íslandsmeistara titil í golfi. Eins og áður er mótið hápunktur golfsumarsins og Eimskipsmótaraðarinnar, enda keppt um eftirsóttustu titlana í íslensku golfi. Í ár fer Íslandsmótið fer fram á Korpúlfsstaðavelli og er í umsjá Golfklúbbs Reykjavíkur. Korpúlfsstaðavöllur var í sumar stækkaður í 27. holur og fá keppendur nú að spreyta sig á nýja hluta vallarins, auk þess sem eldri holur eru leiknar. Völlurinn skiptist í dag í 3 slaufur sem hafa fengið nöfnin, Sjórinn, Áin og Landið. Á mótinu verða leikið á Sjónum og Ánni. Sjórinn, það eru fyrri níu Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 23. 2013 | 15:00

42 myndir af heitustu kvenkylfingunum

Bleacher Report hefir tekið saman 42 myndir af heitustu kvenkylfingum. Meðal þeirra sem fleiri en 1 mynd er af í þessari samantekt eru Natalie Gulbis, Blair O´Neil, Diora Baird, Anna Rawson og Sandra Gal. Til þess að sjá samantekt Bleacher Report SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 23. 2013 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: Boo Weekley – 23. júlí 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Thomas Brent „Boo“ Weekley. Boo fæddist í Milton, Flórída 23. júlí 1973 í  og á því 40 ára stórafmæli í dag!  Hann gerðist atvinnumaður í golfi 1997 og hefir því verið starfandi sem slíkur í 16 ár. Boo hefir sigrað 4 sinnum þar af 3 sinnum á PGA Tour. Nú síðast vann Boo á Crown Plaza Invitational 26. maí s.l. Besti árangur Boo á risamóti er T-9 árangur í PGA Championship 2007. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Craig Barlow, 23. júlí 1972 (41 árs);  Mikko Korhonen, 23. júlí 1980 (33 ára);  Harris English, 23. júlí 1989  (24 ára) ….. og …… Malín Brand Golf Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 23. 2013 | 11:00

Heimslistinn: Mickelson kominn í 2. sætið!

Eftir sigur sinn á Opna breska er Phil Mickelson búinn að velta Rory McIlroy úr 2. sæti heimslistans. Staða efstu 10 á heimslistanum er því þessi núna: 1. sæti Tiger 2. sæti Phil Mickelson 3. sæti Rory McIlroy 4. sæti Adam Scott 5. sæti Justin Rose 6. sæti Matt Kuchar 7. sæti Brandt Snedeker 8. sæti Graeme McDowell 9. sæti Luke Donald 10. sæti Lee Westwood (fer upp um 2 sæti og að nýju inn á topp-10) Til þess að sjá stöðuna á heimslistanum í heild SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 23. 2013 | 07:00

Mercedes Benz golfbíllinn

Mercedes Benz efndi til samkeppni meðal golfáhugamanna og bað um að hannaður yrði golfbíll framtíðarinnar.  Í 1. verðlaun fyrir bestu hönnunina var ferð á Opna breska sem lauk nú á sunnudaginn með sigri Phil Mickelson.  Fyrstu verðlaun hlaut eftirfarandi bíll, sem sjá má á myndinni hér fyrir neðan (smellið á hana til þess að stækka hana): Þýski bílaframleiðandinn sagði þetta væri svokölluð framtíðarsýn á golfbíl, en hér má sjá bakhlið bílsins:   Það er nóg rými fyrir golfpokanna s.s. vera ber í golfbíl og meðal þess sem finnst inn í bílnum eru höldur fyrir bolla sem ýmist halda drykkjum ísköldum eða sjóðandi heitum allt eftir því hvort spilað er á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 23. 2013 | 06:30

Allt er fertugum fært!

Svo virðist sem fertugir kylfingar hafi verið einstaklega sigurvísir á elsta rismóti, risamótanna 4, Opna breska. Phil Mickelson varð 43 ára 16. júní á þessu ári. Hann er 3. kylfingurinn í röð sem er kominn yfir fertugt, þegar hann vinnur Opna breska; hinir eru Darren Clarke (en hann var 42 ára 2011) og Ernie Els sem líka var 42 ára þ.e. 2012). Sal Johnson höfundur www.golfstats.com segir að þetta sé í fyrsta sinn í langri sögu Opna breska, sem 3 sigurvegarar mótsins í röð hafi verið yfir 40 ára.   Kannski eru kylfingar rétt farnir að ná þroska til þess að sigra á risamóti þegar komið er í kringum 40 Lesa meira