Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 28. 2013 | 08:30
Fannar Ingi lauk keppni í 5. sæti á US Kids!!!

Fannar Ingi Steingrímsson, GHG, lauk keppni í 5. sæti á US Kids Golf Teen World Championship, sem er stórglæsilegur árangur í ljósi þess að keppendur voru 130 víðs vegar að úr Bandaríkjunum og heiminum öllum (m.a. frá Englandi, Kanada, Kína, Costa Rica, Spáni, Mexíkó Litháen, Perú, Nýja-Sjálandi, Ítalíu, Dóminíkanska lýðveldinu, Panama, Suður-Afríku, Suður-Kóreu, Singapúr, Svíþjóð, Guatelmala og Ekvador ). Fannar Ingi deildi 5. sætinu með Damon Crane frá Kanada og Ryan Chadwick frá Englandi. Í 4 efstu sætunum voru keppendur frá Bandaríkjunum og í 1. sæti Kyle Cornelius, frá Alabama, sem lék á samtals 3 undir pari. Fannar Ingi var því aðeins 4 höggum frá 1. sætinu! Leikið var á einum Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 28. 2013 | 07:45
LET: 3 í forystu fyrir lokahring ISPS Handa Ladies European Masters

Í dag fer fram lokahringur ISPS Handa Ladies European Masters, en mótið er haldið í Buckinghamshire í Englandi. Í mótinu eru leiknar 54 holur, dagana 26.-28. júlí 2013. Fyrir lokahringinn eru 3 í forystu þ.e. Caroline Masson frá Þýskalandi, hin tékkneska Clara Spilkova og Ashleigh Simon frá Suður-Afríku. Ástralska stúlkan Bree Arthur er síðan aðeins 1 höggi á eftir forystukonunum í 4. sæti. Í fimmta sætinu enn öðru höggi á eftir eru Marion Ricordeau frá Frakklandi og hin enska Charley Hull, báðar á samtals 10 undir pari eftir 2. hringi. Fjórar deila síðan 7. sætinu þ.á.m. Christina Kim og gaman að sjá hana aftur meðal efstu í móti! Meðal þekktra Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 28. 2013 | 07:30
PGA: Snedeker efstur fyrir lokahring RBC

Það er Brandt Snedeker sem tekið hefir forystuna á RBC Canadian Open, sem er mót vikunnar á PGA Tour. Mótið fer fram á Glen Abbey golfvellinum í Ontario, Kanada. Hunter Mahan sem hafði forystuna þegar mótið var hálfnað dró sig úr mótinu til þess að geta verið hjá konu sinni Candy og viðstaddur fæðingu fyrsta barns þeirra. Snedeker er búinn að leika á samtals 14 undir pari, 203 höggum (70 69 63) og það er einkum glæsihringur hans í gær upp á 63 högg, sem kom honum í 1. sætið fyrir lokahringinn. Á hringnum góða fékk Snedeker 9 fugla og 9 pör. En forystan er naum því aðeins 1 höggi Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 28. 2013 | 07:00
Evróputúrinn: Hoey efstur í Rússlandi

Það er Norður-Írinn Michael Hoey frá Ballymoney, sem er efstur fyrir lokahring M2M Russian Open sem leikinn verður á Tsleevo golfvellinum í Rússlandi í dag. Sjá má umfjöllun Golf 1 um Tsleevo golfvöllinn með því að SMELLA HÉR: Michael Hoey hefir nokkuð góða forystu þ.e. 5 högg á næstu keppendur Svíann Rikard Karlberg og Englendinginn Matthew Nixon, er búinn að spila á samtals 14 undir pari, 202 höggum (70 67 65). Það lítur því vel út fyrir Hoey og líkur miklar á að honum muni takast að krækja í 5. Evrópumótaraðar titil sinn, sérstaklega eftir glæsihring hans í gær upp á 65 högg. Um þann hring hafði Hoey eftirfarandi að Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 27. 2013 | 22:30
Eimskipsmótaröðin (4): Skemmtileg kylfu-cover á Íslandsmótinu í höggleik 2013

Það voru ýmis skemmtileg kylfu-cover sem urðu á vegi Golf1 á Íslandsmótinu í höggleik í dag. Eitt þeirra er í eigu Karenar Guðnadóttur, GS, en hún segist hafa átt cover-ið frá því hún var 14-15 ára. Coverið er risastórt og loðið og líkist litlum hundi. Karen sagðist ekki oft vera með það í pokanum, sem skýrir sig sjálft því það verður væntanlega heldur óskemmtilegt og tætt í rigningu og hætta á að það skemmist. Annað skemmtilegt cover var á dræver Þórðar Rafns Gissurarsonar, GR, en sjá má langar leiðir að hann er aðdáandi „rauðu djöflanna“ þ.e. knattspyrnuliðs Manchester United.
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 27. 2013 | 18:30
Eimskipsmótaröðin (4): Haraldur Franklín í forystu eftir 3. hring

Það er Íslandsmeistarinn í höggleik 2012, Haraldur Franklín Magnús, sem leiðir eftir 3. hring 4. móts Eimskipsmótaraðarinnar í ár þ.e. Íslandsmótsins í höggleik 2013. Haraldur Franklín er því búinn að vera í forystu í mótinu alla mótsdagana. Haraldur er samtals búinn að spila samtals á 9 undir pari, 204 höggum (68 67 69) og á 2 högg á Birgi Leif Hafþórsson, GKG, sem er á samtals á 7 undir pari, 206 höggum (71 69 66). Birgir Leifur var á lægsta skori dagsins ásamt Guðmundi Ágústi Kristjánssyni, GR 5 undir pari, 66 höggum og voru þeir því aðeins 1 höggi frá því að jafna nýtt vallarmet sem Ólafur Björn Loftsson setti Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 27. 2013 | 17:17
Eimskipsmótaröðin (4): Valdís Þóra jöfn Guðrúnu Brá í efsta sæti fyrir lokahringinn

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, Íslandsmeistari í höggleik 2012, jafnaði í dag við Guðrúnu Brá Björgvinsdóttir, GK á 3. og næstsíðasta hring Íslandsmótsins. Valdís Þóra var á besta skori dagsins í kvennaflokki ásamt Sunnu Víðisdóttur, GR, en báðar léku þær Korpuna á 1 undir pari. Valdís Þóra og Guðrún Brá hafa báðar spilað á samtals á 5 yfir pari, 221 höggi; Valdís Þóra (77 73 71) og Guðrún Brá (71 75 75). Fyrir lokaholuna í dag var Guðrún Brá jafnvel 1 höggi á eftir Valdísi Þóru, en hún fékk glæsilegan fugl á 18. holu og tókst að jafna. Í 3. sæti er Sunna Víðisdóttir, GR, á samtals 7 yfir pari, 223 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 27. 2013 | 16:45
Eimskipsmótaröðin (4): Myndasería

Í dag léku og leika reyndar enn þau 75 í karlaflokki og 18 í kvennaflokki Íslandsmótsins í höggleik, sem komust í gegnum niðurskurð í gær, á 3. hring Íslandsmótsins í höggleik. Golf1 var á Íslandsmótinu í dag og tók myndir af keppendum, sem sjá má með því að SMELLA HÉR: Það var glampandi sólskin og einn heitasti dagur ársins, 22° C og leikið við bestu aðstæður í Korpunni, en Íslandsmót verða varla glæsilegri en það sem nú fer fram þar. Þegar búið er að spila 13 holur í lokaráshópnum leiðir Haraldur Franklín Magnús, GR á samtals 10 undir pari og á 3 högg á þann sem er í 2. sæti Birgi Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 27. 2013 | 15:00
Afmæliskylfingur dagsins: Örn Guðmundsson – 27. júlí 2013
Afmæliskylfingur dagsins er Örn Guðmundsson. Örn fæddist 27. júlí 1952 og á því 61 árs afmæli í dag. Örn er kvæntur Hafdísi Valdimarsdóttur. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Örn Guðmundsson (61 árs) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Kristján Gíslason Erla Björk Hjartardóttir (42 ára) Arnar Snær Jóhannsson (22 ára) Ólöf Jónsdóttir (43 ára) Golfklúbburinn Vestarr (18 ára) Björg Klausen · (59 ára) Stefán Fannar Sigurjónsson · (42 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 27. 2013 | 06:45
Ísland í 17. sæti á European Young Masters eftir 2. dag

Ísland á 4 keppendur á European Young Masters en mótið stendur dagana 25.-28. júlí 2013 í Hamburger Golf Club í Þýskalandi. Íslensku keppendurnir eru þau Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, Birta Dís Jónsdóttir, GHD, Gísli Sveinbrgsson, GK og Óðinn Þór Ríkharðsson, GKG. European Young Masters er fyrst og fremst einstaklingskeppni þar sem leiknar eru 54 holur í höggleik. Samhliða einstaklingskeppninni fer einnig fram liðakeppni það sem þrjú bestu skorin af fjórum telja frá hverju landi. Í einstaklingskeppninni í drengjaflokki er Gísli Sveinbergsson GK í 22. sæti eftir 2. dag á samtals 149 höggum (75 74) og Óðinn Þór Ríkharðsson, GKG í 32. sæti á 152 höggum (75 77). Alls eru 52 keppendur í drengjaflokki. Í efsta Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

