Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 29. 2013 | 21:45
Fyrstu myndir af dóttur Mahan

Zoe Olivia litla Mahan er varla orðin dagsgömul þá eru einhverjir grínistar farnir að birta myndir af því hvernig hún komi til með að líta út í framtíðinni. Sjá má síðuna sem birti þessar grínmyndir með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 29. 2013 | 20:00
Gary Player telur að Wozniacki kunni að vera ástæðan fyrir að Rory spilar illa

Að árið 2013 sé ömurlegt golflega séð fyrir nr. 3 á heimslistanum Rory McIlroy er að orða það mildilega. Hinn 24 ára Rory byrjaði keppnistímabilið sem tvöfaldur risamótsmeistari og með einn stærsta auglýsingasamning sem nokkurn tímann hefir verið gerður ….. og sem gerði að skilyrði að hann notaði Nike kylfur. McIlroy og Nike kylfurnar virðast enn eiga í stríði og hann ekki að finna sig með þeim. Af þeim 3 risamótum sem búinn eru á nr. 3 enn eftir að verða meðal efstu 20 á risamóti en hann komst ekki einu sinni í gegnum niðurskurð á Opna breska eftir að hafa ekki komist í gegnum niðurskurð á Opna írska. Það versta Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 29. 2013 | 17:00
Inbee býr sig undir Grand Slam á Opna breska

Þegar Se Ri Pak sigraði 1998 á U.S. Women’s Open, hljóp pabbi Inbee Park fagnandi um húsið. Inbee, sem aðeins var 10 ára á þeim tíma byrjaði í golfi þá vikuna. Nú í vikunni á Inbee færi á að verða fyrsti kylfingurinn hvort heldur er karlkyns eða kvenkyns til þess að sigra 4 risamót í röð á sama árinu en aðeins 2 kylfingum hefir tekist að sigra 4 risamót í röð, bara ekki á sama árinu. Þetta eru þau Mickey Wright (1961-62) og Tiger Woods (2000-2001). „Ég hlakka virkilega til þess að fara þangað (á St. Andrews, þar sem Opna breska kvennamótið stendur yfir dagana 1.-4. ágúst í þessari viku).“ „Það Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 29. 2013 | 07:45
LET: Webb sigurvegari á European Masters

Golfdrottninginn ástralska Karrie Ann Webb sigraði á ISPS Handa Ladies European Masters, sem fram fór dagana 26.-28. júlí 2013 í Buckinghamshire golfklúbbnum í Denham, Buckinghamshire í Englandi. Þetta er í 2. sinn sem Karrie sigrar á móti LET. Webb vann með skor upp á samtals 16 undir pari, 200 höggum sléttum (68 67 65) í móti þar sem leikur hennar fór síbatnandi með hverjum hringnum. Webb, sem fædd er 21. desember 1974 og er því á 39. árinu gerðist atvinnumaður 1994 þ.e. fyrir tæpum 20 árum og hefir á atvinnumannsferli sínum sigrað í 56 mótum, þar af 39 á LPGA og og 12 á ALPG mótaröðinni áströlsku. Webb er í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 29. 2013 | 07:00
Evrópumótaröðin: Hoey vann í Rússlandi

Það var Norður-Írinn Michael Hoey, sem stóð uppi sem sigurvegari í M2M Russian Open, sem fram fór nú um helgina á Tsleevo golfstaðnum rétt fyrir utan Moskvu í Rússlandi. Hann lék á samtals 16 undir pari, 272 höggum (70 67 65 70) og hlaut að launum € 166.660 (u.þ.b. 26,7 milljónir íslenskra krónar) eða „bara“ u.þ.b. 1/5 hluta af því sem Brandt Snedeker fékk fyrir sigur sinn á RBC Canadian Open, sem líka fór fram um helgina. „Ég hef algjörlega elskað þennan golfvöll þessa vikuna,“ sagði Hoey, eftir sigurinn. „Þetta er frábær Nicklaus hönnun og einn af þeim bestu sem við spilum á allt árið á túrnum. Flatirnar eru bara Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 29. 2013 | 06:55
PGA: Snedeker sigraði á RBC

Það var Brandt Snedeker sem stóð uppi sem sigurvegari á RBC Canadian Open, sem fram fór á golfvelli Glen Abbey í Ontario, Kanada. Snedeker spilaði á samtals 16 undir pari, 272 höggum (70 69 63 70). Snedeker var mjög afslappaður eftir sigurinn og saup m.a. af flösku af Molson (kanadískum bjór) á blaðamannafundinum. Hann gat ekki hætt að brosa. Snedeker talaði um hversu mikla þýðingu sigurinn hefði fyrir hann og kylfusveininn hans sem er frá Kanada að sigra á Opna kanadíska. „Ég er himinnlifandi,“ sagði Snedeker m.a. eftir sigurinn. „Þetta er mót sem ég sagði snemma á ferli mínum að mig langaði til að sigra á, vegna þess að kylfusveinninn Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 29. 2013 | 06:00
Velkomin Zoe Olivia Mahan

Zoe Olivia Mahan fæddist kl. 3:26 að staðartíma í gær (þ.e. rétt fyrir miðnætti á laugardaginn s.l. að okkar tíma). Hún er fyrsta barn Golf Boys-ins og nr. 22 á heimslistanum, Hunter Mahan og konu hans Kandi. Fæðing barnsins vakti mikla athygli því Mahan dró sig úr RBC Canadian Open mótinu eftir að hafa verið í 1. sæti þegar mótið var hálfnað eftir að hann fékk símhringingu þar sem honum var sagt frá því að kona hans, Kandi, væri komin með hríðir. Sjá má myndskeið þar sem Mahan fær símhringinguna frægu þegar hann er á æfingasvæði Glen Abbey, í Ontario, Kanada, þar sem RBC Canadian Open fór fram SMELLIÐ HÉR: Á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 28. 2013 | 23:30
Afmæliskylfingur dagsins: Þórdís Lilja Árnadóttir – 28. júlí 2013
Það er Þórdís Lilja Árnadóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Þórdís Lilja er fædd 28. júlí 1973 og á því 40 ára stórafmæli í dag! Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska henni til hamingju með afmælið: Þórdís Lilja Árnadóttir (40 ára – Innilega til hamingju með afmælið!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Árný Lilja Árnadóttir, 28. júlí 1970 (43 ára); Steven Craig Alker, 28. júlí 1971 (42 ára); Amy Yang, 28. júlí 1989 (24 ára) ….. og …… Marta Guðjónsdóttir Hinrik Hilmarsson (55 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 28. 2013 | 17:30
Eimskipsmótaröðin (4): Birgir Leifur Hafþórsson og Sunna Víðisdóttir Íslandsmeistarar í höggleik 2013!!!

Það eru Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, og Sunna Víðisdóttir, GR, sem eru Íslandsmeistarar í höggleik 2013!!! Birgir Leifur lék á samtals 10 undir pari, 274 höggum (71 69 66 68). Birgir Leifur sagði eftir að sigurinn var í höfn að það hefði verið hrikalega sætt og meiriháttar gaman að vinna. Birgir sagði að keppnin hefði verið mjög jöfn og það hefði fallið með honum í þetta sinn. Þetta væri 5. sigurinn á Íslandsmótinu í höggleik og e.t.v. sá stærsti. Birgir Leifur sagðist ekki geta verið sáttari – sagðist ánægður með son sinn, sem var kylfuberi hans í mótinu og myndi eflaust síðar draga fyrir hann. Þess má geta að Birgir Leifur Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 28. 2013 | 17:05
Eimskipsmótaröðin (4): Birgir Leifur leiðir á 17. holu

Í karlaflokki heldur Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, forystu en nú eru leikar komnir á 18. holu – síðustu holuna. Á 16. holu fékk Birgir Leifur slæman skolla og fór í 10 undir par. Haraldur Franklín fékk hræðilegan þrefaldan skolla fór niður í 7 undir parið. En keppnismaðurinn mikli sem Haraldur Franklín er tók það strax aftur á 17. holu með góðum fugli og er nú á samtals 8 undir pari. Birgir Leifur hélt sínu striki fékk par á 17. braut (8. braut Ár-lykkju Korpunnar). Staðan nú þegar aðeins lokaholan er óspiluð er sú að Birgir Leifur hefir 2 högga forystu á Harald Franklín í einvígi þeirra. Hann þarf aðeins par Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

