Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 2. 2013 | 19:30
Golfútbúnaður: Suzann Pettersen þróar nýjan golfskó í samvinnu við Nike

Að golfskór þrengi hvergi að og séu jafnframt þannig að kylfingar hafi jarðsamband þ.e. séu í snertingu við jörðina er mikilvægt og Free útsóla- tækni Nike á að stuðla að þeim hagsbótum. Rétt eins og Tiger hjálpaði við að þróa Free-Inspired golfskóinn frá Nike þá hefir Suzann Pettersen nú gengið til liðs við Nike og hjálpað til við að þróa fyrstu Free-Inspired golfskóna fyrir konur frá Nike. „Við höfðum nána samvinnu við Pettersen til þess að hanna skó sem hentuðu leik hennar, “ var meðal þess sem Lee Walker yfirmaður rannsóknar- og þróunardeildar golfskóa sagði um nýja Nike FI Impact golfskóinn. „FI Impact skórinn hjálpar henni til við að flytja orku Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 2. 2013 | 19:00
Föt Rory á PGA Championship

Nike er búið að gefa út hvað Rory McIlroy muni klæðast á PGA Championship risamótinu í Oak Hill nú í ár. Rory sem á titil að verja mun klæðst þeim fötum sem eru á meðfylgjandi mynd úr haustfatalínu Nike. Á fimmtudeginum er hann í bláu og hvítu. Á föstudeginum appelsínugulum bol og í hvítum buxum. Um helgina er hann í svörtum og græn- röndóttum bol í hvítum buxum þ.e. á laugardeginum og á sunnudeginum í léttum bol í gamma bláum lit og gráum buxum. Í öllum tivikum verður Rory með hvítt belti og í Nike Lunar Control golfskóm.
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 2. 2013 | 18:00
NY Choi leiðir þegar Opna breska er hálfnað

Það er Na Yeon (stytt í NY) Choi frá Suður-Kóreu, sem leiðir þegar Opna breska kvenrisamótið er hálfnað. NY Choi er búin að spila frábært , stöðugt golf á St. Andrews; er efst eftir 2. hringi Opna breska á samtals 10 undir pari, 134 höggum (67 67). Landa hennar sem er að reyna við Grand Slam, Inbee Park, átti annan slæman hring í dag upp á 1 yfir pari 73 högg og er samtals búin að spila á 2 undir pari, 142 höggum (69 73). Hún þarf virkilega að töfra fram ótrúlega 2 hringi um helgina til þess að eiga séns á 4 risamóta Grand Slam-inu, en sem stendur er Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 2. 2013 | 14:00
Simpson leiðir á Bridgestone eftir 1. dag

Það er Webb Simpson sem er eftstur á Bridgestone Invitational eftir 1. dag. Hann lék 1. hring á 6 undir pari 64 höggum. Í 2. sæti aðeins 1 höggi á eftir er Svíinn Henrik Stenson á 5 undir pari 65 höggum. Jafnir í 3. sæti eru síðan Tiger, Keegan Bradley, Chris Wood og Ryan Moore, allir á 4 undir pari, 66 höggum. Til þess að sjá stöðuna á WGC-Bridgestone Invitational SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 1. dags á SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 2. 2013 | 12:00
Afmæliskylfingur dagsins: Þórunn Andrésdóttir – 2. ágúst 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Þórunn Andrésdóttir. Þórunn er fædd 2. ágúst 1970 og er því 43 ára í dag. Hún er í Golfklúbbi Akureyrar. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins, til þess að óska henni til hamingju með daginn hér að neðan: Þórunn Andrésdóttir (43 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Bill Murchison Jr, 2. ágúst 1958 (55 ára); Caroline Pierce, 2. ágúst 1963 (50 ára stórafmæli!!!), Jeff Bloom, 2. ágúst 1963 (50 ára stórafmæli!!!); Jonathan Andrew Kaye, 2. ágúst 1970 (43 ára) …. og …… Eyþór Árnason (59 ára) Jóga Stúdíó (32 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 1. 2013 | 20:30
GA: Elvar Örn fór holu í höggi!

Elvar Örn Hermannsson, GA, fór holu í höggi s.l. þriðjudag 30. júlí 2013, á 6. holu á Jaðri. Sló hann höggið með 8 járni og að sögn föður hans, sem var með honum ,var það einkar glæsilegt. Þetta er í annað sinn sem hann nær þeim áfangi, en í hitt skiptið var það á 11. holu á Jaðri. Glæsilegt högg hjá honum! Golf 1 óskar Elvari Erni innilega til hamingju með draumahöggið!!!
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 1. 2013 | 20:00
Pressel og Lennarth leiða eftir 1.dag Opna breska

Það eru bandaríski kylfingurinn Morgan Pressel og sænski kylfingurinn Camilla Lennarth sem leiða eftir 1. dag Opna breska kvenrisamótsins, sem hófst í dag. Þær báðar léku Old Course á St. Andrews í Skotlandi á 6 undir pari 66 höggum, hvorar. Camilla Lennarth er e.t.v. ekki eins þekkt nafn og Pressel, en hún er nýliði á Evrópumótaröðinni og má sjá kynningu Golf1 á henni með því að SMELLA HÉR: Þriðja sætinu deila 7 kylfingar, allar á 5 undir pari, 67 höggum en þeirra á meðal eru NY Choi og fyrrum nr. 1 á Rolex-heimslistanum, Stacy Lewis. Tíunda sætinu deila aðrir 7 kylfingar allar á 4 undir pari, en þeirra á meðal er Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 1. 2013 | 19:00
Afmæliskylfingur dagsins: Guðmundur Liljar Pálsson – 1. ágúst 2013
Afmæliskylfingur dagsins er Guðmundur Liljar Pálsson. Guðmundur Liljar er fæddur 1. ágúst 1973 og því 40 ára stórafmæli í dag. Guðmundur Liljar er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Kona Guðmundar Liljar er Rut Arnardóttir. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Guðmundur Liljar Pálsson (40 ára stórafmæli – Innilega til hamingju með daginn!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Guðlaugur Gíslason, f. 1. ágúst 1908 – d. 6. mars 1992, forystumaður GV um árabil, faðir Jakobínu Guðlaugsdóttir og Jón Hauks Guðlaugssonar, kylfinga með meiru; Lloyd Mangrum, f. 1. ágúst 1914 – d. 17. nóvember 1973 …… og ……. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 1. 2013 | 14:00
Kristján Þór frestar þátttöku í úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina vegna brjóskloss
Kristján Þór Einarsson, GKJ og Íslandsmeistari í höggleik 2008, mun verða að nokkru frá keppni og tekur ekki þátt í úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina nú haust eins og hann hafði ætlað sér vegna brjóskloss í baki, sem hefir verið að há honum. Þrátt fyrir brjósklosið mun hann þó taka þátt í Einvíginu á Nesinu n.k. mánudag, 5. ágúst 2013. Kristján svaraði nokkrum spurningum Golf1 um meiðsli sín: Hvenær kenndir þú þér fyrst meins í baki og hvenær varstu greindur með brjósklos? Ég byrjaði á því að festast í bakinu um miðjan apríl svo að ég var rúmliggjandi í nokkra daga og svo gekk það hjá og lagaðist, en eftir Íslandsmótið í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 1. 2013 | 13:00
PGA: WGC-Bridgestone hafið

Bridgestone Invitational heimsmótið í golfi hófst nú rétt í þessu á Firestone golfvellinum á Akron í Ohio, en mótið er mót vikunnar á PGA. Meðal þeirra sem þátt taka í mótinu 73 sem þátt taka í Bridgestone mótinu að þessu sinni eru 49 af 50 bestu kylfingum heims. Einn þeirrra er Tiger Woods, sem reyna mun við sigur í 8. sinn á mótinu. Aðspurður um sigra sína á Firestone golfvellinum á blaðamannafundi í gær sagði Tiger m.a. að sér liði vel á Firestone golfvellinum; en aðferðin að sigri hefði verið mismunandi milli ára. Stundum hefði hann ráðið lögum og lofum; önnur skipti hefði hann þurft að vera frumlegur. Til þess Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

