Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 5. 2013 | 15:00

Tiger sigraði á Bridgestone Invitational

Tiger Woods stóð uppi sem sigurvegari á Bridgestone Invitaional í gærkvöldi og fátt sem kemur á óvart þar. Hann lék lokahringinn af öryggi –  á pari – fékk 16 pör 1 fugl og 1 skolla. Samtals lék Tiger á 15 undir pari, 265 höggum (66 61 68 70) og átti 7 högg á þá sem næstir komu. Í 2. sæti á samtals 8 undir pari, 272 höggum urðu þeir Keegan Bradley og Henrik Stenson. Í 4.-6. sæti á samtals 6 undir pari, hver, urðu síðan þeir Miguel Ángel Jiménez, Zach Johnson og Jason Dufner. Þegar sigurinn var í höfn tók Tiger son sinn Charlie í fangið sem var að fylgjast Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 4. 2013 | 20:00

GHD: Böðvar fór holu í höggi á Dalvíkurskjálftanum!

Það voru 30 kjúklingar sem flugu til nýrra eigenda á Dalvíkurskjálftanum  í gær, 3. ágúst 2013 en fyrir hvern fugl sem fenginn er í mótinu er í verðlaun kjúklingur!!! Skemmtileg hefð það á Dalvíkurskjálftanum á Dalvík!!! Flesta fugla fengu Þorvaldur Jónsson, GÓ; Óskar Jóel Jónsson, GA og Högni Róbert Þórðarson, GÞ eða 3 fugla/kjúklinga hver. Sumir fuglar voru þó STÆRRI í gær en aðrir þ.e. örninn sem Böðvar Þórisson, GBO fékk á par-3 1. holu Arnarholtsvallar í gær eða m.ö.o. hann fór holu í höggi!!!  Áður fyrr voru kalkúnar í verðlaun fyrir erni hvað þá holur í höggi og ætti Böðvar svo sannarlega skilið einn slíkan!!! Golf 1 óskar Böðvari Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 4. 2013 | 19:30

Lewis sigraði á Opna breska

Stacy Lewis bar sigur úr býtum á 4. risamóti kvennagolfsins nú í kvöld á Old Course á St. Andrews í Skotlandi. Næstar á eftir henni í 2. sæti urðu Na Yeon Choi og Park þ.e. Hee Young, ekki Inbee Park, sem var að reyna að sigra á 4. risamótinu í röð á sama almanaksárinu, fyrst bæði kven- og karlkylfinga í lengri tíma til þess að eiga tækifæri á því. Inbee landaði hins vegar 42. sætinu. Sigurvegarinn Stacy Lewis lék á samtals 8 undir pari, 280 höggum (67 72 69 72) – ekkert sérstakt skor og höfum við oft séð það mun betra hjá Inbee í ár, en af 4 hringjum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 4. 2013 | 19:10

GÖ: Úrslit úr Stóra GÖ

Í gær fór fram Stóra GÖ mótið og voru 188 þátttakendur skráðir í mótið.  Þetta var innfélagsmót þar sem klúbbfélagar gátu jafnframt boðið gestum.  Leikinn var betri bolti – fjölmörg verðlaun veitt þ.á.m. fyrir að vera næstur holu á par þristunum. Úrslitin í betri boltanum og fyrir að vera næstur holu eru eftirfarandi: Nándarverðlaun: 2. braut:   Ísak Jasonarson 1,20m 5. braut:   Ingibjörg Kristjánsdóttir 3,80m 13. braut: Sigrún Bragadóttir 0,36m 15. braut:  Rafn Thorarensen 4,27m 18. Þorvarður G. Hjaltason 2,97m Næstur holu á 9. braut í 2 höggi:  Trausti Hallsteinsson 0,71 Næstur Brúnáslínunni á 7. braut:  Ragnar Guðmundsson var á línunni. Úrslit í betri bolta: Leikmaður Leikmaður Punktar 18 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 4. 2013 | 19:00

WGC Bridgestone Inv. í beinni

Þá er komið að lokahring WGC Bridgestone Invitational, en leikið er á Firestone golfvellinum í Akron, Ohio. Lokaráshópurinn með Tiger innanborðs er farinn út og þegar búinn að spila 3 holur. Sjá má Bridgestone í beinni með því að  SMELLA HÉR: Til þess að fylgjast með skori keppenda á skortöflu SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 4. 2013 | 17:00

GKB: Gunnar Marel sigursæll – Poolarnir sigruðu í Styrktarmóti GKB

Í gær 3. ágúst 2013 fór fram Styrktarmót GKB. Mótið var hið glæsilegasta í alla staði og það fjölmennasta á landinu í gær. Þáttakendur voru 190 (95 lið) ; 40 kvenkylfingar og 150 karlkylfingar. Spilað var skv. Texas Scramble leikformi.  Einnig voru veitt nándarverðlaun. Sá sem kom sá og sigraði í mótinu var Gunnar Marel Einarsson, klúbbmeistari GHG 2013, en hann og lið hans Poolararnir (þ.e.a.s. hann ásamt Hilmi Guðlaugssyni)  lönduðu efsta sætinu í Texas-num á 62 höggum nettó, auk þess sem Gunnar Marel hlaut nándarverðlaun á 3. braut. Í 2. – 5. sæti varð liðið Eagle Creak þ.e. þeir Bjarki Pétursson, GB og Snorri Hjaltason, GB; Anna Sólveig Snorradóttir, GK og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 4. 2013 | 17:00

Grand Slam möguleikar Inbee að engu orðnir

Inbee Park sagði í morgun að tilraun hennar til þess að verða fyrsti kylfingur sögunnar til að sigra í 4 risamótum í röð væru „næstum ómögulegar“ nú. Og hún hafði rétt fyrir sér. Jafnvel þótt veðrið hafi leikið við kylfinga á St. Andrews í morgun, virtist Inbee ekki ná að sökkva neinum púttum. Hún lauk við 3. hring á 2 yfir pari, 74 höggum , heilum 9 höggum á eftir forystukonunni efti 54 holur, Morgan Pressel. Ekki tók við betra á 4. hring hjá Inbee, líklegast vonbrigðin farin að segja til sín, fyrir utan að hún virtist verulega ströggla á Old Course… hún lauk keppni á 4. hring á 5 yfir Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 4. 2013 | 16:30

GKS: Dagný og Salmann sigruðu í Sigló Open

Sigló Open fór fram í gær, laugardaginn 3. ágúst 2013 og ekki er hægt að segja að veðrið hafi leikið við kylfinga í þetta skiptið, en bæði var úrkoma og vindur. 30 keppendur tóku þátt að þessu sinni en alls voru 40 skráðir til leiks í gærkveldi og urðu því þó nokkur afföll. Veðrið hefir eflaust spilað þar inn í. Keppt var í karla- og kvennaflokki og urðu úrslit eftirfarandi: Sigurvegarar í kvennaflokki voru eftirfarandi:  1. sæti Dagný Finnsdóttir GÓ með 35 punkta 2. sæti Hulda Magnúsardóttir GKS með 31 punkt 3. sæti Björg Traustadóttir GÓ með 30 punkta. Sigurvegarar í karlaflokki voru eftirfarandi:  1. sæti Salmann H. Árnason GKJ Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 4. 2013 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Janet Coles – 4. ágúst 2013

Afmæliskylfingur dagsins er  Janet Coles. Janet fæddist 4. ágúst 1954 og er því 59 ára í dag. Hún spilaði hér áður fyrr á LPGA og sigraði tvívegis; á Ladies Michelob, 8. maí 1983 og Natural Light Tara Classic, 30. aprí 1978.  Þann 22. ágúst 2011 var Janet ráðin sem þjálfari hjá Dartmouth College. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Deedee Lasker, (spilaði hér áður fyrr á LPGA) 4. ágúst 1959 (54 ára). Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 4. 2013 | 09:00

Ricoh Women´s British Open í beinni

Loksins er komið að því Opna breska kvenrisamótið hófst s.l. fimmtudag…. og hægt að fylgjast með því í beinni með því að SMELLA HÉR: Fylgist með golfsögunni í beinni því á mótinu mun Inbee Park frá Suður-Kóreu, reyna fyrst kven- og karlkylfinga að sigra á 4. risamótinu sama árið. Það sem Inbee mun reyna að gera í mótinu er að ná Grand Slam, sem er einmitt annað orð yfir að vinna öll risamót á sama árinu – reyndar er búið að bæta einu risamóti við í kvennagolfinu Evian Championship – en keppt er í 1. skipti í ár í mótinu, sem risamóti.  Þannig að það sem hún reynir við er Lesa meira