Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 10. 2013 | 16:00
Eimskipsmótaröðin (5): Signý efst eftir 2. dag
Signý Arnórsdóttir, GK, er efst eftir 2. dag 5. móts Eimskipsmótaraðarinnar í kvennaflokki, lék á 4 yfir pari, 75 höggum. Á hringnum góða fékk Signý 1 fugl, 12 pör og 5 skolla. Í 2. sæti 3 höggum á eftir Signý er Karen Guðnadóttir, klúbbmeistari GS, en hún er samtals búin að spila á 8 yfir pari, 150 höggum (77 73). Í 3. sæti er síðan Sunna Víðisdóttir, sem lék veik í dag en reyndi að harka af sér, en allt kom fyrir ekki skor Íslandsmeistarans okkar var 10 yfir par, 82 högg. Samtals er Sunna búin að spila á 12 yfir pari, (73 81). Það er vonandi að Sunna nái Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 10. 2013 | 14:00
Afmæliskylfingur dagsins: Ingimar Waldorff – 10. ágúst 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Ingimar Waldorff. Ingimar er fæddur 10. ágúst 1974 og er því 39 ára í dag. Ingimar er í Golfklúbbi Grindavíkur og hefir m.a. gegnt starfi gjaldkera klúbbsins. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Ingimar Waldorff (39 ára) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Gabrielle Keiller, f. 10. ágúst 1908 – d. 23. desember 1995; Maria Combs, 10. ágúst 1951 (62 ára); [James] Kenneth Perry, 10. ágúst 1960 (53 ára); Lori Tatum, 10. ágúst 1967 (46 ára); Martin Quinney, 10. ágúst 1971 (42 ára) …. og ….. Galtarviti Keflavik (93 ára) Þóra Kristín Ásgeirsdóttir (47 ára) Ellý Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 10. 2013 | 11:30
Tiger vonsvikinn eftir slakt gengi á 2. hring PGA Championship

Tiger Woods var vonsvikinn og allt að því pirraður eftir 2. hring PGA Championship. Hann var að pútta illa og missti flugið og hinir eru komnir með gott forskot á hann. Tiger aðeins í 38. sæti þegar mótið er hálfnað. Honum var hampað sem sigurstranglegustum sérstaklega eftir glæsiframmistöðu hans á Firestone um síðustu helgi. Nei, hann varð virkilega að hafa fyrir parinu sínu í gær! „Augljóslega verð ég að vera á góðu skori um helgina,“ sagði Tiger við blaðamenn eftir vonbrigðahringinn. „Þessi golfvöllur er býsna mjúkur. Það er hægt að skora. Það verður bara að halda boltanum í leik og vera nær holu svo ég geti verið aggressívur í púttunum.“ Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 10. 2013 | 11:00
LET: Cabanillas leiðir í Tékklandi

Dagana 9.-11. ágúst fer fram Honma Pilsen Golf Masters, í Golf Park Plzn, Dysina, Prag, í Tékklandi og er mótið jafnframt mót vikunnar á LET (Evrópumótaröð kvenna). Forystukona fyrsta dags er hin spænska Laura Cabanillas. Hún spilaði völlinn í Plzn á glæsilegum 9 undir pari, 62 höggum á hring þar sem hún fékk örn og 7 fugla og 10 pör, missti sem sagt hvergi högg! Öðru sætinu eftir 1. dag deildu þær Alison Whitaker frá Suður-Afríku og Jade Shaeffer frá Frakklandi tveimur höggum á eftir eða á 7 undir pari, 64 höggum. Nokkra athygli vekur að meðal keppenda er fyrrum nr. 1 á Rolex-heimslista kvenna Ai Miyazato, en hún lék Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 9. 2013 | 23:03
Jason Dufner leiðir þegar PGA Championship er hálfnað

Jason Dufner átti glæsihring á Austurvelli (ens. East Course) í Oak Hill CC í Rochester, NY í dag, en þar fer 4. og síðasta risamót ársins hjá karlkylfingunum fram. Dufner setti nýtt vallarmet, var á 7 undir pari, 63 höggum, en það fyrra var 64 högg. Hann jafnaði jafnframt risamótametskorið, sem er 63 högg á hring. Aðeins 24 kylfingum (að Dufner meðtöldum) hefir nú tekist að vera á 63 höggum í risamóti í 26 skipti, en Vijay Singh og Greg Norman eru þeir einu, sem hefir tekist það tvisvar. (Töfraskorinu 63 hefir aðeins 2 sinnum verið náð á The Masters (sjaldnast); 4 sinnum á US Open; 8 sinnum á Opna Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 9. 2013 | 20:45
Íslandsbankamótaröðin (6): Kristófer Orri á besta skori Íslandsmótsins á 1. degi!!!

Kristófer Orri Þórðarson, GKG, lék Hólmsvöll í Leiru á glæsilegum 3 undir pari, 69 höggum og er það því efsti maður í drengjaflokki sem er á besta skori 1. dags á Íslandsmótinu í höggleik unglinga. Kristófer Orri fékk hvorki fleiri né færri en 5 fugla, 11 pör og 2 skolla og glæsiskor upp á 69 högg!!! Í 2. sæti á litlu síðra skori er klúbbmeistari Golfklúbbsins Keilis 2013, Birgir Björn Magnússon, en hann lék Leiruna á 1 undir pari, 71 höggi! Á hring sínum fékk Birgir Björn 4 fugla, 11 pör og 3 skolla. Í 3. sæti í drengjaflokki eru síðan 3 sem allir léku á parinu í dag: Gísli Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 9. 2013 | 20:30
Íslandsbankamótaröðin (6): Kristján Benedikt og Arnór Snær efstir í strákaflokki
Það eru Kristján Benedikt Sveinsson, GHD, og Íslandsmeistarinn í holukeppni í strákaflokki 2013, Arnór Snær Guðmundsson, GHD sem eru efstir og jafnir í strákaflokki á Íslandsmótinu í höggleik unglinga, sem hófst í dag á Hólmsvelli í Leiru. Kristján Benedikt og Arnór Snær léku báðir Leiruna á 2 yfir pari, 74 höggum! Kristján Benedikt fékk m.a. glæsiörn á par-4 10. holu Hólmsvallar, en auk þess 2 fugla 9 pör og 6 skolla. Arnór Snær 3 fugla og 3 skolla, en síðan slæman skramba á par-3 13. brautina, þessa með vatnið fyrir framan! Í 3. sæti er Kristófer Karl Karlsson, GKJ, á 3 yfir pari, 75 höggum og í 4. sæti er Sigurður Arnar Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 9. 2013 | 18:45
EM: Guðmundur Ágúst komst einn Íslendinganna í gegnum niðurskurð!

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, var einn íslensku keppendanna á EM einstaklinga á El Prat í Barcelona, sem komst í gegnum niðurskurð og fær að leika lokahringinn í mótinu á morgun. Stórglæsilegt hjá Guðmundi Ágúst!!! Guðmundur Ágúst lék á samtals 9 yfir pari, 225 höggum (77 76 72) og má segja að glæsilokahringur hans á sléttu pari, 72 höggum hafi ráðið úrslitum um að hann komst í gegnum niðurskurð. Guðmundur Ágúst deilir sem stendur 48. sætinu, en 61 efstu komust í gegnum niðurskurð. Niðurskurður var miðaður við 10 yfir pari. Minnstu munaði að Haraldur Franklín Magnús, GR, kæmist t í gegn en hann lék á 12 yfir pari, 228 höggum (75 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 9. 2013 | 17:30
Íslandsbankamótaröðin (6): Ólöf María efst í stelpuflokki eftir 1. dag

Það er Íslandsmeistarinn í holukeppni í stelpuflokki og klúbbmeistari GHD 2013, Ólöf María Einarsdóttir úr Golfklúbbnum Hamri á Dalvík, sem er efst eftir í stelpuflokki á Íslandsmótinu í höggleik, sem hófst í dag á Hólmsvelli í Leiru. Ólöf María lék á 15 yfir pari, 87 höggum, fékk 7 pör, 7 skolla og 4 skramba. Vel gert hjá Ólöfu Maríu í „Leirulogninu“ sem var í dag! Í 2. sæti er „heimakonan“ Kinga Korpak, GK á 20 yfir pari, 92 höggum og í 3. sæti er Gerður Hrönn Ragnarsdóttir, GR, á 22 yfir pari, 94 höggum. Sjá má stöðuna í stelpuflokki á Íslandsmótinu í höggleik unglinga hér að neðan: 1 Ólöf María Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 9. 2013 | 17:15
Íslandsbankamótaröðin (6): Karen Ósk leiðir eftir 1. dag í telpnaflokki
Karen Ósk Kristjánsdóttir, GK, leiðir í telpnaflokki eftir 1. dag Íslandsmótsins í höggleik unglinga, sem fram fer á Hólmsvelli í Leiru. Karen Ósk lék á 10 yfir pari, 82 höggum; á hring þar sem hún fékk 2 fugla, 7 pör, 6 skolla og 3 skramba. Í 2. sæti er Ragnhildur Kristinsdóttir, GR,á 11 yfir pari, 83 höggum og í 3. sætinu er enn einn keppandinn úr Golfklúbbi Reykjavíkur, Saga Traustadóttir, GR, sem á titil að verja en hún lék á 13 yfir pari. Fjórða sætinu deila síðan Thelma Sveinsdóttir, GK og Birta Dís Jónsdóttir, GHD, báðar á 15 yfir pari, 87 höggum. Sjá má stöðuna eftir 1. dag í telpnaflokki Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

