Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 13. 2013 | 18:45

GHG: Ragnhildur og Jón Andri sigruðu í Opna Kjörísmótinu – Davíð fór holu í höggi!

Sunnudaginn 11. ágúst s.l. fór fram Opna Kjörís mótið á Gufudalsvelli í Hveragerði. Þetta var 11. árið sem Kjörís stóð fyrir mótinu en það hefir verið mjög vel sótt undanfarin ár. Mótið var með Texas scramble fyrirkomulagi. Hámarksforgjöf var 24 fyrir karla og 28 fyrir konur en keppendur fengu samanlagða vallarforgjöf deilt með fimm. Verðlaunin voru gjafabréf sem eru eftirfarandi (tvö af hverju, að sjálfsögðu) : 1. sæti: Vöruúttekt í Hole in one fyrir kr. 25.000.- á mann 2. sæti: Vöruúttekt í Hole in one fyrir kr. 20.000.- á mann 3. sæti: Vöruúttekt í Hole in one fyrir kr. 15.000.- á mann 4. sæti: Vöruúttekt í Hole in one fyrir kr. 10.000.- Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 13. 2013 | 15:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ben Hogan ———- 13. ágúst 2013

Afmæliskylfingur dagsins er einn besti kylfingur allra tíma, Ben Hogan.  Ben var fæddur 13. ágúst 1912 og hefði átt 101 árs afmæli í dag. Ben Hogan dó 25. júlí 1997, 84 ára eða á 85. aldursári. Ben Hogan gerðist atvinnumaður 1930 og hætti keppni 1971 eftir 41 árs farsælan feril. Hann var  einkum þekktur fyrir fallega golfsveiflu sína. Ben Hogan sigraði 68 sinnum á atvinnumannsferli sínum þar af 64 sinnum á PGA Tour og situr í 4. sæti yfir þá sem sigrað hafa oftast á þeirri mótaröð.  Hogan vann 9 risamótstitla á ferli sínum. Hann fékk inngöngu í frægðarhöll kylfinga 1974. Hann vann auk þess til allra helstu verðlauna og viðurkenninga Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 13. 2013 | 13:00

GA: Linda Hrönn og Valdimar Bautameistarar

Sunnudaginn 11. ágúst fór fram hið árlega Bautamót á Akureyri. Ræst var út af 1. og 10. teig frá 8:00 til 10:20, en alls voru 56 kylfingar skráðir til leiks. Mótið gekk hratt og vel fyrir sig, en frekar napurt var í morgun en það hlýnaði með deginum. Að móti loknu bauð Bautinn svo þátttakendum upp á flott hlaðborð með allskonar tertum og réttum. Úrslit mótsins voru eftirfarandi: 1. sæti með forgjöf – Valdimar Freysson – 39 punktar – Bautameistari 2013 2. sæti með forgjöf – Auðunn Aðalsteinn – 37 punktar 3. sæti með forgjöf – Allan Hwee Peng – 36 punktar   1. sæti án forgjafar – Fylkir Þór Guðmundsson – Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 13. 2013 | 12:00

Íslandsbankamótaröðin (6): 3:3

Nú um síðastliðna helgi fór fram 6. stigamót Íslandsbankamótaraðarinnar – Íslandsmótið í höggleik hjá unglingunum. Tveir klúbbar tóku saman alla Íslandsmeistaratitlana: Golfklúbburinn Hamar á Dalvík og Golfklúbburinn Keilir í Hafnarfirði! Dalvíkingar tóku alla Íslandsmeistaratitlana í yngri flokkunum þ.e. í flokki 14 ára og yngri bæði hjá stelpum og strákum og ekki nóg með það heldur eru þau Ólöf María Einarsdóttir GHD og Arnór Snær Guðmundsson GHD bæði tvöfaldir Íslandsmeistarar þ.e. líka Íslandsmeistarar í holukeppni. Birta Dís Jónsdóttir, GHD, var síðan þriðji Dalvíkingurinn í mótinu til þess að verða Íslandsmeistari eftir æsispennandi umspil við Ragnhildi Kristinsdóttur í GR. Í eldri flokkunum, flokki 17-18 ára pilta og stúlkna urðu þau Ísak Jasonarson, GK  og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 13. 2013 | 11:00

GKB: Guðmundur fór holu í höggi!

Guðmundur Ásgeirsson var að vonum kátur er hann fór holu í höggi á 12. braut Kiðjabergsvallar 6. ágúst. Guðmundur er  félagi í Golfklúbbi Kiðjabergs og einnig í GR. Þetta er í fyrsta skipti sem hann nær draumahöggi allra kylfinga, en þess má geta að hann hefur stundað golf í 13 ár. Þetta er í þriðja sinn á skömmum tíma sem einhver fer holu í höggi á Kiðjabergsvelli. Í hin skiptin voru það konur; Emilía Sjöfn Kristinsdóttir og Kristjana Sigrún Bjarnadóttir. Golf 1 óskar Guðmundi til hamingju með að vera kominn inn í Einherjaklúbbinn. Það var Jónína Magnúsdóttir (Ninný) sem tók myndina af Guðmundi sem hér fylgir með. Texti: GKB


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 13. 2013 | 09:00

GA: Jason og Brynja sigruðu í Hjóna- og paramóti GA, Lostætis og Islandía Hótels Núpa

Í gær lauk Hjóna- og Parakeppni GA, Lostætis og Islandía Hótels Núpa en þetta var í sjöunda sinn sem mótið var haldið. Alls tóku 172 kylfingar þátt, þ.e. 86 pör. Í mótinu voru leiknir tveir hringir, og var leikið betri bolta fyrri daginn og Greensome seinni daginn. Veðrið var nokkuð gott á meðan mótinu stóð, en það var lítill vindur alla helgina og skýjað. Í gærkvöldi var svo haldið lokahóf og þar bauð Lostæti þátttakendum upp á glæsileg kvöldverð. Glæsileg verðlaun voru í boði. Sigurvegararnir hlutu að launum ferð fyrir 2 til Ameríku með Icelandair, glæsilegar hótelgistingar voru í boði ásamt fjölda annarra verðlauna. Vill Golfklúbburinn þakka öllum þeim sem styrktu Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 13. 2013 | 07:00

Golfútbúnaður: Mizuno JPX EZ

Í síðustu viku sendi Mizuno frá sér upplýsingar um nýju  MP-4 and MP-54 járnin , sem fara á markað síðar á þessu ári. Í dag birtir Mizuno fyrstu myndir af nýjustu gerð JPX kylfa, þ.e. JPX EZ, en í línunni eru m.a. járn, blendingar, brautartré og dræver. Mizuno lýsir nýju kylfunum í JPX EZ línunni, þannig að þær „verðlauni áhættu“ og segja að „líkur viðkomandi kylfings á árangri hafi snarbatnað“ bara við það eitt að velja kylfurnar. Nýja JPX EZ línan leysir af hólmi JPX-825, sem Mizuno setti á markað 2012. Sérfræðingar hrifust mjög af Mizuno JPX-825 Pro járnunum, og bíða spenntir eftir nýju EZ járnunum. Ekkert er gefið upp um hvenær nákvæmlega Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 12. 2013 | 21:57

GKB: Kristjana náði draumahögginu!

Föstudaginn 2.. ágúst fór Kristjana Sigrún Bjarnadóttir, félagi í Golfklúbbi Kiðjabergs, holu í höggi á 3. braut Kiðjabergsvallar. Notaði hún Hybrid kylfu og boltinn flaug lágt og rúllaði síðan beinustu leið í holu. Þar sem ekki er sjánalegt á flöt frá teig þá hafði hún ekki hugmynd um hvar boltinn endaði. Jóhann Friðbjörnsson, formaður GKB, var staddur við 3.flötina og var vitni af því þegar boltinn fór í holu og lét vel í sér heyra með bílflautu,  Kristjönu til mikillar gleði ásamt hennar meðspilurum. Þetta er í fyrsta sinn sem hún nær þessum áfanga og hefur hún nú verið skráð í Einherjaklúbbinn. Þetta er í annað sinn sem kona nær Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 12. 2013 | 21:45

LET: Lindner sigraði í Tékklandi

Ann-Kathrin Lindner frá Þýskalandi vann fyrsta sigur sinn á Evrópumótaröð kvenna á HONMA Pilsen Golf Masters í Plzn í Tékklandi. Lesa má kynningu Golf 1 á Ann-Kathrin Lindner með því að SMELLA HÉR:  Lindner lék á samtals 12 undir pari, 201 höggi (66 67 68) og voru allir hringir hennar undir 70, sem er glæsilegt. Sigurinn var naumur því aðeins 1 höggi á eftir voru franska fegurðardrottningin Alexandra Vilatte og mánadísin ítalska Diana Luna, báðar á 11 undir pari, 202 höggum; Vilatte (70 69 63) og Luna (66 69 67). Lesa má kynningu Golf 1 á Alexöndru Vilatte með því að SMELLA HÉR Til þess að sjá lokastöðuna á HONMA Pilsen Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 12. 2013 | 21:30

Afmæliskylfingur dagsins: Gunnar Sandholt – 12. ágúst 2013

Það er Gunnar Magnús Sandholt, sem er afmæliskylfingur dagsins. Gunnar er fæddur 12. ágúst 1949 og er  því 64 ára í dag. Gunnar er í Golfklúbbi Sauðárkróks (GSS). Sjá má viðtal, sem tekið var fyrir nokkru við afmæliskylfinginn með því að SMELLA HÉR:  Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Larry Ziegler, 12. ágúst 1939 (74 ára)…. og ….. Oddný Sturludóttir (37 ára) Ingunn Steinþórsdóttir (55 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is