Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 15. 2013 | 12:00

Hitlersstytta á minigolfvelli gagnrýnd

Farand-mínígolfvöllur hefir hlotið mikla gagnrýni fyrir að vera með styttur af einræðisherrunum Adolf Hitler og Saddam Hussein. Þegar t.a.m. er slegið í gegnum Hitler lyftir styttan upp hægri handlegg og hrópar „Nein, Nein, Nein!!!“ … sem er nokkuð sem hefir vakið mikla athygli og jafnvel hrifningu hjá hinum yngstu. Michael Samuels, yfirmaður í stjórn Gyðinga í Bretlandi sagði Hitler styttuna „ekki hafa nokkurt listrænt gildi.“ Stytturnar eru hluti af innanhúss-farandminigolfvelli á vegum fyrirtækisins Doug Fishbone and Friends: Adventureland Golf og geta þeir sem eru á leið til Englands barið herlegheitin augum ef áhugi er fyrir hendi en minigolfvöllurinn verður í Derby’s Quad í 16 daga frá og með 31. ágúst 2013. Addressan: Market Place Cathedral Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 15. 2013 | 10:00

GVG: Pétur og Hugrún sigruðu í Kristmundarbikarnum

Laugardaginn s.l. 10. ágúst 2013 fór Kristmundabikarinn fram á Bárarvelli í Grundarfirði hjá Golfklúbbnum Vestarr. Frábært veður lék við keppendur og mjög gott skor í mótinu. 34 keppendur tóku þátt og þáðu glæsilegar veitingar í boði Fjölskyldu Kristmundar að móti loknu. Úrslit urðu þessi. 1 sæti. Pétur V og Hugrún, á 65 höggum nettó 2 sæti, Margeir og Gunnar Björn á 66 höggum 3 sæti, Högni og Davíð á 67 höggum 4 sæti, Magnús og Garðar á 68 höggum 5 sæti, Guðlaugur og Guðrún á 68 höggum. Næst holu 4 braut, Pétur V, 3.09m 8 braut, Svanhildur 2.13m 13 braut, Gunnar Björn, 2,16m 17 braut, Magnús, 4.48m Annað högg á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 15. 2013 | 08:00

Golfútbúnaður: Nýi dræver Tiger

Fyrir rúmum mánuði setti Tiger nýjan rauðhaus-dræver í pokann hjá sér og fyrir 3 vikum vann hann Bridgestone Invitational aðeins 2 vikum eftir að hann fór að nota nýja dræverinn! Tiger skipti yfir í Nike VR_S Covert Tour driver á Opna breska. Hann notaði þann dræver aðeins nokkrum sinnum á Muirfield, en sýndi síðan af hverju hann skipti um dræver í Firestone Country Club. Á Bridgestone vann Tiger 5. titil sinn árið 2013, og 18. titil sinn á heimsmóti af 42 sem hann hefir tekið þátt í.  Hann átti 7 högg á Henrik Stenson sem var í 2. sæti. Tiger hafði á þeim tíma aðeins spilað 8 hringi með nýja drævernum og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 14. 2013 | 21:00

GK: Halldór fór holu í höggi!

Halldór Jónsson , GK; fór holu í höggi á 10. braut (Sandvíkinni) á Hvaleyrarvelli í dag, 14. ágúst 2013, en það gerði hann í síðasta innanfélagsmóti GK í sumar. Sandvíkin er 164 metrar af gulum teigum. Golf 1 óskar Halldóri til haminju með draumahöggið!


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 14. 2013 | 18:00

Hver er kylfingurinn: Jonas Blixt?

Svíinn Jonas Blixt náði 4. sætinu á PGA Championship risamótinu um s.l. helgi.  Hann er ekki eitt af þekktari nöfnunum á PGA Tour en er hægt og rólega að vinna sér nafn með góðri frammistöðu eins og á PGA Championship s.l. helgi. En hver er kylfingurinn Jonas Blixt kunna sumir að spyrja? Jonas Blixt fæddist í Nässjö í Svíþjóð 24. apríl 1984 og er því 29 ára. Hann á sama afmælisdag og ekki ófrægari kylfingar en Lee Westwood og Lydia Ko.  Blixt spilaði í bandaríska háskólagolfinu með FSU þ.e. Florida State University og var hann m.a. second team All-American 2007 og first team All-American árið 2008. Hann var All-ACC sem Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 14. 2013 | 16:00

Afmæliskylfingur dagins: José Eusebio Cóceres – 14. ágúst 2013

Afmæliskylfingur dagsins er José Eusebio Cóceres. Hann er fæddur  14 ágúst 1963 í Chaco í Argentínu og á því 50 ára stórafmæli í dag. Cóceres var einn af 11 systkinum ólst upp í 2 herbergja íbúð.  Hann gerðist ungur kylfusveinn og kenndi sjálfum sér að spila golf, enda varð hann ungur að sjá fyrir sjálfum sér. Árið 1986 gerðist hann atvinnumaður og ávann sér sæti á Evrópumótaröðinni eftir að hafa komist í gegnum Q-school 1990.  Hann átti erfitt til að byrja með árin 1991 og 1992, en var á túrnum ár hvert frá árinu 1993.  Árið 2000 náði hann hápunkti á ferli sínum þegar hann varð í 13. sæti á stigalistanum. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 14. 2013 | 14:00

Vögg Dufner – myndskeið

Bandaríski kylfingurinn JasonDufner hefir, líkt og flestir kylfingar,  sína rútínu (ens. pre-shot rutine) sem hann er búinn að koma sér upp áður en hann slær högg í móti. Rútínan gegnir m.a. því hlutverki að róa taugar kylfinga, sem oftar en ekki eru þanndar í mótum, hvað þá stórmótum. Rútína Dufners virðist felast í því að vagga kylfunni (á ensku nefnt waggles) allt að því 10 sinnum yfir boltanum áður en látið er vaða. Dufner bregður aldrei út af rútínu sinni. Nú er einhver snillingurinn búinn að klippa saman myndskeið af Dufner þar sem hann sést vagga kylfu sinni yfir boltanum áður en hann tekur högg í ýmsum mótum en sjá Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 14. 2013 | 12:45

Westwood flippar út á Twitter eftir hrun á lokahring PGA Championship … en baðst síðan afsökunar

Lee Westwood var á 6 yfir pari, 76 höggum á lokahring PGA Championship risamótsins s.l. helgi og lauk keppni í 33. sæti. Þetta er í 2. skiptið í röð sem hann brotnar niður á lokahring í risamóti. Hann var s.s. allir muna á 75 höggum í Opna breska og kastaði frá sér 2 högga forystu sem hann var í fyrir lokahringinn. Á mánudaginn s.l. – daginn eftir að Jason Dufner fagnaði fyrsta sigri sínum á PGA Championship fór Westy á kostum á Twitter eða eigum við að segja að hann  hafi gerst þar frægur að endemum.  Hann skammaðist út í allt og alla – einkum þá sem gagnrýndu hann í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 14. 2013 | 11:00

Schwartzel sér eftir að brjóta kylfu

Charl Schwartzel sér eftir að brjóta kylfu eftir að hann sló slæmt högg á Opna breska risamótinu í síðasta mánuði, en hann sagði í nýlegu viðtali nú að það að spila með uppsafnaða reiði í sér hefði neikvæðari áhrif á heildar frammistöðu sína. Jeminn, hvað ef allir hugsuðu svona? „Þetta er mjög erfitt stundum,“ sagði hinn 28 ára stórkylfingur aðspurður um hvernig sér tækist að tækla pirringinn, sem grípur alla kylfinga stundum út á velli vegna misheppnaðra högga. „Sumu fólki tekst að hafa stjórn á sér. Sumir þurfa að tjá reiði sína einhvern veginn. Ég verð að koma þessu út til þess að geta haldið áfram,“ sagði Schwartzel í viðtali Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 14. 2013 | 07:00

Jason Dufner hjá Howard Stern

Þekkt er að Jason Dufner og Keegan Bradley hafa verið að keppa hvor við annan a.m.k. frá því Bradley vann Dufner í PGA Championship mótinu 2011. Þeir tveir eiga m.a. í góðlátlegu „twitter stríði.“ Nú getur Dufner stært sig af því að hafa komið fram í uppáhaldssjónvarpsþætti Bradley: The Howard Stern Show, sem margir Íslendingar kannast við, sem búsettir eru/hafa verið í Bandaríkjunum. Þátturinn hefir alla tíð verið umdeildur vegna þess hversu klúr og berorður Howard Stern er við gesti sína. Eins telur Stern ekki eftir sér að leggja algerar bullspurningar fyrir þá sem koma í þáttinn til hans. Því lék mörgum forvitni á hvernig hinum góðlátlega Dufner myndi vegna Lesa meira