Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 3. 2014 | 22:00

PGA: Blixt efstur e. 1. dag Greenbriar Classic

Mót vikunnar á PGA Tour er Greenbriar Classic. Það fer fram á The Old White TPC golfvellinum í White Sulphur Springs í Vestur-Virginíu. Efstur eftir 1. dag er sænski kylfingurinn Jonas Blixt á glæsilegum 6 undir pari, 64 höggum, eftir hring þar sem hann fékk 8 fugla og 2 skolla. 7 kylfingar fylgja fast á hæla Blixt eru aðeins 1 höggi á eftir þ.á.m. bandaríski kylfingurinn James Hahn. Steve Stricker er síðan í 9 kylfinga hópi sem er T-9 þ.e. 2 höggum á eftir Blixt.  Stefnir í spennandi keppni þar sem aðeins er 2 högga munur á þeim sem er í 1. og 17. sæti!!! Til þess að sjá stöðuna Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 3. 2014 | 21:30

Evróputúrinn: GMac slær í áhorfanda

Norður-írski kylfingurinn Graeme McDowell, sem á titil að verja á Opna franska varð fyrir því óláni í dag að teighögg hans fór í áhorfanda á Le Golf National golfvellinum í París. Maðurinn hné til jarðar í miklum sársauka en golfboltinn hitti hann í hálsinn. „Það er ekkert gott við það þegar maður slær í áhorfanda og maður heyrir orðin „boltinn hefir hæft áhorfanda og hann liggur niðri, það er ekki góð tilfinning.“ „Ég er undrandi á því að ekki fleiri áhorfendur slasist þegar maður er með mikinn áhorfendaskara eins og í dag og allir eru á hreyfingu og boltinn fer mjög hratt í átt að áhorfendur.“ „En Guði sé lof Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 3. 2014 | 21:00

Afmæliskylfingur dagsins: – Halldór Ö.S. Oddsson – 3. júlí 2014

Það er Halldór Örn Sudsawat Oddson, sem er afmæliskylfingur dagsins. Halldór Örn er fæddur 3. júlí 1964 og á því 50 ára stórafmæli í dag! Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með merkisafmælið hér að neðan: Halldór Örn Sudsawat Oddsson (50 ára) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: John C. Palmer, 3. júlí 1918 – 14. september 2006; Guillaume Cambis, 3. júlí 1988 (26 ára) …. og …..   Baldvin Örn Berndsen   Marsibil Saemundardottir Anna Jóna Jósepsdóttir (27 ára) Ragnhildur Sesselja Gottskálksdóttir (58 ára) Postulín Svönu (55 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 3. 2014 | 20:00

Lífið leikur við Stricker

Helstu toppstjörnur golfsins spila fyrir milljónir dollara í hverri viku. Þær eru í sjónvarpinu. Þær eru frægar.  Þær hafa allan útbúnað sem þær gætu óskað sér og keyra um í lúxusbílum, sem þeim eru lánaðir. Golfstjörnurnar eru öfund allra sem stríddu þeim hér áður fyrr fyrir að vera í golfi. En það er ekki allt sem sýnist. Að vera atvinnumaður í golfi er ekki alltaf frábært.  Það verður að ferðast mikið og vera í burtu frá fjölskyldunni. Og ef ekki er komist í gegnum niðurskurð þá eru engin laun. Svo þar á ofan koma sveifluvandræði eða meiðsli eða bara óheppni, sem getur sett allan ferilinn út af laginu. Þannig að Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 3. 2014 | 17:00

Elsti þátttakandi í The Masters deyr 103 ára

Samuel Henry „Errie“ Ball, sem spilaði í 1. Masters risamótinu dó í gær, 2. júlí 2014.  Ball var 103 ára. Dóttir Ball, Leslie Adams Gogarty, segir að faðir hennar hafi dáið í Martin Hospital South í Stuart, Florida. Ball var síðast framkvæmdastjóri Willoughby golfklúbbsins í Stuart. Hann var félagi í PGA of America í 83 ár, sem samtökin segja að sé aðildarmet. Ball var vígður félagi í frægðarhöll kylfinga 2011. Ball fæddist í Wales og er einn í langri röð kylfinga í ætt hans, en hann lærði golf af föður sínum. „Golfleikurinn var stór hluti af lífi hans,“ sagði Gogarty. Ball spilaði á fyrsta Augusta National Invitation Tournament árið 1934, sem síðar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 3. 2014 | 16:00

GR: Úrslit úr Slaufumóti GR-kvenna

Á heimasíðu GR má finna eftirfarandi úrslitafrétt frá kvennanefnd GR úr Slaufumóti þeirra: „Það blés hressilega um okkar konur þegar júlímót GR kvenna fór fram á Korpunni í einu versta veðri sumarsins. Leikið var Sjórinn og Áin og höfðu konur á orði að öll veður hefðu geysað á hringnum. Einhverjar óttuðust það að sökkva í iður jarðar svo blautur var völlurinn, aðrar veiddu bolta sína úr hyldjúpum bönkerum sem voru eins og sundlaugar og svo voru sumar við það að kafna út hita. Segja má að þetta sé íslenskt sumar í hnotskurn en GR konur láta það ekki á sig fá, þær fylltu völlinn og fjölmenntu líka á verðlaunaafhendingu í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 3. 2014 | 15:00

Rickie Fowler í bílslysi

Skv. Golf Channel lenti bandaríski kylfingurinn Rickie Fowler í bílslysi seint á þriðjudagskvöldið nálægt heimili sínu í Jupiter, Flórida. Fowler tvítaði kl. 23:30 þriðjudagskvöldið að hann og vinur hans væru „í lagi“ eftir að hafa lent í bílslysinu. Fowler var ökumaður en vinur hans farþegi. Þeim var ekið í JFK Medical Center þar sem Fowler var meðhöndlaður við minniháttar skurðum og mari á enni. Vinunum var leyft að fara aðfararnótt miðvikudags.  Fowler hlaut enga sekt. Vonandi að virkilega sé í lagi með hann og slysið hafi ekki áhrif á golfið hans, en Fowler er ekki með í Greenbrier Classic móti vikunnar á PGA Tour, sem hefst í kvöld!


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 3. 2014 | 09:00

GVS: Styrktarmót fyrir A-sveitina í sveitakeppni GSÍ 5. júlí n.k.

Opið styrktarmót verður haldið laugardaginn 5 júlí fyrir A-sveit GVS í sveitakeppni GSI Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu 3 sætin í punktakeppni og 3 verðlaun án forgjafar, eins verða veitt verðlaun fyrir 7. og 12. sætið í punktakeppninni. Næstur holu á 3/12 og 8/17 og næstur holu í 2 höggi á 9/18 . Það kostar aðeins 2,500 krónur í mótið. Eins verður boðið upp á púttkeppni sem fólk getur tekið þátt í fyrir eða eftir leik eða bara tekið þátt í púttkeppninni, þitt er valið. Það kostar aðeins 300 krónur og eru veitt verðlaun fyrir besta skor. Vonandi koma sem flestir og styðja við bakið á sveit GVS!!!  


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 3. 2014 | 08:30

Evrópumótaröðin: Opna franska hefst í dag – Fylgist með skori keppenda!

Mót vikunnar á Evrópumótaröðinni er Opna franska eða m.ö.o. Alstom Open de France. Leikið er á Le Golf National í París, Frakklandi. Hér má fylgjast með skori keppenda SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 2. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Gunnar Þór Sigurjónsson – 2. júlí 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Gunnar Þór Sigurjónsson. Gunnar Þór fæddist 2. júlí 1994 og á því 20 ára stórafmæli í dag. Hann er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Gunnar Þór hefir spilað á Eimskipsmótaröðinni  með góðum árangri og hefir m.a. unnið hjá Golfspjall.is. Gunnar Þór. Mynd: Golf 1. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Gunnar Þór Sigurjónsson Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Alfred Harry Padgham, f. 2. júlí 1906 – d. 4. mars 1966 ;  Brandel Chamblee, 2. júlí 1962  (52 ára)  Brianne Jade Arthur, 2. júlí 1988 (26 ára – áströlsk – á LET) Lesa meira