Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 14. 2012 | 10:45

England í forystu eftir 2. dag European Men´s Challenge Trophy á Hvaleyrinni

Öðrum degi á EM karlalandsliða  lauk á Hvaleyravelli í gær, en það voru Portúgalar sem léku best allra liða, voru á 2 undir pari eða á 353 höggum.  Það voru nokkuð erfiðar aðstæður á vellinum í gær eftir að vindurinn fór að blása, en vindur fór í 7-8 m á sek auk þess sem völlurinn er þurr eftir rigningaleysið undanfarnar vikur.

Íslenska liðið lék ekki sitt besta golf í dag en strákarnir okkar komu inn á 10 höggum yfir pari eða á 365 höggum. Það er því á brattann að sækja ef takast á að tryggja eitt af þremur efstu sætunum.  Það eru Englendingar sem leiða mótið þeir eru sem stendur á pari eftir 36 holur.  Lið Portúgals og Hollands eru jöfn í 2. sæti á 4 höggum yfir pari og Ísland í 3. sæti á 16 yfir pari.

Það þarf að bæta upp 12 högga forystu Hollands og Portúgal í dag, ef takast á að ná í eitt af 3 sætunum sem veitir rétt til keppni í Danmörku að ári. Keppnin á Hvaleyrinni er hafin og hvetur Golf 1 alla, sem tök hafa á að koma og hvetja strákana okkar!

Staðan í gær var eftirfarandi: 

Land                   R1    R2    Samtals

England            352  358  par

Portúgal            361  353  +4

Holland            355  359  +4

Ísland                361  365  +16

Belgía                368  366  +24

Slóvakía           380  385  +55

Rússland          388  379  +57

Serbía               410  409  +109

 

Svona lék íslenska liðið á öðrum hring:

Kristján Þór Einarsson GK lék á 72 +1

Ólafur Björn Loftsson NK lék á 72 +1

Guðjón Henning Hilmarsson GKG lék á 73 +3

Guðmundur Ágúst Kristjánsson GR 73 + 2

Andri Þór Björnsson GR 74 + 3

Haraldur Franklín Magnús 79 +8

 

Fylgjast má með gengi íslenska karlalandsliðsins með því að SMELLA HÉR: 

Sjá má myndir frá mótinu með því að SMELLA HÉR: