Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 29. 2014 | 10:00

Birgir Leifur á 1 undir pari e. 2. dag Jyske Bank PGA Championship

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG,  hóf  í gær keppni í Jyske Bank PGA meistaramótinu sem fer fram í  Silkeborg Ry golfklúbbnum, en mótið er hluti af Ecco mótaröðinni.

Mótið fer fram dagana 28.-30. maí 2014 og er þetta stórt mót en þátttakendur eru 169.

Leikið er á tveimur golfvöllum Ry Kildebjerg sem er par-72 golfvöllur og Silkeborg sem er par-71 golfvöllur.

Birgir Leifur lék fyrsta hring á 1 undir pari, 71 höggi (Ry Kildebjerg) og á pari Silkeborg vallarins 71 höggi, í dag og er í 9. sæti sem stendur.

Samtals er Birgir Leifur því búinn að spila hringina tvo á 1 undir pari. Annar hringurinn stendur yfir.

Til þess að fylgjast með Birgi Leif á Jyske Bank PGA meistaramótinu  SMELLIÐ HÉR: