Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og ETSU. Mynd: ETSU
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 21. 2014 | 13:26

Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst í 12. sæti e. 1. dag í Georgíu

Íslandsmeistarinn okkar í holukeppni 2013, Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og golflið ETSU „The Bucs“ hófu í gær leik á Atlantic Sun svæðismótinu.

Leikið er á golfvelli  The Legends at Chateau Elan í Braselton, Georgíu.

Þátttakendur eru 50 frá 10 háskólum.

Eftir 1. dag er Guðmundur Ágúst í 12. sæti í einstaklingskepnninni og á 2. besta skori „The Bucs“, sem eru í 4. sæti í liðakeppninni.

Guðmundur Ágúst lék 1. hring á 2 yfir pari, 74 höggum; fékk 3 fugla, 3 skolla og 1 skramba.

Til þess að fylgjast með gengi Guðmundar Ágústs SMELLIÐ HÉR: