
Afmæliskylfingur dagsins: Tony Lema – 25. febrúar 2012
Það er Tony Lema, sem er afmæliskylfingur dagsins. Anthony David „Tony“ Lema fæddist í Oakland, Kaliforníu 25. febrúar 1934 og dó 24. júlí 1966 í tragísku flugslysi, aðeins 32 ára. Tony hefði orðið 78 ára í dag.
Tony var af portúgölsku bergi brotinn og missti föður sinn aðeins 3 ára gamall. Mamma hans ól hann og 3 systkini hans upp við bág kjör, en Tony lærði golf á Lake Chabot golfvellinum, sem barn og bar fljótt af. Hann gerðist atvinnumaður í golfi 21 árs (árið 1955). Á stuttum en glæsilegum ferli sínum vann hann 19 sinnum þar af 12 sinnum á PGA Tour. Þekktastur er Tony Lema e.t.v. fyrir að sigra Opna breska 1964.
Árið 1966, aðeins 32 ára, þegar hann var á leið af PGA Championship risamótinu, sem fram fór í Firestone Country Club í Akron, Ohio, ásamt eiginkonu sinni Betty, á golfsýningu á Little Buick Open í Lincolnshire, Illinois, suður af Chicago þá varð flugvélin olíulaus og hrapaði á 7. flöt Lansing Country Club í Lansing, Illinois, sem var rétt hjá áætlunarstað Lema. Meðan vélin hrapaði tókst flugmanninum að stýra flugvélinni til vinstri og bjargaði hann þar með lífi hóps af fólki sem stóð við klúbbhúsið. Auk Lema-hjónanna dóu tveir aðrir í flugslysinu: Dr. George Bard og Doris Mullen. Bard og eiginmaður Mullen, Wylie, áttu slysaflugvélina.
Tony Lema og eiginkona hans voru jörðuð í Holy Sepulchre kirkjugarðinum í Hayward, Kaliforníu.
Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru: Juan Quiros, 25. febrúar 1956 (56 ára)… og …
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- mars. 26. 2023 | 23:24 PGA: Sam Burns sigraði í WGC-Dell holukeppninni
- mars. 21. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Stewart Cink ——– 21. mars 2023
- mars. 21. 2023 | 15:00 Next Golf Tour: Sigurður Arnar sigraði á Adare Manor!!!
- mars. 20. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Arjun Atwal ——– 20. mars 2023
- mars. 20. 2023 | 08:45 Champions: Ernie Els sigraði á Hoag Classic
- mars. 20. 2023 | 08:00 LIV: Danny Lee sigraði í LIV Golf – Tucson
- mars. 19. 2023 | 22:30 PGA: Taylor Moore sigraði á Valspar
- mars. 19. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Kristín Bachmann – 19. mars 2023
- mars. 19. 2023 | 14:00 PGA: Adam Schenk leiðir f. lokahring Valspar m/Fleetwood og Spieth á hælunum
- mars. 18. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (11/2023)
- mars. 18. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bragi Brynjarsson og Marousa Polias – 18. mars 2023
- mars. 18. 2023 | 15:00 LET: Pauline Roussin-Bouchard sigraði í einstaklingskeppni Aramco Team Series – Singapore
- mars. 17. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Tumi Hrafn Kúld – 17. mars 2023
- mars. 16. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Vincent Tshabalala og Guðný Ævarsdóttir – 16. mars 2023
- mars. 15. 2023 | 18:00 Evróputúrinn: Jorge Campillo sigraði á Magical Kenya Open