
Afmæliskylfingur dagsins: Þóra Jónsdóttir og Belinda Kerr – 18. janúar 2014
Afmæliskylfingar dagsins eru tveir: Þóra Jónsdóttir og ástralski kylfingurinn Belinda Kerr. Þóra er fædd 18. janúar 1964 og á því 50 ára stórafmæli í dag. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska henni til hamingju með afmælið
Belinda Kerr fæddist í dag, 18. janúar fyrir 30 árum (þ.e. 1984) í Paddington, í Sydney, Ástralíu.
Belinda hóf að spila golf 13 ára gömul vegna þess að bróðir hennar Jared dró hana út á völl, en hún hefir einnig keppt f.h. Queensland í Ástralíu í blaki, frjálsum og dansi.
Það var ekki fyrr en hún kláraði háskólann að hún ákvað að snúa sér algerlega að golfinu.
Belinda gerðist atvinnumaður í golfi árið 2005 og hefir spilað á áströlsku ALPG mótaröðinni, sem og utan Ástralíu og þá einkum í Bandaríkjunum.
Belinda telur árið 2004 besta og stöðugasta ár sitt. Hún sigraði í Titanium Ladies Classic, og var í 2. sæti í the Queensland, South Australian og Australian áhugamannamótunum og eins í 2. sæti í the Victorian Amateur. Hún varð einnig í 1. sæti af áhugamönnum í ALPG Ladies Players Championship, árið 2005, stuttu áður en hún gerðist atvinnumaður, eins og áður segir í mars 2005.
Fyrsti sigur Belindu, sem atvinnumanns vannst strax í 4. móti hennar the Mollymook Pro-Am, Ástralíu árið 2005.
Árið 2006 spilaði Belinda á Futures Tour í Bandaríkjunum og var besti árangur hennar þar T-47 það ár. Belinda hefir m.a. farið holu í höggi og á 7 vallarmet á völlum í Ástralíu.
Belinda er ein af þeim áströlsku kvenkylfingum tóku þátt í gerð „Top Shots: Women of Professional Golf 2007 Calendar“, sem olli miklu fjaðrafoki í Ástralíu Myndin hér að ofan er einmitt úr því dagatali. Hún þykir með kynþokkafyllri kvenkyns atvinnukylfingum.
Þessi grein greinarhöfundar birtist áður á iGolf 18. janúar 2011, en birtist hér uppfærð og að nokkru breytt.
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- júní. 25. 2022 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (26/2022)
- júní. 25. 2022 | 17:00 LET: Guðrún Brá og Ólafía Þórunn úr leik í Tékklandi
- júní. 25. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hrafnkell Óskarsson – 25. júní 2022
- júní. 25. 2022 | 07:00 Íslandsmót golfklúbba 2022: GA Íslands- meistari í fl. 16 ára og yngri drengja
- júní. 24. 2022 | 22:00 LET: Guðrún Brá og Ólafía Þórunn báðar með á Czech Ladies Open
- júní. 24. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Kaname Yokoo —-– 24. júní 2022
- júní. 23. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Flory van Donck – 23. júní 2022
- júní. 23. 2022 | 00:10 LIV: Tilkynnt um leikmannahóp á 2. móti sádí-arabísku ofurgolfmótaraðarinnar – Brooks Koepka og Abraham Ancer meðal keppenda!
- júní. 22. 2022 | 22:00 Ragnhildur og Perla Sól úr leik á Opna breska áhugamannamótinu
- júní. 22. 2022 | 20:00 EM einstaklinga: Hlynur T-46 e. 1. dag
- júní. 22. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Kristinn J. Gíslason – 22. júní 2022
- júní. 22. 2022 | 10:00 Ragnhildur og Perla Sól keppa í 64 manna úrslitum á Opna breska áhugamannamótinu
- júní. 22. 2022 | 09:00 Brooks Koepka dregur sig úr Travelers
- júní. 21. 2022 | 20:00 GSÍ: Landslið Íslands valin fyrir EM í liðakeppni
- júní. 21. 2022 | 18:00 GSK: Drífið ykkur norður á Opna Fiskmarkaðsmótið!!!