Andri Már Óskarsson, GHR. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 26. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Andri Már Óskarsson – 26. maí 2014

Það er Andri Már Óskarsson, GHR, sem er afmæliskylfingur dagsins. Andri Már fæddist 26. maí 1991 og er því 23 ára í dag. Andri Már varð í 2. sæti á 1. maí móti GHR og Grillbúðarinnar 2014 og var með í Leirulogninu á 1. móti Eimskipsmótaraðarinnar, Nettó-mótinu,  á Hólmsvelli í gær; varð reyndar í 10. sæti af 72 keppendum með skor upp á 11 yfir pari, 227 högg (80 72 75).   Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér:

Andri Már Óskarsson (23 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Jamie Spence, 26. maí 1963 (51 árs); Herborg Arnarsdóttir, GR,  26. maí 1975 (39 ára)

….. og  ……

 

Gunnar Hansson (43 ára)

Ágúst Þór Árnason (60 ára merkisafmæli – Innilega til hamingju!!!)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is