
Afmæliskylfingur dagsins: Adam Scott ———–16. júlí 2014
Afmæliskylfingur dagsins er einn vinsælasti kylfingur a.m.k. meðal kvenþjóðarinnar – maður sem hvað eftir annað hefir verið valinn kynþokkafyllsti kylfingur allra tíma… og sem er þar að auki líka góður kylfingur: Masters risamótsmeistari ársins 2013… ástralski kylfingurinn Adam Derek Scott.
Adam fæddist Adelaide í Ástralíu, 16. júlí 1980 og er því 34 ára í dag. Hann býr í Crans-Montana í Sviss. Adam gerðist atvinnumaður í golfi árið 2000 og hefir á ferli sínum sigrað 21 sinnum, þ.á.m. 9 sinnum á evrópsku mótaröðinni og 9 sinnum á PGA. Honum tókst loks í ár að rjúfa álögin sem hvílt hafa á áströlskum kylfingum á Masters risamótinu 2013 og VANN!!! Adam er eflaust líka einn þeirra sem lítur löngunaraugum á Claret Jug, en Opna breska, risamót allra risamóta hefst n.k. fimmtudag. Besti árangur hans á Opna breska er 2. sætið á Royal Lytham & St. Annes 2012, þar sem hann glutraði niður sigrinum á síðustu honum s.s. öllum er eflaust í fersku minni. Adam Scott er núverandi nr. 1 á heimslistanum.
Þess mætti í lokin geta þess að á þessum degi fyrir 3 árum birtust fréttir Golf 1 í fyrsta skiptið á Facebook – Golf 1 golffréttavefurinn opnaði þó ekki formlega fyrr en 2 1/2 mánuði síðar þ.e. 25. september 2011.
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Tom Gillis, 16. júlí 1968 (46 ára); Stuart Cage, 16. júlí 1973 (41 árs); Thomas Edward Aiken, 16. júlí 1983 (31 árs); Kim Joo-Mi (kóreanska 김주미 ) 16. júlí 1984 (30 ára) .… og ….





Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024